Dagur - 20.08.1984, Side 6
6 - DAGUR - 20. ágúst 1984
20. ágúsí 1984 - DAGUR - 7
ÍÞRÓTTIR
Umsjón: Gylfí Kristjánsson
Valur
sigraði
Birgir Mikaclsson í leik í Bandaríkjunum.
Það voru Valsstúlkurnar sem
sigruðu í hinu áriega Bauta-
móti í knattspyrnu, en það er
kvennamót sem haldið hefur
verið undanfarin ár á Akur-
eyri.
Nú mættu 8 lið til leiks og léku
þau í tveimur riðlum. Var nokk-
ur eftirvænting ríkjandi að sjá
hvernig Akureyrarliðin KA og
t>ór kæmu út en þau leika nú sem
kunnugt er í 1. deild, en í öðrum
riðli en öll „sterku" liðin fyrir
sunnan.
Óhætt er að sá samanburður
var Akureyrarstúlkunum ekki
svo mikið í óhag. Pað er hins veg-
ar ljóst að þær skortir leikreynslu
því þær spila mun minna en
önnur lið t.d. á höfuðborgar-
svæðinu gera og reyndar óeðli-
lega lítið.
í úrslitaleik mótsins sigraði
Valur lið Akraness með 2:0. KA
og KR léku um 3. sætið og þar
hafði KA betur og vann 1:0. Þór
hreppti svo 6. sætið, en liðið tap-
aði fyrir ísafirði í úrslitaleik 0:2.
Birgir til
liðs við
Þórsara
Þórsarar hafa fengið góðan
liðsauka í körfuboltanum en
Birgir Mikaelsson hefur
ákveðið að stunda nám á Ak-
Úr leik Þórs og Vals í Bautamótinu.
ureyri í vetur og leika jafn-
framt með liðinu.
Birgir er ákaflega sterkur leik-
maður. Hann lék aðeins 16 ára
gamall með Úrvalsdeildarliði KR
og stóð sig afburðavel, en tvö sl.
keppnistímabil hefur hann verið
við nám í Bandaríkjunum þar
sem hann lék með skólaliði sínu
og stóð sig mjög vel. Er ekki vafi
á að koma hans í Þórsliðið mun
styrkja liðið verulega.
Ekki er vitað annað en að Þór
tefli fram öllum sínum sterkustu
mönnum frá síðasta keppnis-
tímabili. Eiríkur Sigurðsson sem
var skorinn upp vegna meiðsla í
hné í mars er að vísu ekki góður
ennþá en reiknar með að geta
farið að leika með ekki síðar en
um áramót. Eiríkur verður þó
ekki aðgerðarlaus, hann þjálfar
Þórsliðið og hefur þegar hafið
störf sem slíkur.
Þór á að eiga raunhæfa mögu-
leika á að ná langt í 1. deildinni í
vetur, því Birgir styrkir liðið
verulega. Hinir ungu leikmenn
Þórs hafa nú öðlast nokkra leik-
reynslu, nokkuð sem hefur háð
þeim lengst af og strákarnir sem
flestir hafa nú um 60 leiki að baki
ættu að spjara sig.
Önnur lið í 1. deildinni í vetur
verða ÍBK sem féll úr Úrvals-
deildinni sl. vor, Fram, UMFL,
UMFG og Reynir Sandgerði sem
komu upp úr 2. deild. Þó mun
eitthvað vera óvíst með hvort
UMFL teflir fram liði en nær allir
leikmenn liðsins sem voru við
nám á Laugarvatni í fyrra eru
farnir þaðan.
Strákunum
gekk illa
í úrslitunum
Úrslitin í íslandsmótum yngri
flokka í knattspyrnu fara fram
þessa dagana, og um helgina
var leikið til úrslita í 3. flokki,
4. flokki og í „polIamóti“ 5.
flokks.
I 3. flokki var Þór í úrslitum og
hafnaði liðið að lokum í 5. sæti.
Þór vann ÍK 2:0 og Fram með
sömu markatölu. Þór nægði því
jafntefli til þess að komast í úr-
slitaleik mótsins er liðið mætti
ÍBK en þá hrundi allt hjá liðinu.
ÍBK sigraði 4:1 og það varð til
þess að Fram fór í úrslitin á hag-
stæðari markatölu, ÍBK lék um
3. sætið en Þór um 5. sætið við
Hött frá Egilsstöðum og vann
Þór þann leik 8:2. KR varð
meistari í þessum flokki.
í 4. flokki var KA mætt til leiks
með lið sem hafði markatölu í
Norðurlandsriðli 40:0 og voru
nokkrar vonir bundnar við strák-
ana. Þeir unnu UMFG í fyrsta
leik 7:1, töpuðu þá fyrir KR 0:4
og Víkingi 1:3. KA lék því við Sel-
foss um 5. sætið og hafði sigúr
þar 4:2. Það sama háði þeir KA-
piltum í þessari keppni og svo
mörgum öðrum liðum af lands-
byggðinni, það vantar leikreynslu
og aftur leikreynslu, auk þess
sem heilladísirrtar voru ekki á
þeirra bandi.
Þór var með lið í úrslitum í a
og b flokki „Poilamóts" KSÍ og
Eimskips en það er jafnframt Is-
landsmót. Ekki gekk of vel hjá
Þórspiltunum, a-liðið hafnaði í 8.
sæti og b-liðið í 7. sæti.
Bautamótið:
Heimadómari
í aðalhlutverki
- þegar KA tapaði á Akranesi fyrir
íslandsmeisturunum
„Það er alveg sama
hvað þið eigið góðan
leik, þið vinnið ekki leik
ef dómarinn er svona á
móti vkkur eins og í
dag“!!
- Þessi orð sagði Sigurður
Halldórsson miðvörður Skaga-
manna eftir að Skagamennirnir
höfðu unnið 3:1 sigur á KA á
„Þaö er alltaf sama sagan með
Vopnfirðingana, þeir hafa tak
á okkur og fagna eins og þeir
hafl unnið deildina ef þeir ná
að vinna okkur,“ sagði Krist-
ján Olgeirsson þjálfari og leik-
maður Völsungs, en lið hans
tapaði 0:2 á Vopnafirði fyrir
Einherja um helgina.
Þar fóru dýrmæt stig hjá
Völsungum sem eru í toppbarátt-
unni, en Einherjar sem eru fallnir
í 3. deild eða svo gott sem og spil-
uðu afslappaðir fögnuðu sigri
ákaft. Völsungar voru sterkara
liðið í þessari viðureign, en bar-
átta andstæðinganna fleytti þeim
áfram til sigurs.
Staðan á toppi deildarinnar
breyttist lítið. Siglfirðingar
skutust jú upp að hlið Völsunga
með 1:1 jafntefli í fjörugum og
skemmtilegum leik á Siglufirði.
FH skoraði í fyrri hálfleik en Col-
in Tacker jafnaði úr vítaspyrnu í
síðari hálfleiknum. „Við erum
jú farnir að horfa á 1. deildina og
þær fréttir eru helstar héðan að
nú erum við að fara í fram-
kvæmdir við grasvöll sem verður
við Hól,“ sagði Karl Pálsson for-
maður KS er við ræddum við
hann um helgina.
Akranesi um helgina. Þetta eru
stór orð frá andstæðingi eftir leik,
en dómarinn Ragnar Orn Péturs-
son var svo sannarlega í sviðsljós-
inu á Akranesi á laugardag.
Það er ekkert ofsagt þegar það
er fullyrt að hann sleppti tveimur
augljósum vítaspyrnum á Skaga-
menn í leiknum. Varið var með
hendi á marklínu í annað skiptið
og í hitt skiptið var fótunum
kippt undan Hafþóri Kolbeins-
Víðir í Garði, sem hefur geng-
ið ákaflega vel að undanförnu,
tapaði nú heima fyrir Skallagrími
3:4 og staða efstu liðanna breytt-
ist því lítið. Tindastóll fékk slæm-
an skell á ísafirði, tapaði 7:0 og
fallið virðist vera staðreynd þar.
Þá var leik ÍBV og UMFN frest-
að vegna veðurs. - En staða efstu
liðanna er spennandi eins og sést
á töflunni hér að neðan.
Staðan
Staðan í 2. deild íslandsmótsins eft
ir leiki helgarinnar er þessi:
KS - FH 1:1
Einherji - Völsungur 2:0
ÍBÍ - Tindastóll 7:0
Víðir - Skallagrímur 3:4
ÍBV 4 UMFN frestað
FH 14 9 4 1 29:13 31
Víðir 14 7 3 4 27:21 24
Siglufj. 14 6 5 3 19:15 23
Völsungur 14 7 2 5 20:19 23
UMFN 13 6 3 4 16:12 21
ÍBÍ 14 5 5 4 26:19 20
Skallagr. 14 6 2 6 24:21 20
ÍBV 13 4 4 5 17:21 16
Tindastóll 14 2 2 10 13:35 8
Einherji 14 1 2 11 10:25 5
syni á markteig, hann með bolt-
ann og autt markið fyrir framan
sig. Og punkturinn yfir i-ið var er
Sveinbjörn Hákonarson skoraði
þriðja mark Skagamanna með
því að ieggja boltann fyrir sig á
áberandi hátt með hendinni.
Við þetta réðu KA-menn að
sjálfsögðu ekki, nóg er að eiga
við íslandsmeistarana á þeirra
heimavelli þótt dómarinn sé ekki
12. maður í liði þeirra. En, KA-
menn voru lengst af betri aðilinn
í þessum leik, í síðari hálfleik
yfirspiluðu þeir meistarana á hin-
um lélega grasvelli þeirra. En
það eru mörkin sem ráða eins og
fyrri daginn.
Skagamenn skoruðu tvö þau
fyrstu í fyrri hálfleik. Guðbjörn
Tryggvason það fyrra og Svein-
björn Hákonarson hið síðara.
Steingrímur Birgisson minnkaði
svo muninn strax á upphafs-
mínútum síðari hálfleiks og það
lá í loftinu að KA myndi jafna
metin, enda mun betra lið. En
heimadómari í aðalhlutverki sá
við því og „halaði“ inn 3 stig með
meisturunum.
„Við áttum mjög góðan dag,“
sagði Gústaf Baldvinsson þjálfari
KA. Dæmið er ekki búið hjá
okkur, við eigum þrjá leiki eftir
og við stefnum að því að halda
sæti okkar, það er öruggt.“
Staðan
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir leiki helgarinnar:
Vkranes - KA 3:1
Fram - ÍBK 1:0
Akranes 14 11 1 2 27:13 33
ÍBK 15 8 3 4 18:14 27
Valur 14 5 5 4 19:14 20
Þróttur 14 4 7 3 14:12 19
KR 14 4 6 4 15:20 18
Víkingur 13 4 5 4 21:20 17
Fram 15 4 3 8 15:10 15
Þór 14 4 3 7 19:21 15
Breiðablik 14 2 7 5 13:16 13
KA 15 3 4 8 20:32 13
Þór-KR á Akureyrarvelli kl. 19 í
kvöld og á sama tíma leika Þróttur
og Valur. Síðasti leikur 15. umferð-
ar verður svo á morgun en þá leika
Breiðablik og Víkingur.
2. deild - 2. deild:
Spennan eykst
á toppnum
V,,
„Þessir gaurar, þurfa þrjá bráðabana um 2. sætið,“ gæti Sverrir Þorvaldsson verið að hugsa þar sem hann situr sæll og kátur á milli
Skúla Skúlasonar og Viðars Þorsteinssonar.
Hart barist um
efstu sætin
- á Ingimundarmótinu í golfi um helgina
Nokkuð er umliðið síðan jafn mikil
keppni hefur átt sér stað í golfmóti
á Akureyri og var um helgina er
Minningarmótinu um Ingimund
Árnason var að Ijúka. Þar börðust
margir menn um efstu sætin, enda
til nokkurs að vinna sem voru
glæsileg verðlaun gefin af Kaupfé-
lagi Eyfirðinga og aukaverðlaun
gefín af Vangi hf. í Reykjavík.
Eftir fyrri dag keppninnar voru þeir
jafnir Skúli Skúlason GH og Sverrir
Þorvaldsson GA á 75 höggum. En
fleiri voru inni í myndinni, þannig að
á síðustu holunum var hart barist um
efstu sætin. Svo fór að Sverrir Þor-
valdsson reyndist hlutskarpastur en
hann lék 36 holurnar á 157 höggum.
Þeir Skúli og Viðar Þorsteinsson
GA léku báðir á 158 höggum eða einu
höggi meira en Sverrir og þurftu því
að leika „bráðabana" um 2. sætið, og
fór hann fram á 18. holu.
Upphafsskot þeirra voru bæði of
löng þannig að kúlurnar lágu í sandi
fyrir aftan flötina og báðir léku þeir
holuna á 5 höggum. í annað skipti
töltu þeir á teig og nú voru upphafs-
höggin of stutt. Báðir björguðu sér
hins vegar á parinu og máttu þeir því
fara í 3. skiptið. Þá loksins gekk dæm-
ið upp, Skúli vann og fékk 2. sætið en
Viðar Þorsteinsson mátti gera sér 3.
sætið að góðu.
í keppni með forgjöf sigraði hinn
eldsnöggi og lipri kylfingur Baldvin
Ólafsson, en Baldvin æðir niður for-
gjafartöfluna þessa dagana. Þessi eld-
snöggi kylfingur lék á 139 höggum
nettó. Þar varð Bessi Gunnarsson í 2.
sæti á 141 höggi og í 3. sæti Kristján
Gylfason á 142 höggum.
Sem fyrr sagði voru aðalverðlaun
gefin af Kaupfélagi Eyfirðinga, en
Ingimundur Arnason sem mótið er
haldið til minningar um var starfsmað-
ur KEA síðustu ár sín og mjög virkur
kylfingur eins og flestir vita sem
eitthvað hafa fylgst með íþróttum. Þá
gaf Vangur hf. aukaverðlaun, og voru
það m.a. ferð á mót í Reykjavík sem
fyrirtækið gefur verðlaun til.
Þátttaka í mótinu var minni en oft
áður, og kemur þar til sú furðulega
ákvörðun að setja þrjú opin mót á
þessa helgi fyrir sunnan. Eru félagar í
GA að vonum óhressir með slíkt.
Þórsarar
gegn KR!
Þórsarar mæta KR-ingum á
Akureyrarvelli í kvöld kl. 19
og er ekki aö efa að þar verður
hart barist um þau þrjú stig
sem í boði eru fyrir sigurvegara
leiksins.
Þórsarar hafa án efa fullan hug
á að fylgja eftir sannfærandi sigri
sínum gegn Fram í síðustu viku,
og ætli svipað sé ekki upp á ten-
ingnum hjá KR sem vann KA í
síðustu umferð. KR-ingar eru
komnir af mesta fallhættusvæð-
inu í bili a.m.k. en Þórsarar sem
eru með 15 stig þurfa nauðsyn-
lega að knýja fram sigur í kvöld
til þess að tryggja stöðu sína enn
betur en nú er.
Það er víst óhætt að lofa
hörkuleik í kvöld, og eitt er víst
að leikmenn liðanna gefa ekkert
eftir enda getur hver leikur ráðið
úrslitum um það hvaða lið falla í
2. deild.
Verðlaunahafar í Ragnarsmótinu með hin glæsilegu verðlaun sín og hstamannmn
sjálfan í miðjum hópnum.
Ragnarsmótið í golfi:
Inga var
langbest
Inga Magnúsdóttir var í nokkrum
sérflokki í Ragnarsmótinu sem
haldið var hjá Golfklúbbi Akureyr-
ar, en það er opið mót sem Ragnar
Lár myndlistarmaður gefur verð-
laun til.
Inga lék strax í upphafi 9 fyrstu hol-
urnar á 38 höggum, og þá var ljóst
hvert stefndi. Samtals lék hún 36 hol-
urnar á 168 höggum. Hörð keppni
varð um 2. sætið á milli Jónínu Páls-
dóttur og Þórdísar Geirsdóttur GK og
fór svo að Þórdís sigldi fram úr. Hún
lék á 177 höggum en Jónína 184.
Sömu konur gátu ekki fengið verð-
laun með forgjöf. Þar sigraði því Rósa
Pálsdóttir GA á 172 nettó, önnur Pat
Jónsson GA á 177 og þriðja Ása
Bjarnadóttir GÓ á 194 höggum.
Þetta mun hafa verið 6. Ragnars-
mótið og jafnframt það síðasta, og
voru Ragnari Lár færðar þakkir
klúbbsins við verðlaunaafhendineu.