Dagur - 21.03.1984, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 21. mars 1984
21. mars 1984-DAGUR-7
A gatnamótaflakki í
Þessir krakkar voru á leið úr sundi.
Sum gatna
mótin eru
stórhættuleg
- segir Haukur ívarsson,
skólabílstjóri í viðtali
við Dag
- Það er ekkert við því að segja þó að
gömlu göturnar hér í bænum séu
þröngar en það er bagalegra svo ekki
sé meira sagt, þegar nýju göturnar eru
verri en þær gömlu.
Myndir og
texti: ESE
Haukur Ivarsson, skólabflstjóri.
Þetta sagði Haukur ívarsson,
skólabílstjóri í samtali við Dag,
en Haukur og aðrir þeir sem aka
hjá Strætisvögnum Akureyrar
telja sig hafa orðið áþreifanlega
vara við kjánalega og oft stór-
hættulega hönnun gatna hér í
bænum. Blaðamaður Dags brá
sér í bíltúr með Hauki á dögun-
um og á milli þess sem hann ók
krökkum milli sundlaugarinnar
og Glerárskóla, þá litum við á
nokkra staði sem Hauki og fé-
lögum hans finnast í meira lagi
varhugaverðir.
- Þessi tegund gatnamóta
virðist vera einhver tískulína hjá
bæjarverkfræðingi,'sagði Haukur
er við komum að mótum Lang-
holts og Undirhlíðar.
- Það sjá það allir sem vilja að
það er búið að þrengja Langholt-
ið að vestanverðu þar sem göt-
urnar mætast. Þetta kemur
kannski ekki svo mjög að sök fyr-
ir litla bíla en fyrir okkur sem
Hér sést þrengingin á Langholti greinilcga. Biðskyldumerkið er við gömlu vegarbrúnina (táknað með brotinni línu).
ökum stórum bílum þá er þetta
ómögulegt fyrirkomulag. Sér-
staklega í snjó. Ég hef rætt um
þetta við starfsmenn hjá embætti
bæjarverkfræðings og þar er því
harðneitað að hér sé um ein-
hverja þrengingu að ræða. Ég er
sagður fara með fleipur en allir sem
áhuga hafa á geta sannfærst um
það sanna með því að líta hér á
gatnamótin. Einhvern tímann
var mér sagt að þessi „þrenging"
hefði verið sett á götuna til þess
að hafa áhrif á umferðina til hins
betra. Þetta hefur mistekist hrap-
allega því að þrengingin virkar
jetjandi á aðalumferðarstefnuna.
Sennilega er þarna endurvakin
gamli hlykkurinn sem var við all-
ar brýr hér áður fyrr.
- Önnur gatnamót sem eru
mjög erfið eru gatnamót Strand-
götu og Glerárgötu. Það er rétt á
mörkunum að hægt sé að aka
strætisvagni í beygjuna úr Gler-
árgötu vestur Strandgötu. Fleiri
gatnamót mætti nefna en ég vil
bara minnast á ein hér sem eru
stórhættuleg sökum hliðarhalla.
Það eru gatnamót Austursíðu og
Hlíðarbrautar. Eins og allir vita
er talsverður halli á landslaginu
á þessum slóðum og þessi halli
hefur ekki verið réttur af þegar
Austursíðan var lögð. Þetta gerir
það að verkum að ökumenn eiga
erfitt með að átta sig á götunni og
í hálku eru þessi gatnamót stór-
hættuleg eins og tíðni árekstra
þar sannar.
Af þessum stutta akstri Dags
með Hauki Ivarssyni um bæinn
má vera ljóst að hann hefur ýmis-
legt til síns máls og það er greini-
legt að þar fer maður sem hefur
næmt auga fyrir ýmsum atriðum
sem tengjast umferðinni. Eitt af
því sem Haukur hefur tekið eftir
eru bílar í umferðinni sem eru
skemmdir eftir árekstra.
- Ég mæti sömu bílunum dag
eftir dag, mánuð eftir mánuð og
þó að reglur mæli skýrt fyrir um
að þessir bílar eigi ekki að vera
úti í umferðinni, þá komast eig-
endurnir upp með þetta átölu-
laust. Eins er með þá sem aka
„eineygðir“ það er ótrúlega al-
igengt hér í bænum, sagði Haukur
ívarsson. - ESE.
Eitt það versta sem Haukur lendir í er að ná beygjunni þegar ekið er frá Glerárskóla. Myndarleg umferðareyja er
þar farartálmi á versta stað.
strætó
Ferðakynning
Utsýnar
og stofnfundur Fríklúbbsins á Akureyri
í Sjallanum laugardaginn 24. mars.
Húsið opnað matargestum kl. 19.30.
tiatn botititi.
»'i"e'ít,sw»vlíts
• iAV,ann Vld&aSon
Hint'ítáb®k"v\aS'ð' .
Ingimar Eydal og Grímur Sigurðsson leika dinnermúsík.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi til kl. 03.C
Verft aftein
Teikur fyrir dansi til kl. 03.00
Verð aðeins
1 krnnnr
dansi til
krónur
450,-
, Feröaskrifstofam
Miðasala og borðapantanir hjá yfirþjóni
föstudag kl. 19.00-20.00 • Sími 22770.
AKUREYRI: Hafnarstræti 98, simi 22911.
/AV