Dagur - 09.05.1984, Síða 12

Dagur - 09.05.1984, Síða 12
wm. ÞJONUSTA FYRIR HÁÞRÝSTISLÖNGUR OLÍUSLÖNGUR og BARKA PRESSUM TENGIN Á FULLKOMIN TÆKI VÖNDUÐ VINNA SamkVæmt upplýsingum Vinnumiðlunarskrifstofunnar á Akureyri voru 216 skráðir at- vinnulausir á Akureyri síðasta dag aprílmánaðar, 116 karlar og 100 konur. í apríl voru skráðir 3.468 heilir atvinnuleysisdagar, sem svarar til þess að 165 hafi verið atvinnulaus- ir allan mánuðinn. í apríl var gefið út 481 atvinnuleysisbóta- vottorð með samtals 3.572 heil- um bótadögum. Hvaða leikari fær styrkinn? Leikari hjá Leikfélagi Akur- eyrar mun hljóta styrk úr Minningarsjóði um frú Stefan- íu Guðmundsdóttur en styrkur þessi verður veittur að aflok- inni sýningu á Kardemommu- bænum nk. föstudagskvöld. Minningarsjóður þessi var stofnaður af Poui Reumert og Önnu Borg á sínum tíma og hef- ur verið veitt úr honum árlega. Leikari hjá Leikfélagi Akur- eyrar hefur aldrei áður hlotið þennan styrk, en nafn leikarans og styrkupphæðin sem hann hlýtur eru leyndarmál þar til á föstudagskvöld. Varaformaður sjóðsstjórnarinnar, Þorsteinn Gunnarsson mun afhenda styrkinn. Sýningar LA á Kardemommu- bænum hafa gengið mjög vel að undanförnu, uppselt hefur verið á flestar sýningar en sýningin á föstudagskvöld verður sú 16. í röðinni. Bæjarráð Akureyran Könnuð verði haq- kvæmni glerverksmiðju Bæjarráð Akureyrar hefur lagt til að Framkvæmdasjóður Ak- ureyrar taki þátt í hagkvæmn- isathugun vegna byggingar glerverksmiðju, þ.e. fyrirtæki til framleiðslu á glerumbúðum. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar sendi bæjarráði bréf þessa efnis á dögunum. í bréfinu kom fram það mat Iðnþróunarfélagsins að full ástæða væri til þess að kanna forsendur fyrir slíkri verksmiðju. Borist hefur tilboð frá Iðntækni- stofnun íslands í slíka athugun sem yrði unnin í samvinnu við Iðnþróunarfélagið. Stjórn Iðnþróunarfélagsins óskaði því eftir að Kaupfélag Eyfirðinga og Framkvæmdasjóð- ur Akureyrar tækju að sér að kosta umrædda athugun sem yrði jafnframt eign umræddra aðila. Heildarkostnaður við þessa at- hugun er talinn vera á bilinu 400- 500 þúsund krónur og eru líkur á að unnt verði að fjármagna 40% þess kostnaðar með áhættuláni frá iðnaðarráðuneytinu. Bæjarráð Akureyrar hefur því lagt til að Framkvæmdasjóður Akureyrar taki þátt í kostnaði við þessa athugun, og verði sú þátttaka bundin við að sam- komulag náist við iðnaðarráðu- neytið og Kaupfélag Eyfirðinga. gk-- Afrakstur veiðiferðarinnar - Þessi trillukarl var nýkominn að er blaðamaður Dags hitti hann við höfnina á Grenivík. Aflinn var fremur lítill enda slæmt í sjóinn á miðunum en sá guli hefur heldur ekki geflð sig sem skyldi að undan- fömu. Mynd: ESE. Akureyri: Háskólakennsla í sjónmáli? Nefnd sú sem skipuð var m.a. til að kanna möguleikana á kennslu á háskólastigi á Akur- eyri mun ganga á fund mennta- málaráðherra í þessari viku og afhenda tillögur sínar og grein- argerð. Nefndin var skipuð af Ingvari Gíslasyni, fyrrverandi mennta- málaráðherra, 27. maí 1982, til þess að gera tillögur um hvernig vinna mætti að því að efla Akur- eyri sem miðstöð mennta og vís- inda utan höfuðborgarsvæðisins. Nefndin hefur því fjallað um menningar- og skólamál í víðu samhengi og meðal þess sem lagt mun til, er að tekin verði upp kennsla á háskólastigi á Akureyri í tölvufræðum og hugsanlega í öðrum greinum eins fljótt og kostur er. - ESE. 350 þús. söfn- uðust á Akureyri „Þetta er dálítið taugastríð að | bíða eftir árangri söfnunarinn- ar, en miðað við árangurinn hér í bænum er ég hæfilega bjartsýnn,“ sagði Hörður Þór- leifsson tannlæluiir á Akureyri í samtali við Dag er við rædd- um við hann um árangur söfnunar Lionsmanna „Átak til sjónverndar“ sem fram fór um helgina. Það voru Lionsmenn á svæði 109-B sem stóðu að söfnuninni, en það svæði nær frá Hvalfirði, vestur og norður um til Langa- ness. Söfnunin er eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum í þeim tilgangi að safna fé til kaupa á tækjum fyrir Augnlækninga- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. „Söfnunin á sunnudag hér á Akureyri nemur um 350 þúsund krónum rúmlega og þá eru ekki meðtalin bein framlög og stuðn- ingur fyrirtækja þannig að það eru margir lausir endar ennþá,“ sagði Hörður. - Hvað kosta þau tæki sem þið eruð að safna fyrir? „Ég reikna með að við þurfum að safna eitthvað yfir 2 milljón- um króna til þess að eiga fyrir kostnaði og því sem þessi tæki kosta,“ sagði Hörður og sagði að línurnar myndu ekki skýrast verulega fyrr en í næstu viku hvað varðar árangur söfnunar- innar það sem af er. gk-. „Þið fáið blíðskaparveð- ur á Norðurlandi næstu daga, jafnvel alveg fram á sunnudag,“ sagði veðurfræðingur á Veður- stofunni í morgun. Hann sagði að það yrði hæg sunnan og suð- vestanátt næstu daga og mjög hlýtt. Gæti vel far- ið svo að hiti færi í 20 stig, t.d. á föstudag. # Borgað fyrir gott númer í hugum sumra hefur það verið nokkurt „stöðutákn“ að hafa sem allra lægst skrá- setningarnúmer á bifreið sinni, og eru tii ótal margar sögur um menn sem hafa jreitt háar fjárhæðir fyrir slík númer. Það mun einnig vera eitthvað um að slík númer gangi í erfðir. Við heyrðum eina sögu um það frá kunn- ingja S&S að nýlega hafi maður nokkur fellt hug til skrásetningarnúmers sem annar átti og var um „fallegt“ tveggja stafa númer að ræða. Sá sem átti númerið frétti þetta og bauð hinum að selja honum númerið og bifreið- ina og skyldi hann síðan fá bifreiðina aftur sem gjöf. Munu samningar um þetta hafa tekist. Hvað ætli menn vilji greiða fyrir Trabant með skrásetningarnúmerið R-68471 eða A-6149? # Ævilangur vændis- samningur Konur á „krúttmagakvöldi“ í Sjallanum um síðustu helgi munu hafa stofnað þar form- lega „karlavinafélag“, en fregnum af því fylgir hins vegar ekki nánar útlistuð stefnuskrá. Konur hafa hins vegar fengist við að skil- greina stofnun þá sem nefn- ist hjónaband og mun sú skil- greining að það væri „ævi- langur vændissamningur“ hafa hlotið einna bestan hljómgrunn. - Ekki er víst að allir vilji túlka þetta á sama veg og hætt er við að karl- rembusvinin líti öðrum aug- um á þessa skilgreiningu en kvenfólk þótt þeir séu að öðru leyti samþykkir henni. Þau sömu „svín“ segja einn- ig að hjónabandið sé eini fangeisisdómur yfir karl- mönnum sem þeir geti ekki fengið styttan með góðri hegðun. # Olympíu- hugsjónin Þá hafa Sovétmenn tilkynnt að þeir muni ekki mæta á Ol- ympíuleikana í Los Angeles í sumar og hætt er við að „leppþjóðir“ þeírra í A.- Evrópu muni fara að dæmi þeirra. Eitthvað voru Sovét- menn að tala um að Olympíu- hugsjónin væri ekki virt i greinargerð sinni í gær og sýnist nú mörgum sem grjótkast úr glerhúsi sé hafið. Ætli það sé samkvæmt gömlu góðu Olympíuhugsjón- inni að taka börn 6-9 ára og loka þau af frá venjulegu líf- erni og ala þau síðan sem at- vinnumenn til þess að geta fengið út á þau gullverðlaun á Olympíuleikum síðar?

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.