Dagur - 20.08.1984, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 20. ágúst 1984
• Sigurður Hlöðversson: „góö saia í ár.“
„Ekki
alkalí-
skemmdir
í okkar
húsum“
— segir Sigurður
Hlöðversson, tæknifræðingur Húseini
„Fyrirtækið var stofnað
1972 og er því orðið 12
ára gamalt. Ætli við
séum ekki búnir að selja
um 400 hús um allt
Iand.“ Það er Sigurður
Hlöðversson, tækni-
fræðingur hjá Húsein-
ingum hf. á Siglufirði
sem svo mælir. Húsein-
ingar framleiða hin
svokölluðu Siglufjarð-
arhús sem eru orðin
þekkt um allt land. Sig-
urður var fyrst spurður
hvort salan hafí verið
góð í ár.
„Já, eftirspurn og sala í ár hef-
ur verið góð. Við erum búnir að
framleiða um 50 hús það sem af
er árinu.“
- Er jöfn sala um allt land?
„Það fer nú mest til Reykjavík-
ur, eins og eðlilegt er. Við höfum
stílað upp á að selja um allt land
og það eru hús frá okkur um allt
land, það er helst að við þyrftum
að selja meira á Suðurlandinu.“
- Er það unga fólkið sem
kaupir þessi hús frekar?
„Já, þetta er mest ungt fólk.
Þessi byggingarmáti er ódýrari en
sá hefðbundni. Sá hluti sem við
framleiðum er 20-25% ódýrari
og það er 50-60% af heildarverði
- Hvað tekur langan tíma að
reisa húsin?
„Það er mjög fljótlegt, það fer
þó eitthvað eftir stærð. Einlyft
hús tekur um 5-10 daga að reisa,
en það tekur aðeins lengri tíma
að reisa tvílyftu húsin.“
- Hvaða hús eru vinsælust
núna?
„Hæð og ris selst mest núna.“
- Hvernig er greiðslukjörum
háttað?
„Ég held að það megi segja að
við bjóðum góð greiðslukjör.
Það eru 30% við afhendingu og
hægt er að ávísa á okkur hús-
næðismálastjórnarláni og eftir-
stöðvarnar greiðast svo á 18 mán-
uðum.“
- Framleiðið þið fleira en
íbúðarhús?
„Já, við erum líka með sumar-
bústaði og notum sömu einingar
í þá. Við höfum hins vegar lítið
einbeitt okkur að þeim, þeir eru
mjög vandaðir, vandaðri en sum-
arbústaðir eru almennt og við
erum því í dýrari kantinum.“
- Hvað vinnur margt fólk hjá
Húseiningum?
„Það vinna hérna um 30
manns, utan við þá sem setja upp
húsin."
- En reksturinn, gengur hann
vel?
„Ég held að hann gangi ágæt-
lega, það vantar auðvitað alltaf
aura. Við finnum fyrir því að fólk
á erfiðara með að borga núna.
Það er róleg fasteignasala í
Reykjavík og það hefur áhrif á
greiðslur til okkar, við seljum
mest til Reykjavíkur," sagði Sig-
urður að lokum. - HJS
Tveir starfsmanna Húseininga eitthvað að bræða með sér.
hússins. í heildina sparast því
12-15% með því að kaupa hús af
okkur."
- Eru þessi hús jafn góð og
steinhús?
„Já, þau eru alveg jafn góð og
það eru ekki alkalískemmdir í
okkar húsum. Við erum með
mjög vandað og gott efni, við
flytjum allt efni beint inn, timbur
og plötur frá Noregi. Það er
mestallt okkar efni frá Noregi,
þó er eitthvað af krossviðar-
plötum keypt frá Bandaríkjun-
um. Timbrið sem við erum með
er þrýstifúavarið og það er viður-
kenndasta aðferð til fúavarnar
sem þekkist í dag. Aðferðin er í
grófum dráttum þannig að timbr-
ið er sett inn í lokaðan járn-
geymi, loftinu dælt út, þannig að
myndaður er mikill undirþrýst-
ingur. Síðan er gufumettuðum
fúavarnarefnum hleypt inn og
þrýstist það inn í hverja æð í
viðnum. Sem dæmi um gæði
þessarar fúavarnar má nefna að
við lagningu járnbrauta er þessi
fúavarnaraðferð notuð á tré-
staura undir járnbrautarteinana.
Efnið kemur til okkar á skipi og
við vinnum svo einingarnar
hérna, setjum í glugga og slíkt.
Allir gluggar eru úr harðviði."
- Þarf kaupandinn ekkert að
gera sjálfur, flytjið þið efnið á
staðinn og sjáið um allt?
„Það er tvennt í því, við getum
flutt efnið á staðinn og eins getur
kaupandinn séð um það sjálfur.
Við erum með menn um allt land
til að setja upp húsin og eins fara
menn héðan frá Siglufirði til að
setja upp. Við seljum húsin á
þremur byggingarstigum, þá get-
ur kaupandinn ráðið hvað hann
vill vinna mikið í húsinu sjálfur.
Á fyrsta byggingarstigi er húsið
fokhelt að viðbættum útihurðum,
frágengnu tvöföldu gleri í
gluggum, þaksperrum, þak-
klæðningu og bárujárni. Frá-
gengnar þakbrúnir, kantar og
þakrennur með niðurföllum.
Húsið er þannig fullfrágengið að
utan á þessu byggingarstigi. Þessi
byggingarhluti er afgreiddur í
einu lagi frá verksmiðju og kemst
fyrir á einum flutningabíl með aft-
anívagni.
Á öðru byggingarstigi bætist
við glerullareinangrun á útveggi,
klæðning og rakavarnarlag á út-
veggi. Einnig áfellur á glugga.
A þriðja byggingarstigi bætast
við milliveggir, innihurðir og
karmar. Þá bætist við loftklæðn-
ing og einangrun í loft og ef húsið
er tvílyft fylgir stigi milli hæða.
Á þriðja byggingarstigi er húsið
tilbúið undir tréverk og málningu
og það er algengast að húsin séu
tekin þannig.“
Framleiðslan er öll mjög vönduð. Þessi hurð á eftir að prýða eitthvert húsið.