Dagur - 27.06.1984, Qupperneq 12
Það verður líf og fjör upp á hvern dag alla næstu viku á Sauðárkróki á Sumarsælnviku, sam þar verður þá haldin
í annað sinn. Mynd: HS.
Sumarsæla á Króknum
- með mjög fjölbreyttri dagskrá og uppákomum
Margir
hafa
skrifað
undir
- Hafa opnað skrif-
stofu á Akureyri
„Það er fullt af fólki sem vill
vinna þessu máli framgang og
fleiri og fleiri tjá sig fúsa til að
taka þátt í þessu mikla hags-
munamáli Akureyringa og
Eyfirðinga.“
„Nú þegar eru milli 1.500 og
2.000 manns búnir að skrifa undir
listana og við erum eiginlega ekki
farnir af stað. Hins vegar hefur
nú verið opnuð skrifstofa að
Skipagötu 13, gamla Drangshús-
inu. Fólk er hvatt til að mæta þar
til skrafs og ráðagerða, skrifa sig
á listana, fá lista og skila af sér
listum með undirskriftum. Skrif-
stofan verður opin alla daga frá
kl. 16-18 og síminn þar er
22171,“ sagði Vilhelm Ágústs-
son, einn af frumkvöðlum undir-
skriftasöfnunarinnar um að næsta
stóriðjuver rísi við Eyjafjörð, að
því tilskildu að lífríki verði ekki
stofnað í hættu.
Erlingur Sigurðarson, einn af
þeim sem stendur fyrir fundaröð-
inni gegn álveri við Eyjafjörð
hafði ekki tölur á takteinum þegar
Dagur innti hann eftir því hversu
mikið hefði safnast af undirskrift-
um gegn álveri.
í gærkvöld héldu álversand-
stæðingar fund í Samkomuhúsinu
á Akureyri þar sem voru um 120
manns. Þar lágu undirskriftalistar
frammi. HS
Á fundinum. Mynd: KGA.
Sumarsæluvika á Sauðárkróki
hefst nk. laugardag og stendur
óslitið til sunnudagsins 8. júlí.
Boðið verður upp á mjög fjöl-
breytta dagskrá, flest fyrirfram
ákveðið en einnig má reikna
með ýmsum uppákomum á
götum bæjarins og torgum, að
sögn Harðar Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Sumarsæluviku.
Meðal þess sem á dagskrá
verður eru golfmót, málverka-
4. ársfundur Sambands ís-
lenskra hitaveitna verður á
Akureyri á morgun og föstu-
dag.
Meginviðfangsefni fundarins
verður, auk venjulegra aðalfund-
arstarfa og umræðna um málefni
sýning, útirokktónleikar, fjöl-
margir dansleikir, fjölþrautamót
barna, grillveislur og tónleikar af
ýmsu tagi, m.a. með Sinfóníunni.
Þá verður útiskákmót, stang-
veiðimót, danssýningar, ljóða-
kvöld, breakdanssýningar,
jasskvöld, götuleikhús, harmon-
ikuball á Faxatorgi, kántrýkvöld
svo eitthvað sé nefnt. Sunnudag-
inn 8. júlí verður guðsþjónusta,
hópreið hestamanna, skrúðganga
hitaveitna, að ræða um varma-
dælur.
Um varmadælur flytja þrír
fyrirlesarar erindi og fjalla um
viðfangsefnið frá mismunandi
sjónarmiði, t.d. fjárhagslegu og
tæknilegu. Um þessar mundir eru
varmadælur að festa rætur í ís-
barna og loks fjölbreytt fjöl-
skylduhátíð. Boðið verður upp á
útsýnisferðir um héraðið, báts-
ferðir til Drangeyjar og fleira.
Að þessu framtaki standa
bæjarfélagið og atvinnufyrirtæki
á Króknum, sem ábyrgjast fjár-
málalegu hliðina, og er þetta lið-
ur í því að efla Sauðárkrók sem
ferðamannabæ. Búist er við
fjölda aðkomugesta á þessa
hátíð. HS
lenskum orkubúskap. Stærsta
varmadæla landsins er að hefja
rekstur sinn á Akureyri og verður
hún formlega tekin í notkun í
tengslum við fundinn. Varma-
dælur flytja hita úr einu formi yfir
í annað t.d. er hægt að vinna
háan hita úr volgu afrennsl-
Skyrtuverksmiðjan:
„Rifti
samningum“
„Ég rifti samningum af því að
það var ekki staðið við það
sem lofað var,“ sagði Erling
Aðalsteinsson, sem hugðist
kaupa skyrtuverksmiðju G.A.
Pálssonar, en einhver snurða
er nú hlaupin á þráðinn.
„En það er ekkert endanlega
frágengið með þetta mál ennþá,
þetta er í athugun,“ sagði Erling,
en vildi ekki ræða málið frekar.
- KGA.
Vatnsdalsá:
Tilboð
upp á 6,5
milljónir
Alls bárust 6 tilboð í veiðirétt í
Vatnsdalsá næsta sumar, en
tilboð þessi hafa nú verið
opnuð.
Hæsta tilboðið var frá Brynj-
ólfi Markússyni rafverktaka í
Reykjavík. HÍjóðaði það upp á 6
milljónir og 505 þúsund krónur í
alla veiðina. Tilboð hans var
sundurliðað þannig að það hljóð-
aði upp á 925 þúsund fyrir sil-
ungsveiðisvæðið og 5 milljónir
580 þúsund krónur fyrir laxveiði-
svæðið. Næsthæsta tilboðið kom
frá Árna Gestssyni í Reykjavík
og var það upp á 5 milljónir 150
þúsund krónur.
Vatnsdalsá er ein gjöfulasta
veiðiá landsins, enda veiða menn
þar ekki ókeypis eins og sjá má af
tölunum hér að framan. Tilboðin
sem bárust í ána munu verða
rædd á fundi veiðiréttareigenda
á fundi þeirra 6. júlí nk.
isvatni.
Fýsir marga hitaveitumenn að
sjá dæluna og fá upplýsingar um
rekstur hennar.
Þá mun iðnaðarráðuneytið
leggja fram skýrslu með nýju
mati á orkuverði og samanburði
hinna ýmsu hitaveitna.
Varmadælan í notkun
— í tengslum við ársfund Sambands íslenskra hitaveitna
„Það verður bara gott veður,“
sagði Unnur Ólafsdóttir, veður-
fræðingur, í morgun og var næst-
um ómögulegt að toga meira út úr
henni. Þegar hún vissi að við
þyrftum að fylla 5 cm veðurdálk
bætti hún við að það mætti búast
við hálfgerðri lognmollu fyrir
norðan, en andaði af vestan ef
eitthvað væri. Hlýrra yrði en verið
hefur og líklega þurrt. Lægðin fyr-
ir sunnan væri kyrrstæð og hæðar-
hryggur að vaxa vestan við landið.
Sem sagt: Gott veður!
# Söngelskir
Skagfirðingar
Skagfiröingar eru kunnir af
þvi að skemmta sér og
öðrum af óvenju miklum
krafti. Þeir koma vart svo
saman tíu að ekki séu a.m.k.
þrír farnir að syngja. Þannig
var t.d. þegar Fiskiðja Sauð-
árkróks tók formlega í notk-
un nýtt og glæsilegt fiskiðju-
ver. Ræðurnar voru ekki fyrr
búnar en upphófst söngur,
rétt eins og í réttunum á
haustin. Þá er eins líklegt að
Sauðkrækingar og aðrir
Skagfirðingar muni heldur
betur taka lagið í næstu viku,
en þá verður haldin glæsileg
Sumarsæluvika á Króknum.
# Loksins iyf
gegn kvefi
Loksins kom að því! Frá Nor-
egi berast þær fréttir að eftir
um það bil ár verði sett á
markaðinn lyf gegn kvefi.
Rannsóknir og prófanir hafa
verið í gangi í ein þrjú ár og
töluverð leynd hvflt yfir þeim,
enda um meiri háttar upp-
götvun að ræða ef satt reyn-
ist og miklir fjármunir í húfi.
Lyfið hefur verið reynt á 300
manns og þar á meðal við
háskólana í Osló og Tromsö
og eru menn tilbúnir til að
staðfesta að þessi lyfjameð-
ferð beri árangur. Um 90%
„tilraunadýranna“ náðu sér
skjótt af kvefi með því að
taka lyfið. Lyf þetta verður
selt sem nefdropar eða nef-
sprey. Það verður selt í
tveimur giösum og menn
verða að blanda saman inni-
haidi þeirra, en þetta er nauð-
synlegt vegna þess að
blanda þessi eyðileggst á
innan við viku, eftir að hún er
til orðin. Engar aukaverkanir
eru taldar fylgja notkun
þessa iyfs. Já, betur væri ef
satt reyndist.
# Berserks-
gangur
Það er aldeilis fjörið f fyrir-
tækjunum fyrir sunnan, ef
marka má fyrirsögn í NT í
gær. Þar segir: Osta- og
smjörsalan: Sparkaði upp
hurðum og stal. Löggan hef-
ur eflaust átt fullt í fangi með
að handsama skemmdar-
varginn, enda ekkí á hverjum
degi sem heil osta- og smjör-
sala gengur berserksgang,
brjótandi hurðir og steiandi
öllu steini léttara. Ef til vill er
réttast að við Akureyringar
förum að hafa auga með
Samlaginu okkar - ekki
myndi S&S kæra sig um að
fá það inn til sín.