Dagur - 27.08.1984, Blaðsíða 11
27. ágúst 1984 - DAGUR - 11
Stefnu-
mót við
óvissuna
Héraðsfundur
Eyjafjaröarprófastsdæmis veröur haldinn
sunnudaginn 2. september á Akureyri og mánu-
daginn 3. september í Svarfaðardal og Dalvík.
Sjá fréttatilkynningu í blaðinu.
i
Prófastur.
V_____________________________________________________,
- eftir Jerzy Kosinsky
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér
skáldsöguna Stefnumót við
óvissuna eftir höfundinn al-
kunna Jerzy Kosinski. Þýð-
andi er Franz Gíslason.
Þetta er þriðja skáldsagan sem
kemur út eftir Kosinski á ís-
lensku, en hinar sem á undan eru
komnar eru Skræpótti fuglinn og
Fram í sviðsljósið og kom sú
síðarnefnda út hjá bóka-
klúbbnum 1981. Eftir þeirri sögu
var gerð kvikmynd sem varð
mjög fræg og var sýnd hér lengi
árið 1982 - ein af síðustu mynd-
um Peters Sellers.
Kosinski er einn af víðlesnustu
höfundum samtímans, enda eru
skáldsögur hans í fyllsta máta
sérkennilegar og bera svip af
hans sérstæðu ævi, sem er í senn
hryllileg, undarleg og ævintýra-
leg. Kosinski hefur í fáum orðum
sagt brotist úr „hræðilegri niður-
lægingu bernskuáranna gegnum
undarlega röð atvika til þess að
verða prinsinn sem kvæntist
prinsessunni og erfði ríkið“ eins
og komist er að orði um hann í
Fréttabréfi bókaklúbbsins.
Pessi saga Kosinskis sem nú
kemur út, Stefnumót við óviss-
una heitir á frummálinu Blind
date. Hún er að einhverju leyti
sjálfsævisaga rakin í þáttum. Hún
hefst á Val Pina, vinsælu
skíðahóteli í Sviss og síðan er far-
ið aftur í tímann, æskuár austur í
Rússlandi, flótti, furðuleg atvika-
keðja á Vesturlöndum. Hér er
lýst bæði fögrum og ógeðfelldum
viðburðum, hvergi dregið undan,
en „frásögnin einkennist þó oft-
ast af mjög mennskri hlýju,
glettni og gáska sem einatt getur
orðið að bitrasta háði“, eins og
þýðandinn Franz Gíslason kemst
að orði í eftirmála.
Sjálfsagt er þessi bók eins kon-
ar þverskurður af okkar sér-
kennilegu tímum og þeim ótelj-
andi þversögnum sem hvarvetna
gætir.
Stefnumót við óvissuna er 264
bls. að stærð og unnin í Prent-
smiðju G. Benediktssonar og
Félagsbókbandinu.
NORRÆNA
SUNDKEPPNIN
1984
Hefurðu synt
200 metrana?
Utvegsmenn
Norðurlandi
Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til
fundar laugardaginn 1. sept. nk. kl. 13.30 í
Sjallanum (Mánasal).
Fundarefni: Staða útgerðar í dag.
Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson kemur á fundinn.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
AKUREYRARBÆR
Sveitaheimili
óskast
í nánd við skóla, til að taka að sér gegn greiðslu
átta ára dreng í eitt til tvö ár vegna erfiðra heim-
ilisástæðna.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri í síma 96-
25880.
Félagsmálastjóri Akureyrarbæjar.
Félagsmálastofnun Akureyrar,
Strandgötu 19b,
600 Akureyri.
Full buð af vetrarefnum
ítískulitunum
;;%llarcftii, sainstæð í
eiiilifti, köilottu röndóttu.
llllareíuí meö (isklieinamunstri.
'I veed-elni í hiiyur og dragtir.
IVIvnstraö llon^|tí&örgiiin litiiin.
Slétt MKelúr,
* einnijí með slönguúferö.
Slétt <)» röndótt jersey í kjóla.
Prjónaefni í peysur.
Finim gerðir af tvíofínni hóniull
í holi og peysur.
Stór scnding af smávöru nýkomin.
Vekjum athygli á
gluggaútstillingum okkar
vemman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Aðalfundur
Melgerðismela s.f.
verður haldinn þriðjudaginn 28. ágúst kl. 8.30 e.h.
í Lundarskóla.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Melgerðismelastjórn.
Til leigu í Reykjavík
Til leigu nú þegar, er lítið einbýlishús, rétt við
Reykjavík, 50 fm stærð. Leigist skólafólki til maí
1985. ( húsinu er rafmagn, heitt og kalt vatn auk
síma.
Tilboð sem greini frá fjölskyldustærð sendist strax
í pósthólf 10066 130 Reykjavík.
Verkmenntaskólinn
á Akureyri
hússtjórnarsvið
auglýsir eftirfarandi námskeið.
a) Stutt námskeið í meðferð grænmetis og berja.
Námskeiðið verður í byrjun september.
b) Stutt námskeið í meðferð haustmatar.
Námskeiðið verður eftir miðjan september.
c) Allan veturinn, eftir því sem tími og aðsókn
leyfa: Stutt námskeið í glóðarsteikingu, ger-
bakstri, smáréttum og pottréttum, smurðu
brauði og brauðréttum.
d) Matsveina- og hússtjórnarnámskeið, sem
gefa réttindi að hluta til.
e) Dagnámskeið í vefnaði.
f) Námskeið í fatasaumi, dag- og kvöldnám-
skeið.
g) Hnýtinganámskeið.
h) Postulínsnámskeið.
Upplýsingar og innritun í síma 26809 kl. 10-
12 dagana 27.-31. ágúst.
Kennslustjóri.
Óska að ráða
kliníkdömu
til starfa á tannlæknastofu mína frá 1. sept.
Uppl. í síma 21223 á þriðjudag frá kl. 15-17 og á
miðvikudag frá kl. 13-16.
Hörður Þórleifsson, tannlæknir.
Iðnaðarbankinn óskar eftir
að ráða vanan
gagnaskráaritara
sem fyrst
Um heilsdagsstarf er að ræða.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni.
FELLhf. Kaupvangsstraeti 4 -Akureyri - simi 25455
RAÐNINGARÞJONUSTA