Dagur - 19.12.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 19. desember 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBVRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ferða- og
samgöngumál
Vegna hins óvenjulega háa hlutfalls milliríkja-
verslunar í ráðstöfun þjóðartekna á íslandi ber
brýna nauðsyn til að þróa fyrst og fremst þær
þjónustugreinar, sem gætu skilað erlendum
gjaldeyri í þjóðarbúið. Ferðamál eru vaxandi
þáttur í þjóðarbúskap íslendinga og er í þeim
fólginn einn mikilvægasti vaxtarbroddur þjón-
ustugreina á síðari árum. Bæði gjaldeyristekjur
atvinnugreinarinnar og innlendar tekjur hafa
farið vaxandi, svo og mannafli sem við hana
starfar. Nú starfa um 5% vinnuafls á sviði ferða-
mála og gjaldeyristekjur námu á árinu 1983 um
1,5 milljörðum króna eða sem svarar 7,8% af
vöruútflutningi þjóðarinnar.
Þetta kemur m.a. fram í ályktun miðstjórnar
Framsóknarflokksins um nýsköpun atvinnulífs.
Atvinnugreinin ferðamannaþjónusta er orðin
meðal þeirra stærstu í heimi. íslendingar ættu
með skipulagsbundnum hætti að geta náð vax-
andi fótfestu á erlendum ferðamannamörkuð-
um. Þannig gætu þeir byggt upp mikilvæga at-
vinnugrein, sem auk þess að afla gjaldeyris-
tekna hefur fjölmörg jákvæð áhrif í þjóðarbú-
skapnum. Vafamál er að tekjur af nokkurri ann-
arri atvinnugrein dreifist jafn víða um þjóðfélag-
ið og með jafn miklum hraða. Leggja ber áherslu
á að ferðaþjónusta er útflutningsgrein, sem er
sambærileg við aðrar útflutningsgreinar, að öðru
leyti en því að þar sækja viðskiptavinir landið
heim, ferðast með íslenskum farkostum, kaupa
innlenda þjónustu og íslenskar vörur.
í ályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins er
lögð sérstök áhersla á þýðingu góðra sam-
gangna innanlands og milli íslands og annarra
landa. Því er mikilvægt að átak verði gert í upp-
byggingu flugvalla landsins og að áfram verði
haldið lagningu betri og varanlegri vega um
landið allt. Hátt hlutfall milliríkjaverslunar veld-
ur því að flutningsgjöld eru þjóðarbúinu meiri
byrði hér en víðast annars staðar. Því ber að efla
samkeppni í millilandasiglingum og leita útboða
í vaxandi mæli.
Hreint loft, heitt vatn og óspillt náttúra eru
gæði sem erlendir ferðamenn sækjast æ meira
eftir. Þess verður vandlega að gæta að engin
þau skref verði stigin í ferðamannaþjónustu sem
spillt geti viðkvæmum sögu- og náttúruverð-
mætum. Gæsla, eftirlit og upplýsingastarfsemi
verði við það miðuð.
Jafnhliða vaxandi ferðamannaþjónustu sem
byggir á erlendum mörkuðum þarf að hvetja til
ferðalaga íslendinga um eigið land. Gera þarf
stórátak til að bæta alla aðstöðu og móttöku
ferðamanna. Ljóst er að fjárfesting í ferðamálum
hefur víða stuðlað að stórbættri félagslegri þjón-
ustu og aðstöðu í þeim byggðarlögum þar sem í
slíka fjárfestingu hefur verið ráðist.
Spörum og notum
minna vatn en
borgum
meira fyrir það
„Það þarf sparnaðarhvata í sölu-
kerfi veitunnar," segir Hákon
Hákonarson, formaður hita-
veitustjórnar. Það kemur líka
fram í viðtali við hann í Degi 26.
nóv. 1984, að meðaldæling yfir
kaldasta tímann í fyrravetur hafi
verið 205 1/sek. á viku, og nú í
sumar („þrátt fyrir einmuna
tíð“), hafi verið 110 1/sek. í gegn-
um kerfið á viku.
Getur það verið, að við neyt-
endur séum að bruðla með
vatnið? Þá hvernig? Eða er þetta
kannski hönnun veitunnar ein-
hverju að kenna? Ekki hef ég séð
sundlaug við hvert hús, svo í
hvað ætti neytandinn að nota allt
þetta vatn?
Það þarf sparnaðarhvata í
sölukerfið.
Fyrir um V/2 ári voru keyptar
varmadælur 1,2 og 3. Þessar dæl-
ur eyða jafn miklu af rafmagni,
eins og kostar að kynda nokkra
tugi einbýlishúsa, sem annars
væru kynt með rafmagni.
Áttu þær ekki að vera til sparn-
aðar á kerfinu, þannig að ekki
þyrfti að dæla eins miklu vatni
frá borholunum fremra? Séu
þessar dælur vel virkar, ættu þær
að geta annað vatnsþörfinni að
sumarlagi, að stærstum hluta. En
því er svona hljótt um þær?
Nú er bæjarstjórn Ákureyrar
búin að samþykkja, að leita skuli
tilboða í mæla til uppsetningar á
grindur neytenda. Hvort það
verða rúmmetramælar, sem hita-
veitustjórn mælir með, eða orku-
mælar sem ég reikna með að
flestir neytendur mæli með, veit
ég ekki.
Við lítum aðeins á orkureikn-
inginn, þegar (rúmmetra) mæl-
arnir hafa verið settir upp.
Það er talað um að láta heml-
ana vera og hafa ákveðna hemla-
leigu, eftir því hve margir lítrar
eru teknir inn á ofnakerfið. Síðan
ákveðið gjald fyrir hvert tonn
sem neytandinn notar, í upphitun
og neyslu. Þar eru tölur nefndar,
sem 90% af 59,00 kr. sem tonnið
skal selt á, og 10% af núverandi
lítraverði, sem mælaleigugjald
fyrir hvern lítra sem tekinn er inn
í húsið.
Raðhúsíbúð um 120-150 fm, er
með 1,5-2,2 mínútulítra nú á
ofnakerfinu. Ef við tökum 2,2
mínútulítra, til að eiga inni fyrir
kaldasta tímabilið, og kostar nú
2.596,00 á mánuði. Þá er
2,2x60x24=3.168 pr sólarhring,
eða 3.168 tonn x 30
dagar=95.040 tonn pr. mánuð.
Hvað á svo tonnið að kosta?
Ef við ætlum að borga það
sama og í dag, þá væri það um
27,00 pr. tonn. En ef við notum
þá tölu sem uppi er, 90% af
59,00, sem er 53,10 pr. tonn, þá
er þetta um 53,10x95,04
tonn=5.047,00 pr. mánuð. Við
borgum nú 2.596,00. Svo þetta er
næstum tvöfalt hærra.
En sagan er ekki öll. Við þurf-
um að hafa neysluvatn. Hvað
gæti það verið mikið á sólarhring,
(ef ég sleppi að draga frá kart-
öfluvatnið, sem líklega verður
notað í uppþvottinn), sem 4
manna fjölskylda notar? Líklega
um 200 lítrar á sólarhring, eða
um 6 tonn á mánuði. 6 tonn x
53,10=319,00 pr. mánuð. Þessi
tala breytist lítið frá mánuði til
mánaðar, vetur, sumar, vor og
haust.
Húshitun er hér um 9 inánuði
á ári, þar sem ekki verður stór
breyting á. 3 sumarmánuðina er
hægt að spara, og svo koma 4
hörðustu vetrarmánuðirnir, þar
sem verður að auka við kynding-
una (og e.t.v. neysluvatnið líka).
Ef við segjum að við notum 1,5
mínútulítra á ofnakerfið þessa 9
mánuði, en 2,2 mínútulítra 4
hörðustu mánuði af árinu, og
0,75 lítra sumarmánuðina 3.
Ef einhver getur sparað undir
þetta, þá mun það koma niður á
húseign þess neytanda. Og það
gerir það með þessum reiknaða
sparnaði, ef þessir sumarmánuðir
eru ekki þeim mun þurrari og
hlýrri, svo húsið fái góða
þurrkun, af þeim raka sem illa
kynnt hús safnar í sig yfir vetrar-
mánuðina.
Hjá Dönum, sem eftir olíu-
kreppuna 1973, hafa sparað mjög
svo olíu við kyndingu húsa sinna,
er nú í óefni komið.
Það er yfirleitt gert þannig að
skrúfað er fyrir ofna í húsinu, og'
bara ákveðin herbergi notuð,
hinum lokað og ekki kynt. Loft-
ræsting er mjög lítil í húsinu, svo
hitinn tapist ekki út.
Þessi mikli sparnaður, nú í um
10 ár, hjá Dönum, hefur valdið
því að nú er eytt meiru í viðgerðir
á húsum vegna rakaskemmda, en
hefur sparast við að skrúfa niður
orkukostnaðinn.
Hjá okkur, þar sem við höfum
mun kaldara loft, mun þessi
skaði verða mun meiri, ef við ætl-
um að fara þá leið að skrúfa fyrir
ofna í íbúðum okkar, til að spara
orku.
Að vísu virðist það vera eina
leiðin, því ekki hefur Akureyrar-
bær kynnt nein lán eða styrki, til
neytenda, svo þeir geti gert
endurbætur á húseign sinni, til að
komast af með minni orku.
Húsnæðisstofnun var og er
með svona lán, en þau náðu ekki
til nýrra húsa hér á Akureyri,
vegna þess að hér væri hitaveita,
og svæðið því ekki í þörf fyrir lán
til orkusparandi aðgerða.
Það ætti að vera eðlilegri leið
að ræða við neytendur, og athuga
um sparnaðarmöguleika, á hverri
húseign, (sem yrði líka atvinnu-
aukandi og gjaldeyrissparandi),
heldur en að segja: Spörum og
notum minna vatn, en borgum
meira fyrir það.
P.S. Vissulega þarf að borga
niður skuldir hitaveitunnar,
en.... þarf neytandinn ekki að
hafa efni á að veita sér þennan
lúxus að vera með hitaveitu?
Sigurður Jónsson,
byggingafræðingur.
Við segjum:
9x3.441,00 (1,5x60x24x30=64,8x53,1=3.441,00) 30.969,00
3x1.721,00 (0,75x60x24x30x53,1 = 1.721,00) 5.163,00
4x1.606,00 (2,2-1,5=0,7x60x24x30x53,1 = 1.606,00) 6.423,00
118x2,2 (10% af 1.180,00 pr. lítra á hemil)xl2 3.115,00
12x319,00 3.828,00
49.498,00
Sé borgað, eins og í dag, og ekki reiknað með hækkun, verður
12x2.596,00 31.152,00
Hækkun hefur því verið 18.346,00
eða sem svarar, að það þarf að borga jafn mikið, eftir breytingu, og
sem svaraði 1,6 árum
miðað við fyrra gjald, og topp sparnað.
Dæmi eins og er í dag:
Nú notar sami neytandi 1,5 mínútulítra, og kyndir með rafmagni, að
auki, yfir kaldasta tímabilið. Sem dæmi um það:
1,5x1.180x12= 21.240,00
Rafmagn í 4 mánuði
7 kW á dag x30x4x3,20= 2.688.00
23.928,00
Hækkun hefur þá verið 25.570,00
eða sem svarar, að það þarf að borga jafn mikið eftir breytingu og sem
svaraði 2,07 árum
miðað við fyrra gjald.