Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 3
22. febrúar 1985 - DAGUR - 3
Starfsmannafélag Sambands-
verksmiðjanna á Akureyri hélt
fyrri árshátíð sína í Félagsborg sl.
laugardagskvöld. Var þar margt
um manninn og þétt setið, enda
mæta um 460 manns á árshátíð-
arnar sem eru reyndar tvær vegna
þess hversu fjölmennt starfsliðið
er, og verður síðari hátíðin nk.
laugardagskvöld.
Oll skemmtiatriði eru „heima-
tilbúin“, og að auki er um 30
manna hópur sem hefur veg og
vanda af öllum undirbúningi og
annast framkvæmdina.
Boðið var upp á fjölmargt til
skemmtunar. Kór starfsmanna
söng undir stjórn Árna Ingi-
mundarsonar. Annáll ársins í
léttum dúr var fluttur, gamanvís-
ur sungnar, tískusýning starfs-
manna og áfram mætti telja.
Að sögn Júlíusar Thorarensen
formanns starfsmannafélagsins
var mikið fjör, og hann átti von
á því að svipað yrði uppi á ten-
ingnum annað kvöld þegar síðari
hópurinn mætir á svæðið.
Þrír starfsmenn voru heiðraðir. Margrét Jónsdóttir og Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir fyrir 25 ára starf, og Ríkharð Þórólfsson fyrir 40 ára starf.
Myndir: KGA
Séð yfir hluta salarins.
Menn tóku hraustlega til matar síns og af nógu var að taka.
Hvað skyldu þeir hafa verið að ræða þessir?
Kór starfsmanna Sambandsverksmiðjanna var stóra númerið á árshátíðinni, og söng snilldarlega undir öruggri
stjórn Arna Ingimundarsonar.
FTLEHDIR
HEILLAIMDI HEIMUR
Starfsfólk Hótels Loftleiða býður þig velkominn.
Takmark okkar er að gera þér dvölina ógleymanlega.
Við bjóðum þér flest það sem hvílir, hressir og léttir lund.
Þægileg herbergi, sundlaug, gufubað, Ijúffengan mat,
góða skemmtun og iðandi mannlíf.
Síðast en ekkí síst munum við leitast við að greiða
götu þína í höfuðborginni. Við getum til að mynda bókað
fyrir þig miða í leikhúsið eða óperuna og vitaskuld
sjáum við til þess að bílaleigubíllinn bíði þín
við hóteldyrnar sé þess óskað.
Strætisvagnaferðir eru frá hóteldyrum á 30 mín. fresti.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA /MT HÓTEL