Dagur - 10.09.1984, Síða 1

Dagur - 10.09.1984, Síða 1
“p-í J J jr W////// V/S//7'///Æ V//J Litmynda- framköllun P»H MUrn.sm 103. tölublai 67.árgangur Akureyri, mánudagur 10. september 1984 GULLSMIDIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Verða verkföll? Allt útlit fyrir að línur skýrist í samningamálum í vikunni „Maöur heldur svo lengi í vonina sem hægt er, að ekki komi til verkfalla, en samningaviðræður hafa verið með þeim hætti að lítil von er um viðunandi samninga með öðrum hætti,“ sagði Krístín Hjálmarsdóttir, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur- eyri, aðspurð um hvort útlit væri fyrir verkfall hjá félaginu. Þegar þetta er skrifað er allt útlit fyrir að verkfall prentara skelli á að- faranótt mánudags og fleiri laun- þegafélög hafa hugsað sér til hreyf- ings. Á mánudag heldur sambands- stjórn Verkamannasambandsins fund, þar sem spilin verða lögð á borðið. Búist er við að á þeim fundi verið samþykkt áskorun til aðildar- félaga sambandsins að afla sér verk- fallsheimildar. Vinnuveitendur þinga jafnframt í dag og líkur eru til þess að þeir samþykki hliðstæða áskorun til sinna félaga um að afla sér verk- bannsheimildar.Að sögn Kristínar hefur lítið sem ekkert þokast í sam- komulagsátt á þeim fáu samninga- fundum sem haldnir hafa verið og sömu sögu sagði Jón Helgason, for- maður Einingar. Stjórn og trúnaðar- mannaráð Iðju ætlaði að afla sér verkfallsheimildar um helgina og Kristín taldi líklegt að ákvörðun um verkfall eða ekki verkfall verði tekin í lok vikunnar með hliðsjón af stöðu samningamála. „Mér sýnist allt benda í þá átt að til verkfalla komi, ef menn vilja fylgja eftir þeim kröfum sem lagðar hafa verið fram. Það hefur engin hreyfing verið á vinnuveitendum í átt til að mæta okkar kröfugerð. En ég hygg að þessi mál skýrist að aflokn- um fundi sambandsstjórnar Verka- mannasambandsins á mánudaginn og mér þætti ekkert ótrúlegt að það komi fram tillaga um að félögin afli sér verkfallsheimildar. Það ætti því að liggja ljóst fyrir í lok vikunnar hvernig þessi mál þróast,“ sagði Jón Helgason. -GS. Það var ekki stressið sem hrjáði trillukarlanna á þeesu góðviðriskvöldi í fyrri viku. Og reyndar virðist sem æðarkollu líka — ekkert verkfall hja þeim... SH setti fram kröfu um að fá að selja afurðirnar! - Annars verði fyrirtækið ekki aðili að laxeldi í Úlafsfirði Enn er allt á huldu hvemig staðið verður að stofnun félags um fislteldi í Ólafsfjarðarvatni. Á stofnfundi þar á dögunum kom fram ósk frá Veiðifélagi Ólafsfjarðarár um að fresta fundinum og var það gert. Ástæðan fyrir þessari beiðni var sú að ætlunin hafði verið að veiðifélagið ætti 20% hlutafjár, og talað var um að hlutafé yrði 5 milljónir króna. Fyrir stofnfund- inn höfðu fengist hlutafjárloforð fyrir 3,7 milljónum króna en á stofnfundinum komu fram hluta- fjárloforð fyrir rúmlega 6 millj- ónum króna til viðbótar. Var þá orðið ljóst að veiðifélagið gat ekki átt 20% nema auka verulega framlag sitt. Því var fundi frestað og kosin nefnd til þess að vinna að frekari framgangi málsins. „Ég gæti trúað því að einhverj- ir sem voru búnir að skrifa sig fyrir hlutafé vilji ekki vera með þegar á reynir, miðað við þær forsendur sem veiðifélagið legg- ur á borðið, að það eigi 20% hlutafjárins," sagði Valtýr Sig- urbjarnarson bæjarstjóri á Ólafs- firði er við ræddum við hann, en Valtýr er formaður nefndarinnar. „Veiðifélagið stendur fast á því að það komi til með að eiga 20%, Sambandsfyrirtækin 40% og aðrir aðilar 40%. Það hefur hins vegar ekki verið neglt niður ennþá hvað menn hugsa sér að heildarhlutafé verði mikið. Það hefur verið ákveðið að skrifa öllum þeim sem hafa lagt fram hlutafjárloforð. Þessum aðilum verður þá gefinn kostur á því að skrifa sig fyrir hlutafé á þeim forsendum að veiðifélagið eigi 20%. Við verðum svo bara að sjá hvernig þessu reiðir af,“ sagði Valtýr. „Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna sem hefur gefið 1,5 milljón króna hlutafjárloforð eða um 15% hefur nú sett fram kröfu um að fyrirtækið fái að annast sölu á öllum afurðum félagsins. Sú krafa var ekki lögð fram þegar þeir skrifuðu sig fyrir hlutafé en samkvæmt hlutafjárlögum á að taka það fram í stofnsamningi ef einhverju hlutafé fylgja sérrétt- indi eða kvaðir. Eyjólfur ísfeld hjá sölumiðstöðinni sagði á fundi hér að þeir gerðu þetta að skil- yrði fyrir aðild sinni að fyrirtæk- inu. Það á eftir að funda um þessa kröfu en ég tel hæpið að gengið verði að henni,“ sagði Valtýr. gk-.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.