Dagur - 06.07.1984, Blaðsíða 11
6. júlí 1984 — DAGUR -11
margvíslega rétti úr nautakjöti og
fjölbreytta sjávarrétti s.s. humar,
skötusel, rækju, flatfisk margs-
konar.lax, graflax o.fl. Fiskrétt-
irnir kosta frá 185 kr. upp í 270
kr. og kjötréttir frá '325-585 kr.
Veitt verður vín og einnig verður
boðið upp á bjórlíki, sem hlotið
hefur nafnið „Brekkusnigill." Pá
verður hægt að fá hlaðborð og
kaffihlaðborð um helgar.
Eigendurnir segjast ekkert
bangnir við þennan rekstur.
Hann tengist vel öðrum atvinnu-
rekstri, þ.e. útgerðinni og fisk-
verkuninni og fyllir upp í ákveðið
tómarúm sem skapast hefur
vcgna kvótaskiptingar og afla-
tregðu.
Fastar ferðir Hríseyjarferjunn-
ar tengjast þessum rekstri að
sjálfsögðu, en stærri hópar geta
einnig tekið hana á leigu nær hve-
nær sem er. Alla daga eru þrjár
ferðir frá Árskógssandi kl. 9:30,
13:30 og 18:00 og hálftímanum
áður frá Hrísey, en auk þess eru
ferðir kl. 23:30 frá Hrísey og
24:00 frá Sandi. HS
Veitingastaðurinn er í þessu gamla húsi.
Nýr veitingastaður í Hrísey:
Innréttingar eru smekklegar og meðal þess sem notað er er egni úr fisk-
hjöllum, sem „flikkað“ hefur verið upp á.
Nýr veitingastaður hefur verið
opnaður í Hrísey og heitir
hann Brekka. Staðurinn er í
gömlu þrilyftu húsi rétt ofan
við höfnina, raunar skammt
frá þeim stað þar sem áður var
rekinn veitingastaðurinn
Hrísalundur, sem nú hefur
hætt starfsemi sem kunnugt er.
Stefnt er að því að reka þarna
vandaðan veitingastað sem
gefur þeim á meginlandinu
ekkert eftir og raunar mun
Brekka hafa sérstöðu, því
þetta er eini veitingastaðurinn
þar sem að staðaldri verður
hægt að bragða á galloway
nautakjöti, en megináherslan
verður lög á nautakjöt og fisk-
rétti hvers konar. Ætta að vera
hæg heimatökin því Brekka er
í eigu sömu aðila og eiga út-
gerðar- og fískvinnslufyrirtæk-
ið Borg hf. Það eru Birgir Sig-
urjónsson, framkvæmdastjóri
og Smári Thorarensen, skip-
stjóri ásamt eiginkonum og
Páll Sigurjónsson. Aðalmat-
reiðslumaður hússins er Bjarni
Ingvason, en hann starfaði
áður á Bautanum. Með honum
í eldhúsi starfa Sigrún Guð-
laugsdóttir og Sólrún Svein-
bergsdóttir.
Skoðunarmenn frá heilbrigðis-
eftirlitinu eru nýlega búnir að
taka staðinn út og er þess vænst
að vínveitingaleyfi fáist á næstu
dögum, en hreppsnefnd og sýslu-
nefnd hafa samþykkt það fyrir
sitt leyti. Hugmyndin er að reka
þennan stað allt árið og á efri
hæðinni, sem er undir súð, er nú
verið að innrétta hótelherbergi.
Þau verða fjögur talsins, tvö
tveggja manna og tvö eins
manns, rithöfundaherbergi, eins
og eigendumir komast að orði. Ef
innréttingar þar verða jafn
smekklegar og í veitingasalnum
ætti ekki að væsa um gesti hótels
Brekku.
Útgerðarfélagið Borg keypti
húsið upphaflega til notkunar
sem verbúð, en húsið er 50 ára,
byggt 1934. Innréttingar og tækja-
kaup hafa kostað um eina og
hálfa milljón króna. Veitinga-
staðurinn var opnaður miðviku-
daginn 27. júní og þá var haldið
hóf fyrir Hríseyinga, sem fjöl-
menntu á staðinn. Hafa líklega
komið 70 manns og greinilegt er
að heimamenn hafa tekið þessu
vel, því þeir hafa sótt staðinn
mikið þennan stutta tíma sem
opið hefur verið.
Opið verður alla daga frá kl. 9
á morgnana til hálf tólf á kvöldin
og lengur ef þurfa þykir, t.d. ef
hópar hafa leigt salinn. Auk rétt-
ar dagsins verður boðið upp á
Starfsmenn og eigendur Brekku.
Myndir HS
Umsjón: Jón Bjarnason frá Garðsvík
Albert er oft í harki...
Eins og menn muna frá kaup-
samningaátökunum síðustu,
gerði fjármálaráðherran samning
við Dagsbrún án samráðs við aðra
ráðherra. Olli þetta gusugangi í
pólitíkinni. Þá kvað Öli á Gunn-
arsstöðum:
Albert er oft í harki,
æfður við margs konar pot.
Einlék að öfugu marki,
ægilegt framkvæmdi skot.
Þorleifur Rósantsson, Hamri á
Þelamörk kvað um yndislegt
mannlíf á Þelamörkinni:
Oft mér svannaryndi ljá,
eina fann ég þarna.
Pað er Anna Ási frá,
yngismanna stjarna.
Þorleifur taldi óhrjálegra um að
litast í Öxnadalnum:
Fram í Dal er fátt að sjá
frítt sem talist getur.
En ungir halir ástarþrá
oft þar svala betur.
Benedikt Júlíusson bóndi að
Hvassafelli kvað:
Völt eru gæði veraldar.
Víða flæða tárin.
Af veikum þræði viskunnar
vil ég græða sárin.
Jón Jónasson, Hrauni orti er
jarðskjálftar tóku að angra
„Kröflumenn“:
Upp hafa tekið argan sið.
Oft fer snurða á þráðinn,
í Kröflu þá þeir keipa við
kölska um yfirráðin.
Einhverju sinni þá veðurstofan
spáði stórhríð, kvað Jón:
Angur og kvíða eykur lýð,
yl út víða rekur
austanhríðin ef að stríð
á oss níðast tekur.
Næstu vísu Jóns mætti nefna
búmannshyggindi:
Afdugnaði og drift má keyra
dálítið sinn hag.
Hitt sín má þó hálfu meira:
Hyggindi og lag.
Hans Natansson (Ketilssonar)
kvað á efri árum:
Æskufjör og myndin manns
má ei standa í skorðum.
Nú er ég orðinn annar Hans
én þú þekktir forðum.
Ekki er vitað við hvern var mælt,
en sá svaraði að bragði:
Mótgangshríða vosi vön
veikluð glúpnar sálin.
Nú er skáldi gránuð grön
grimm eru norna málin.
Benedikt Valdemarsson frá
Þröm kvað:
Vekur dagur von og þrá.
Víða lagast hagur.
Ljóðabragur lifnar þá,
lífsins fagur slagur.
Lífs um vegi léttur geng,
lifna tekur geðið
meðan fagran strýk ég streng
og stöku fæ ég kveðið.
Þorsteinn Jóhannsson frá Svína-
felli kvað:
Gnóttin orða rími reyrð
rómi snilldar kveðin
þótti forðum hirðum heyrð
helsta mildings gleðin.
Næstu vísurnar tvær orti ég ný-
lega um stökuna:
Stakan ómar eyrum kær.
Enginn strengur brostinn.
Verst hve margur vísufær
velur þagnar kostinn.
Slökkvi hcnnar bjarta blys
byljir nýrra tíða,
það mun talið þjóðar slys
þegar tímar líða.
Þættinum lýkur með vísu sem ég
kvað um mann sem orti vel, en
hvarf svo í rímleysuna:
Óðarsnillin helg og há
hvarf í grillublaður.
Sóðahillu er hann á
arflaus villimaður.
Jón Bjarnason.