Dagur - 20.08.1984, Qupperneq 11
Magnús Þorvaldsson:
„Allir eru sam-
mála um að
aðgerða er þörf“
Ofurlítið innlegg í atvinnu-
málaumræðu bæjarins og Eyja-
fjarðar. Svo virðist sem tími
hnignunar og stöðvunar sé upp-
runninn á ný í velflestum sveitar-
féiögum landsins með greiðslu-
þrot einstakiinga og fyrirtækja
sem fylgifisk. Þannig hafa at-
vinnumál verið mjög til umræðu
undangengna daga og vikur hér
á Akureyri og þó ekki séu allir á
eitt sáttir hvað gjöra skuli til að
skjóta frekari stoðum undir at-
vinnulíf höfuðstaðar Norður-
lands eru þó allir sammála um að
aðgerða er þörf - og það skjótra.
Akureyri hefur til skamms
tíma verið sá staður á landi voru
■þar sem atvinna hefur verið hvað
öruggust, hér urðu minni og
ógreinilegri sveiflur en víðast
hvar annars staðar, uppbyggingin
var jöfn og markviss. Hér var
óneitanlega öflugastur iðnaður
landsins. íbúar staðarins undu
glaðir við sitt, rómuðu bæinn sinn
og veðrið, óku gjarnan um sveit-
ina og þóttust yfirleitt fullvissir
um að hvergi væri betra að búa.
Enn er það svo að fólk rómar
veðursældina, ástæðan hefur
raunar verið ærin í sumar, en
óveðursský hafa hrannast upp í
atvinnumálum iðnaðarbæjarins
og þau svo mikil að sérfræðingar
hafa í alvöru reynt að finna ein-
hverjar haldbærar lausnir. Svo er
okkur a.m.k. tjáð.
Óhætt er að segja að vandi sá
er við okkur blasir sé öldungis
ekki nýtilkominn heldur hafi
stefnt í óefni þegar fyrir nokkrum
árum en nú sitjum við sem sagt
uppi með uppsafnaðan vandann.
Ekki er laust við að mikið hafi
verið rætt og ritað, loforð jafnve;
gefin þótt minna hafi orðið úr
efndum. Stjórnarherrar hafa
komið í heimsókn í fagurt hérað-
ið ásamt fríðu þingmannaliði og
allir hafa þeir andaktugir lýst yfir
áhyggjum sínum en úrræðaleysið
eiga þeir flestir sammerkt.
Fyrir hartnær 14 árum lauk
ferli sínum hin svonefnda Við-
reisnarstjórn íhalds og Alþýðu-
flokks. Flokkarnir gáfu út bækl-
ing einn myndarlegan, Viðreisn,
en þar gat að lesa m.a. að stjórn-
in teldi „það höfuðverkefni sitt
að koma atvinnulífí þjóðarinnar
á traustari og heilbrigðan
grundvöll*-. Svo vel tókst þeim til
við stjórnunina að ástand efna-
hagsmála varð slíkt, að það ors-
akaði stórfclldan landflótta. í
Reykjavík einni saman urðu at-
vinnuleysingjar um 1.300, lands-
byggðin nánast í rústum. Það er
annars hálf nöturleg staðreynd
þegar íbúar okkar lands telja sig
betur komna í öðru landi en hér
heima því heima er jú alltaf
best . . . Á þessum árum voru
við völd stjórnarherrar er vildu
láta kalla sig ábyrga og höfðu
uppi stóriðjuáform, þar lægi
framtíð þjóðarinnar en höfuðat-
vinnuvegi þjóðarinnar létu þeir
lönd og leið. Samþjöppun fólks
á SV-horninu var álitin ein af
frumforsendum vænlegrar fram-
tíðar þó svo að 70% gjaldeyris-
tekna kæmu frá landsbyggðinni.
Það var svo þjóðinni og ekki
síður landsbyggðinni til happs,
að við völdum tók stjórn er setti
endurreisn landsbyggðarinnar á
oddinn. Svo skörulega var gengið
fram að íbúum tók að fjölga í
byggðakjörnum um land allt,
afturför snúið í sókn og bjartsýni
ríkti. Var svo um allmörg ár að
landsbyggðinni óx ásmegin við
höfuðborgarsvæðið og þó ekki
hafi allar fjárfestingar skilað sér
var stórt skref stigið eftir aftur-
farartímabil „Viðreisnar“.
Nú höfum við haft við völd á
annað ár ríkisstjórn íhalds og
Framsóknar og get ég ekki betur
séð en að sinnuleysi gagnvart
landsbyggðinni er einkenndi
stjórnartíð „Viðreisnar" sé eitt af
höfuðeinkennum þessarar. For-
ystumenn stjórnarinnar slá á út-
Magnús Þorvaldsson.
rétta hönd landsbyggðarfólks eft-
ir aðstoð við að rétta við atvinnu-
líf þess, skammtímagróði sam-
kvæmt kenningum Friedmanns á
hér ekki við. Það mun ljóst vera,
að markaðshyggjan stýrir hönd-
um þessarar ríkisstjórnar, versl-
unar- og þjónustufyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu þenjast út
sem aldrei fyrr meðan stöðnunin
er algjör utan þess svæðis.
Skyldur Framsóknar við undir-
stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar
eru gleymdar og samvinnuhug-
sjónin einungis hjóm eitt. Lausn-
arorð ríkisstjórnarinnar er líkt og
hjá „Viðreisn", stóriðja. Ráð-
herrar eru ósparir á lofyrði beri
stóriðju á góma en gera minna úr
gildi undirstöðuatvinnuveganna,
landbúnaðar og útvegs.
Öllum má ljóst vera að stjórn-
völd hreyfa ekki svo mikið sem
litla fingri okkur til hjálpar svo
lengi sem við höfum ekki frum-
kvæði í málefnum okkar sjálf. Ég
hef að vísu heyrt og lesið að Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar hafi
komið fram með ýmsar ágætlega
frambærilegar tillögur, jafnvel
hafi félagið gerst aðili að nýjum
fyrirtækjum og er það vel. Fisk-
eldi, lífefnaiðnaður og rafeinda-
iðnaður er nokkuð sem rætt hef-
ur verið og á án alls efa bjarta
framtíð. Hins vegar hefur það
farið fyrir ofan garð og neðan
hjá mér hvað Atvinnumálanefnd
Akureyrar hefur lagt af mörkum
í undangenginni atvinnuumræðu.
Raunar hafa forystumenn nefnd-
arinnar hrópað hátt á málmverið
vesturheimska, verið jafnvel með
gífuryrði í garð þeirra er hafna
málmveri alfarið í gjöfulustu
sveit landsins. Ég dreg því þá
ályktun að þeir hafi þegar gefið
sér hvað muni vera álitlegasti
kosturinn. Þessir ágætu menn eru
því já-bræður stjórnarherranna.
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður lagði fram ákaflega
merkilegt frumvarp á síðasta
þingi þar sem Akureyri skuli vera
miðstöð lífefnaiðnaðar. Þrátt fyr-
ir þessa gagnmerku tillögu
Steingríms virðist sem Norðlend-
ingar hafi fremur duglitla þing-
menn ef ræðutími þeirra á þingi
og ferðir í pontu er einhver mæli-
kvarði á virkni þeirra og áhuga
fyrir málefnum umbjóðenda
sinna. Samkvæmt nýlegri könnun
DV vermdu þingmenn vorir
nefnilega botnsætið.
Á meðan hártogun um málm-
verið fer fram gleymist að líta sér
nær, hlúa að því sem við höfum.
Við skulum vera þess minnug að
hér eru mörg af leiðandi fyrir-
tækjum landsins, má þar til nefna
Slippstöðina, Verksmiðjur SÍS,
Útgerðarfélag Akureyringa og
Niðursuðuverksmiðju K.Jóns-
sonar. Ég hef það fyrir satt að
flest þessi fyrirtæki gætu bætt við
sig verulegum fjölda fólks væri
farið út í úrvinnslu á fullunnum
matvælum ásamt ullar- og
skinnavöru. Aukin markaðsleit
og stórbætt sölumennska myndu
án efa vera okkur til góðs. Það
virðist hafa framhjá flestum farið
að við bæjardyr okkar höfum við
slíka hugvitsmenn að undrun
sætir. DNG kalla þeir fyrirtækið
sitt og án alls lúðrablástrar hefur
starfsmönnum þess tekist að
leysa úr flóknum vandamálum.
Ég harma það að aðstandendur
fyrirtækisins skuli hafa mætt fá-
heyrðu skilningsleysi yfirmanna
peningavaldsins í bænum svo við
getum alveg eins búist við að
þessir snjöllu menn sjái sig til-
neydda að hverfa héðan á braut
þangað sem þeim eru búin viðun-
andi kjör. Slíkt má vitanlega
aldrei henda, hafi þjóðin efni á
að fjárfesta í óarðbærum glæsi-
höllum á borð við flugstöðina og
Seðlabankann eða í álveri (-um)
hefur hún efni á að fjárfesta í ís-
lensku hugviti.
„Ekkert hérað haganlegri
höfuðstað sér kaus og hlaut“ seg-
ir síra Matthías á einum stað. Sé
það vilji okkar er í eða við þenn-
an haganlega höfuðstað búum að
hefja hann til viðunandi vegs á
ný skulum við flýta okkur hægt í
málmversmálum en beina atorku
og hugviti á aðrar og heillavæn-
legri brautir. Margir óttast að
forysta sú er Akureyri hefur haft
í iðnaðarmálum kunni nú að vera
í hættu, það er efalítið rétt en ál-
ver leysir ekki þann vanda, eykur
hann ef eitthvað er. Eflum ís-
lenska atvinnuvegi, hugvit og
tækni, án álvers.
Magnús Þorvaldsson.
PASSAMYNDIR
TILBÚNAR^
STRAX
TEIKNISTOFAN sl.
Útboð
Framkvæmdanefnd verkalýðsfélaganna á Akur-
eyri óskar eftir tilboðum í innanhússfrágang á
húsi sínu Skipagötu 14 Akureyri.
Um er að ræða smíði og uppsetningu veggja,
uppsetningu lofta, smíði fastra innréttinga ásamt
frágangi gólfa, raflagna og ýmissa frágangs-
atriða.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni s.f.
Glerárgötu 34 Akureyri gegn 5.000,- kr. skila-
tryggingu frá og með mánudeginum 20. ágúst
1984 kl. 16.00.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn
31. ágúst 1984 kl. 14.00.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Kennarafundur
Almennur kennarafundur verður haldinn í húsi
tæknisviðs. við Þórunnarstræti fimmtudaginn 23.
ágúst kl. 17.00.
Skólameistari.
Þjónustufyrirtæki á Akureyri
óskar að ráða
starfsmann
sem fyrst til afgreiðslu-, innheimtu- og skrifstofu-
starfa. Þarf að hafa bíl.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 24.
ágúst nk.
Heilsugæslustöð
LU Ólafsfjarðar
HJúkrunarfræðing
og sjúkraliða
vantar að dvalar- og sjúkradeild Hornbrekku
Ólafsfirði.
Uppl. gefur forstöðumaður í síma 96-62480.
SAMBANO ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉIAEA
lónaðardeild • Akureyri
Framtíðarstarf
Iðnaðardeild Sambandsins skinnaiðnaður, Akur-
eyri leitar að manni með góða þekkingu í efna-
fræði.
Háskólapróf æskilegt.
Starfssvið: Vinna að vöruþróun og vinnueftirliti.
í boði er þátttaka í uppbyggingu íslensks leðurs-
og skinnaiðnaðar. Þátttaka í námskeiðum og
starfsþjálfun.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra, Glerárgötu
28, 600 Akureyri fyrir 15. sept. nk. og veitir hann
allar nánari upplýsingar, sími 96-21900.
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Simi (96)21900