Dagur - 22.02.1985, Síða 2
2 - DAGUR - 22. febrúar 1985
A söluskrá:
Ásabyggð: 6 herb. einbýlishús
ca. 170 fm á tveimur hæðum.
Bílskúrsréttur.
Seljahlíð: 5 herb. 128 fm rað-
húsíbúð og 30 tm bílskúr, allt á
einni hæð. Auk þes geymsla í
kjallara. Skipti á minni eign
möguleg.
Grundargerði: 4—5 herb. íbúð
um 120 fm á tveimur hæðum.
Mjög góð.
Drottningarbraut: Einbýlishús
ca. 150 fm og tvöfaldur bílskúr.
Húsið stendur eitt sér á fallegum
stað.
Bjarmastígur: 4-5 herb. 140 fm
efri hæð í tvíbýlishúsi. Skipti á
húseign á Eyrinni æskileg.
Þórunnarstræti: Vönduð 5
herb. íbúð á efri hæð ca. 150 fm
og innbyggður bílskúr. Skipti á
minni eign.
Hjallalundur: 4ra herb. íbúð á 4.
hæð. Mjög vönduð íbúð.
Víðilundur: 3ja herb. íbúð á 1.
hæð í fjölbýlishúsi. Skipti á rað-
húsíbúð eða sambærilegu.
Þórunnarstræti: 4ra herb. ca.
100 fm íbúð á miðhæð í fimm
íbúða húsi. Góð íbúð. Hugsan-
leg skipti á góðri 3ja herb. íbúð.
Skólastígur: 5 herb. neðri hæð
í tvíbýlishúsi 140 fm og Vz kjall-
ari.
Hrafnagilsstræti: 4ra herb. mið-
hæð í þríbýlishúsi um 100 fm.
Skipti á 2-3ja herb. íbúð.
Tjarnarlundur: Einstaklings-
íbúð á 4. hæð. Fæst að hluta á
skuldabréfum.
Eiðsvallagata: 3ja herb. góð
íbúð á 2. hæð. Skipti á stærra
möguleg.
Furulundur: 3ja herb. ca. 55 fm
íbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi.
Svalainngangur.
ÁsmundurS. Jóhannsson
mm logfræölngur m Brekkugölu m
Fasteignasa/a
Brekkugötu 1, sími 21721.
Sölum.: Ólafur Þ. Ármannsson
við kl. 17-19 virka daga.
heimasími 24207.
Innbakaður
svissneskur réttur
- Guðbjörg
„Petta er nú svona sitt
úr hvorri áttinni hjá
mér, fljótlegur og góð-
ur fiskréttur og svo er
ég með innbakaðan
svínakamb, en við
höfum gert mikið af
slíkum mat eftir að við
vorum í Sviss. Þetta er
óskaplega góður
matur. Krökkunum
fannst nú hálfhallœris-
legt af mér að láta
lummuuppskrift, en ég
læt hana samt fljóta
með. Hún getur alltaf
komið að góðum
notum. “
Það er Guðbjörg
Baldvinsdóttir sem
kemur með uppskriftir
í Matarkrókinn í dag
og aðþví er okkur sýn-
ist ífljótu bragði er hér
um ákaflega girnilega
Baldvinsdóttir í Matarkróknum
§iii||i
..v.'.v.v.vvl
liiiii
Fasteignasalan
Brekkugötu 4, Akureyri.
Gengið inn að austan.
ípið frá ki. 13-18 sími 21744
2ja herb. íbúðir:
Tjarnarlundur: Ibúð á 3. hæð um 47 fm. Laus strax.
Hrísalundur: Ibúð á 4. hæð í svalablokk um 58 fm.
Hjallalundur: Ibúð á 4. hæð um 60 fm.
Smárahlíö: Ibúð á 1. hæð um 44 fm.
3ia herb. íbúðir:
Víöilundur: ibúð á 1. hæð um 68 fm.
Skarðshliö: Ibúð á 3. hæð í svalablokk um 84 fm.
Víðllundur: Ibúð á 3. hæð um 78 fm. Góð eign.
Melasíða: Ibúð á 4. hæð um 84 fm.
Eiðsvallagata: Miðhæð I þríbýlishúsi mikið endurbælt.
Furulundur: Raðhúsíbúð á einni hæð ásamt bílskúr.
4ra herb. íbúðir:
Hjallalundur: (búð á 4. hæð suðurendi um 89 fm.
Rimasíða: Raðhúsíbúð á einni hæð ásamt bílskúr.
Hrfsalundur: Ibúð á 2. hæð í svalablokk um 92 fm.
5 herb. íbúðir:
Þórunnarstræti: Efri hæð f tvfbýlishúsi ásamt bílskúr. Góð
I eign.
Grundargerði: Raðhúsíbúð á tveimur hæðum um 127 fm.
I Seljahlíð: Raðhúsibúð á einni hæð ásamt bílskúr samt. um
1170 fm. Skipti möguleg.
I Steinahlfð: Raðhúsíbúð á tveimur hæðum ásamt bílskúr um
1164fm.
Einbýlishús:
Eyrarlandsvegur: Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
kjallara og bílskúr. Skipti möguleg.
Borgarsfða: Einbýlishús, hæö og gott ris ásamt bflskúr.
lilbúið undir tréverk.
erkilundur: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Skipti
höguleg.
lakkahlfð: Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bilskúr.
|fri hæð er rúmlega fokheld, neðri hæð fullbúin þar sem
gt er að hafa 2ja herb. ibúð. Góð greiðslukjör.
lúðasíða: Húsgrunnur fyrir einbýlishús. Teikningar á skrif-
lofu.
I - '
rétti að rœða.
prófa!
Bara að
Sölustjóri: Sævar Jónatansson.
Sunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl., Árni Pálsson hdl.
Marengsterta
(Fljótleg og góð)
4 eggjahvítur
200 g sykur.
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar,
sykri smám saman bætt út í.
Bökuð í 2 formum (best að nota
bökunarpappír í formin) í 1 klst.
við 150°.
% dl þeyttur rjómi er settur inn
í kökuna, súkkulaðibitum bætt út
í rjómann.
Lummur
(Njóta mikilla vinsœlda á heimil-
inu sérstaklega hjá börnunum)
4 bollar hveiti
2 bollar sykur
1 egg
1 tsk. ger
1 tsk. natron
1 tsk. salt
mjólk
rúsínur eftir smekk
ef til er afgangur af hrísgrjóna-
graut, er gott að bœta honum út í.
Steiktar í feiti á pönnu.
Fljótlegur fiskréttur
Ýsuflök
salt, múskat
makkarónur
1 dl tómatsósa.
Fiskurinn er hálfsoðinn og látinn
í smurt eldfast mót, soðnar
makkarónur settar yfir, bakaður
upp jafningur kryddaður með
múskati og látinn yfir allt saman.
Sett inn í vel heitan ofn og bakað
í ca. 15 mín.
Lambakjötsréttur
Lambalœri skorið niður í l-2ja
cm bita
smjörlíki
1-2 laukar
2 súputeningar
l/2 krukka rauð paprika (niður-
soðin)
1-2 grœn paprika
1 krukka mango chutney
V2 krukka grœnn relasy
‘/2 d. sveppir
'/.'2 d. ananas eða saxaður ananas.
Kjötið er brúnað í smjörlíki á
pönnu ásamt söxuðum lauknum.
Sett í pott ásamt súputeningun-
um og öllu því sem upp er talið í
uppskriftinni og látið malla þang-
að til kjötið er orðið meyrt og
fullsoðið. Borið fram með rúsín-
um og kókosmjöli í skál.
Innbakaður
svínakambur
1 rúlla svínakambur (útbeinuð,
óreykt)
1 dós Campbell’s sveppasúpa
eða 1 bréf sveppasúpa
'/2 dós sveppir
2 bréf raftaskinka
Smjördeig
2-3 epli
sinnep
kjúklingakrydd
Café de Paris sauce.
Hugmyndin að þessum rétti varð
til eftir heimkomuna frá Sviss, en
þar í landi kynntumst við meðal
annars alls konar innbökuðum
réttum. Þar sem mikill tími fer í
að búa til smjördeig er einfaldast
að kaupa frosið smjördeig í
brauðgerðum bæjarins. Mjög
æskilegt væri að deigið væri fáan-
legt í matvörubúðum bæjarins
því að það er lykUlinn að gerð
fjölda ljúffengra smárétta.
Byrjað er á að sneiða kambinn
niður í ca. 1 cm sneiðar. Best er
að sneiða kambinn niður hálf-
þíddan. Sneiðarnar eru kryddað-
ar með kjúklingakryddi og
snöggsteiktar báðum megin á
pönnu til að loka kjötsafann inni.
Síðan látnar í ísskáp til kælingar.
Smjördeig er flatt út með kefli
frekar þunnt og látið þekja
ósmurða bakaraofnsplötu. Þá er
smjördeig aftur flatt út en nú þarf
kakan að vera ca. 3 cm stærri á
hvern kant en sú fyrri. Nú er
köldum sneiðunum raðað þétt
saman ofan á smjördeigið á ofn-
plötunni. Því næst er örþunnu
lagi af sinnepi smurt yfir sneið-
arnar. Vökvinn er síaður frá
dósasveppunum og þeim hrært
saman við sveppasúpuna. Ef not-
uð er pakkasúpa skal gæta þess
að hafa vökvann helmingi minni
en upp er gefið og hún þarf að
vera köld. Þessu er svo smurt yfir
allar ójöfnur og holrúm milli
sneiðanna. Þá er þunnum epla-
skífum raðað yfir. Síðan er þakið
yfir með raftaskinkunni.
Hér ofan á mætti nota ýmsar
grænmetistegundir t.d. kál. En
við ráðleggjum það ekki svona í
fyrsta skipti ef baksturinn á að
takast vel. Þá er komið að því að
stærri deigkakan er lögð yfir og
kantarnir brotnir vel saman.
Samskeytin er gott að pensla með
eggjarauðu jafnvel miðju kök-
unnar líka en alls ekki nauðsyn-
legt. Afganga af deiginu mætti
nota til að skreyta kökuna ef vill.
Ofninn er hitaður í 200°C og
kakan bökuð þangað til hún hef-
ur lyft sér vel og er orðin fallega
gulbrún.
Café de Paris sósan (sem
reyndar er svissnesk að uppruna,
Restaurant Café de Paris í Gen-
eve) hentar þessum rétti vel en
hana má þó rjómabæta svolítið.
Grænmeti getur hver borið
fram með réttinum að eigin vali
en við viljum þó benda á rósakál
og broccolikál sem tilheyrandi.