Dagur


Dagur - 09.05.1984, Qupperneq 3

Dagur - 09.05.1984, Qupperneq 3
9. maí 1984 - DAGUR - 3 Hópurínn fyrir framan Dag it| f . 1 Wr*m ■ 1 ■ 1 Nemendur úr Öxarfirði í heimsókn „Við tökum okkur einn dag í það að fara í fyrirtæki hér á Akureyri og kynna okkur starfsemi þeirra,“ sagði Aðal- björn Gunnlaugsson kennari í Lundi í Öxarfirði, en hann kom í heimsókn á Dag ásamt fjölmennum hópi nemenda sinna. Það voru unglingar úr 7., 8. og 9. bekk sem voru í þessari skoðunar- og kynnisferð og voru fjölmörg fyrirtæki heimsótt. Hópurinn kom tii Akureyrar á fimmtudagskvöld og var þá ýmist farið í leikhús eða kvikmynda- hús, en föstudagurinn var tekinn snemma. Hópnum, sem var 27 nemendur, var skipt í tvennt og var síðan farið í heimsóknir til Iðnaðardeildar Sambandsins, Kaupfélags Eyfirðinga, Sana, RÚVAK, Slippstöðvarinnar, Lindu, Útgerðarfélags Akureyr- inga og að sjálfsögðu á Dag. Þetta voru kátir krakkar sem senn ljúka vetrarsetu í Lundi og við tekur sumarvinna. Og að sjálfsögðu standa þeir krakkanna sem eru að útskrifast úr 9. bekk frammi fyrir því að taka ákvörð- un um frekara nám eða atvinnu. Við þökkum þeim fyrir heim- sóknina. gk-. Lækningastofa Hef opnað lækningastofu að Bjargi, Bugðusíðu 1, Akureyri. Tímapöntunum veitt móttaka í síma 26888 alla virka daga kl. 8.00-15.30. Tilvísanir frá heimilislækni óþarfar. Geir Friðgeirsson, læknir Sérgrein: Barnalækningar. SAMVINNU TRYGGINGAR Breyting á opnunartíma Þeir sem erindi eiga á skrifstofu Samvinnutrygg- inga g.t. á Akureyri, eru vinsamlegast beðnir að athuga, að skrifstofan er opin frá klukkan 8.00 til 16.00 frá 15 maí til 1. september. Um leið og við vonum að þessi breyting valdi eng- um óþægindum, óskum við öllum gleðilegs sumars. Samvinnutryggingar g.t. Vátryggingadeild KEA Skipagötu 18, Akureyri. í kvöld: Jazz í Sam- komuhúsinu Jazzáhugamenn ættu ekki að vera mjög fjarri Samkomuhús- 6 ára tónlistar- menn Fimmtudaginn 10. maí verða tónleikar á vegum Tónlistarskól- ans á Akureyri í Akureyrarkirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Flytj- endur verða nemendur strengja- deildar skólans, sem leika samspils og kammerverk, auk þess sem fram kemur yngri strengjasveit skólans. Yngstu flytjendur eru sex ára gamlir. Aðgangur ókeypis. inu á Akureyri í kvöld því þá fara þar fram jazztónleikar á vegum jazzdeildar Tónlistar- skólans á Akureyri. Á tónleikunum koma fram margar hljómsveitir, s.s. stór- hljómsveit eða „big band“, dixie- landhljómsveit og margar fleiri. Þess má geta að þessar hljóm- sveitir skemmtu á Sæluviku Skag- firðinga á Sauðárkróki á dögun- um og gerðu stormandi lukku. Mun í framhaldi af því vera von á fjölmennum hópi Skagfirðinga á tónleikana í kvöld. Tónleikarnir eru sem fyrr sagði í Samkomuhúsinu og hefjast þeir kl. 20.30. Sundnámskeið fyrir 6 ára börn og eldri hefjast í Sundlaug Akur- eyrar 28. maí og 20. júní nk. Innritun í síma 23260. Sundlaug Akureyrar. Sundlaugin á Syðra-Laugalandi verður opin í sumar sem hér segir: Sunnudaga frá kl. 14.00-16.00. Mánudaga frá kl. 20.30-22.30. Kvennatímar. Þriðjudaga frá kl. 20.30-22.30. Fimmtudaga frá kl. 20.30-22.30. Laugarvörður. T Ti ILBOÐ! 1ILBOÐ! Vorum að taka upp hvítar blómapottahlífar 2 stærðir á tilboðsverði Minni: 10 cm hár x 12 cm víður 50 kr. Stærrí: 12 cm hár x 14 cm víður 60 kr. Vorum einnig að taka upp úrval af búsáhöldum ýmiss konar. Járn & glervörudeild.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.