Dagur - 13.07.1984, Blaðsíða 11

Dagur - 13.07.1984, Blaðsíða 11
t »juii • out -i vnuui i —r »i | Motocross „Rosaleg ftting Fróðir menn hafa sagt að þetta sé næst erfiðasta íþrótt í heimi, einungis ameríski fótboltinn er erfiðari. Og hér erum við að tala um motocross. Nokkrir ungir Akureyringar hafa lagt stund á þessa erfiðu íþrótt og innan tíðar fá þeir í heimsókn motocrossara frá Reykjavík ogþá verðurhaldin hér keppni. Það var sólBjart síðdegi, í mal- arkrúsunum við öskuhaugana er mikill hávaði og ryk þyrlast upp eins og þar fari hrossastóð. En raunin er sú, að Helgi Schiöth er að æfa sig í motocross. Félagar hans standa álengdar og spá í aksturinn hjá Helga. Ég heyri ekki betur en þeim líki vel það sem þeir sjá. Helgi þenur hjólið, geysist yfir hóla og hæðir, svífur fram af moldarbörðum - líklega skárra að hafa demparana í lagi. Eys grjóti og ryki yfir nærstadda. Svo gefur hann sér tíma til að spjalla við blaðamann, og ég spyr hann fyrst hvort þetta sé gaman. „Rosaleg fíling,“ segir Helgi. Hann og félagar hans hafa stund- að íþróttina í 3 ár, og eiginlega voru þeir brautryðjendur hér fyr- ir norðan. „Ég hef alltaf haft áhuga á motorhjólum, eignaðist fyrst skellinöðru þegar ég var 13 ára.“ Ég ympra á því hvort hann hafi þá ekki verið ólöglegur til að byrja með, en Helgi gefur ekkert út á það - glottir út í annað. „Ég lék mér bara í túninu heima.“ Hjólið sem Helgi er á, er reyndar ekki hans eign. „Ég á Husquarna 430 - það er til sölu. Já, það er góður kraftur í því. Það skiptir mestu að krafturinn í hjólinu sé mikill og góður, og fjöðrunin þarf að vera góð. Og svo hefur mikið að segja hvernig hjólið er í akstri, beygjum og ófærum og því um líku. Og að sjálfsögðu má bilanatíðnin ekki vera há.“ - Ertu ekkert hræddur við þetta sport? „Ef maður er vel búinn í galla og aðrar hlífar sem tilheyra, þá minnka líkurnar á slysi mjög mikið. Og maður verður áræðn- ari, síður hræddur við að fljúga. Já, ég hef sloppið stóráfallalaust - fengið smáskrámur en ekkert alvarlegt." Það eru 7 eða 8 motocross hjól hér í bænum, en í kringum hvert hjól eru 4-5 áhugasamir og virkir strákar. Þeir eru félagar í Bíla- klúbbnum, en Helgi segir að þeir hafi áhuga á að stofna sérstakan klúbb ef að fleiri fara að stunda motocrossið. En er það ekki dýrt sport? „Ja, þa fer eftir því hversu mikið þú keyrir, hvað þú eyðir miklu í bensín - hjólin eyða tölu- verðu. Og svo hefur það nokkuð að segja hversu heppinn þú ert með hjólið, hvort það bilar oft,“ segir Helgi. Þeir félagarnir eru ekki alveg sammála um hversu dýrt sjálft hjólið er, en vilja meina að hægt sé að fá notuð hjól á sæmilegu verði. Laugardaginn 21. verður hald- ið þarna í malarkrúsunum hjá öskuhaugunum motocross keppni. Þangað mæta Reykvík- ingar til keppni og Akureyringar verða einnig með. Má vænta þess að alls verði keppendur um 20 talsins. Keppt verður í fjórum flokkum, og vænta má skemmti- legrar keppni. Þegar ég yfirgef þá motocross- ara er Helgi aftur farinn að þyrla upp ryki og hafa hátt. KGA. Helgi Schiöth: “Skiptir mestu að krafturinn sé mikill og góður.“ Myndir: KGA. Húsnæði til sölu 9oo fm hús til sölu, ein hæö. Hentugt til margs- konar iönaðar. Auövelt aö skipta því í smærri ein- ingar. Einnig á sama staö, til sölu fóðursíló, stærð 9-10 tonn. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 24477 frá kl. 9- 10 f.h. alla virka daga. Búnaðarsamband Eyjafjarðar. Veitingastaður í Hrísey Höfum opnað nýjan veitingastað í Hrísey Úrval rétta. Pantanir teknar í síma 61751. Afgreitt frá kl. 9-23.30 alla daga. Kaftlhlaðborð á sunnudögum frá kl. 15-17. Kvöldverðarhlaðborð frá kl. 19-21 sunnudaga ATH. Sérstakar aukaferðir um helgar (föstudaga, laugardaga og sunnudaga). Frá Hrísey kl. 21.30 Frá Árskógi kl. 22.00 Áætlun Hríseyjarferju: Frá Árskógi kl. 9.30,13.30 og 18.00. Frá Hrísey kl. 9.00, 13.00 og 17.30. Þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum: Frá Árskógi kl. 24.00. Frá Hrísey kl. 23.30. Veitingastaður í Hrísey Til sölu Fokhelt einbýlishús 141,4 fm, ásamt bílskúr 27,8 fm við Fteykjasíðu. Afhendist í september. Upplýsingar í símum 25700 og 25701. r VER0NC LEIKSV /K A<| * Félag málmiðnaðarmanna, Akureyri Fundarboð Félag málmiðnaðarmanna Akureyri heldur félagsfund þriðjudaginn 17. þ.m. kl. 20.30 á Hótel KEA. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Á að segja upp kaupgjaldsliðum kjarasamn- inganna svo þeir verði lausir 1. sept. n.k.? 3. Önnur mál. Áríðandi að félagsmenn mæti vel og stundvíslega. Stjórnin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.