Dagur - 19.12.1984, Blaðsíða 16
Akureyri, miðvikudagur 19. desember 1984
RAFGEYMAR
IBÍUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VIÐHALDSFRÍIR
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Bókasalan
meiri núna
en í fyrra
Fimm bækur virðast vera áber-
andi söluhæstar á Norðurlandi
um þessar mundir, samkvæmt
könnun sem Dagur gerði í 7
bókaverslunum víðs vegar á
Norðurlandi í gær. Sem fyrr er
samtalsbók Auðar Laxness og
Eddu Andrésdóttur „A
Gljúfrasteini“ söluhæsta
bókin, og fékk hún 69 atkvæði
af 70 mögulegum í könnun
Dags.
Mikil barátta er um 2. sætið.
Það hreppti hins vegar „Jón G.
Sólnes" sem skrásett er af Hall-
dóri Halldórssyni og var hún með
54 atkvæði. „Guðmundur skip-
herra Kjærnested“ er í þriðja sæti
með 49 atkvæði en hún er skráð
af Sveini Sæmundssyni. í fjórða
sæti er „Dyr dauðans" eftir
Alistair McLean með 39, „15 ára
á föstu“ eftir Eðvarð Ingólfsson
kemur næst með 37 atkvæði og í
6. sæti er Erlingur Davíðsson
með „Aldnir hafa orðið“.
Alls fengu 30 bækur atkvæði,
en verslanir þær sem haft var
samband við voru beðnar að til-
nefna 10 söluhæstu bækurnar í
röð. Fékk efsta bókin 10 stig, sú
næsta 9 o.s.frv. Þær bækur sem
nefndar hafa verið hér að framan
skáru sig nokkuð úr því sú bók
sem næst þeim kom „Gott fólk“
eftir Jón frá Garðsvík var með 11
atkvæði.
Þeir bóksalar sem Dagur ræddi
við jafnhliða þessari könnun voru
nær sammála um að bókasalan
væri mun betri en í desember á
sl. ári. í Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar á Húsavík var okk-
ur t.d. tjáð að salan væri um 50%
meiri en í fyrra í krónutölu en
talið er að bækur hafi hækkað um
10-15%. „Salan er umtalsvert
meiri en í fyrra, og mér virðist
sem bókasmekkur fólks hafi
einnig batnað mjög mikið,“ sagði
Aðalsteinn Jósepsson verslun-
armaður í Bókval á Akureyri.
gk--
Hreiöar Eiríksson „pakkar inn“ jólatré.
Mynd: mþþ
Jólatré í Vín
„Það er allt í lagi að það komi
fram í blöðunum, að það eru
seld jólatré á fleiri en einum
stað,“ sagði Hreiðar Eiríksson
eigandi gróðurhússins í Vín við
Hrafnagil, en hann er einn
þeirra aðila sem selja jólatré í
ár.
„Ég byrjaði á því að pakka
jólatrjám í net og einnig hef ég
opið á sunnudögum. Nú hefur
Hljómplötusalan á Akureyri:
Endurfundir alls
staðar á
Það þarf engum blöðum um
það að fletta né plötum að
snúa, að hljómplatan Endur-
fundir sem Steinar hf. gefa út
fyrir jól, er langvinsælasta
jólaplatan á Akureyri í ár.
Dagur hafði samband við for-
ráðamenn fjögurra hljóm-
plötuverslana, Hljómtækja-
deildar KEA, Radíóvinnustof-
unnar í Kaupangi, Tónabúðar-
innar og Hljómvers og alls
staðar voru Endurfundir efstir
á blaði.
Þessi nýja safnplata sem inni-
heldur róleg og rómantísk lög var
reyndar uppseld á tveim stöðum
en nýtt upplag er nú komið í
verslanirnar. Af öðrum plötum
sem mikið er keypt af má nefna
nýju Stuðmannaplötuna, Kókos-
tré og hvítir máfar, safnplötuna
Dínamít, jólaplöturnar með
HLH og Magnúsi og Jóhanni og
nýju plötuna með Das Kapital.
Af klassískum plötum voru
þeir efstir á blaði, Kristinn Sig-
toppnum
mundsson og Páll Jóhannesson
en sá síðarnefndi hefur greinilega
farið mjög vel af stað í verslunum
á Akureyri. Þá selst harmoniku-
plata þeirra Aðalsteins og Jóns
einnig þokkalega.
Að sögn verslunarmanna hefur
plötusalan verið mjög góð að
undanförnu og þakka menn það
ekki síst því að plötur eru á mjög
góðu og samkeppnishæfu verði,
t.d. ef miðað er við bækur.
- ESE
Skógræktarfélag Eyfirðinga tek-
ið þessar nýjungar upp eftir mér
og þar með bætt sína þjónustu,
ég tel því að samkeppnin hafi
orðið neytendum til góðs.“
Hreiðar sagðist selja greni- og
furujólatré, einnig er hann með
íslenskan fjallaþin frá Skógrækt
ríkisins. Þinurinn er töluvert
dýrari en aðrar gerðir jólatrjáa,
en barrheldnin er mun betri og
fólk setur því ekki verðið fyrir sig
er það velur jólatré. Hreiðar
sagði að barrheldni trjáa ætti al-
mennt að verða mjög góð í ár,
eftir gott sumar.
Nú í jólamánuðinum hefur
verið boðið upp á ókeypis kaffi,
orgelleik Gunnars Tryggvasonar,
Hrafnhildur Vigfúsdóttir hefur
sýnt skreytingar og Þórður hús-
vörður hefur gengið um og spjall-
að við fólk og komið með
skondnar athugasemdir.
Þann 30. desember hyggst
Hreiðar bjóða öllum börnum er
heimsækja skálann ókeypis ís og
ef vel gengur verður það árviss
viðburður. Það er því ýmislegt á
döfinni frammi í Vín og óhætt
fyrir Akureyringa að bregða sér
bæjarleið og líta á starfsemina,
en eins og Hreiðar sagði þá „eru
Akureyringar dálítið seinteknir,
það er eins og þeir séu ekki búnir
að uppgötva skálann". - mþþ
Mælar fyrir
3,4 milljónir
Stjórn Hitaveitu Akureyrar
hefur samþykkt aö taka tilboði
í heitavatnsmæla frá fyrirtæk-
inu Aqua-metro, sem hljóðar
upp á 3.022 mæla fyrir sem
samsvarar 3 milljónum 411
þúsund krónum.
Hér er um að ræða mæla vegna
fyrirhugaðrar breytingar á sölu-
fyrirkomulagi veitunnar, þ.e. úr
hemlakerfi yfir í mælakerfi, en að
vísu verða hemlarnir áfram til
staðar. Fjögur tilboð bárust og
var þetta næstlægst, en vegna
þess að aðrir mælar höfðu ýmist
reynst misvel eða engin reynsla
var á þeim var ákveðið að taka
þessu tilboði. Var einkum stuðst
við reynslu Hitaveitu Reykjavík-
ur í þessu sambandi. HS
Gert er ráð fyrir
breytilegri átt á Norð-
urlandi í dag og björtu
veðri.
Síðan er gert ráð
fyrir því að norðlæg
átt verði ríkjandi tvo
næstu sólarhringa,
éljagangur verður og
eitthvað mun kólna.
• Salt og
sandur
Utanbæjarmenn hafa haft orð
á þvi á undanförnum árum að
þeim finnist Akureyringar
helst til svalir í umferðinni.
Sérstaklega blöskrar þeim
ökuleikni Akureyringanna í
hálku.
Þessi ökuleikni i hálkunni
er i raun og veru ekkert
furðuleg. Salt hefur verið á
bannlista hjá bæjarverkstjóra
frá upphafi vega og sumum
hefur jafnvel fundist að
bæjarstarfsmenn fari helst til
sparlega með sandkornin.
# Saltvondir
ökumenn
íhaldssemi Akureyringa
varðandi saltbannið gengur
eínstöku sinnum út í öfgar.
Að visu sparar það bifreiða-
eigendum mikið að bílar
þeirra ryðga síður en þegar
lif manna og limir eru í hættu,
verður að láta skynsemina
ráða. í mestu hálkunum i vet-
ur hefur Þórunnarstrætið fyr-
ir neðan lögreglustöðina alltaf
fengið sinn skammt af sandi
og stöku saltkorn hafa
slæðst með. Sl. mánudag bar
hins vegar svo við að hvorki
var sett salt né sandur á
götuna og bílar runnu því um
hvern annan þveran niður
Þórunnarstrætið. Ekki þurfti
annað en að líta á kantfnn til
að sjá aö margir ökumenn
1
höfðu notað hann sem þrauta-
lendingu.
• Saltf
grautinn
Það hefur sennilega ekki far-
ið framhjá neinum að það er
þröngt í búi hjá flestum með-
al smáfuglum í þessu þjóð-
félagi. Sjaldan mega fleiri en
þrír menn koma saman án
þess að ekki sé talað um
kreppuna og þykir mönnum
þetta að vonum bölvað svona
rétt fyrir jólin.
Menn hafa lika nokkuð til
síns máls. Flest sem nöfnum
tjáir að nefna hefur hækkað
vel umfram launahækkanir
og nú siðast hækkaðl rauð-
vínið í jólasósuna svo að ein-
hverjir verða að láta sér
nægja pilsner að þessu sinni.
# „Neyðarréttur“
Talandi um áfengi og áfeng-
ishækkanir þá er Ijóst að
áfengismenn hafa fundið við-
eigandi svar við hækkunar-
stefnu stjórnvalda. Ef marka
má sölu á kísilgúrsfum (not-
aðar til að hreinsa landa) i
Hólabúðinni á Akureyri að
undanförnu, er Ijóst að það er
bruggað á öðru hverju heimili
og soðið upp á gamla lagið á
fjórða hverju. Neyðin kennir
naktri konu að spinna, segir
máltækið og víst er að á með-
an vodkaflaskan kostar 700
krónur og sykurkílóið 11
krónur þá beita margir „neyð-
arréttinum".