Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 7
22. febrúar 1985 - DAGUR - 7
Hilmnr Þór Hilmarsson.
„Fékgslífið stimdað
á kvöldin
og nœtumar“
- Hraðfrystihús.
- Hilmar Þór Hilmarsson,
er hann við?
- Augnablik . . .
- Já, halló. Nei, komdu
blessuð. Hvað á ég að segja
þér?
- Ja, til dæmis eitthvað
um félagslífið á Þórshöfn.
- Félagslífið hérna er með
stórkostlegum blóma, það er
búið að vera helvíti gaman
hérna síðan um áramót. Pað
var haldið feikigott þorrablót
um daginn og um helgina
verður góugleði Björgunar-
sveitarinnar og þar verður ét-
inn svartfugl og alls kyns
fuglar aðrir. Og auðvitað
drukkinn heimabruggaður
bjór, en þú mátt ekki segja
frá því. Hallbjörn Hjartar-
son snillingur ætlar að koma
og skemmta og menn bíða í
ofvæni. Það er búið að vera
mikið af böllum í vetur. Eða
kannski er það bara ég sem
alltaf er á böllum.
- Eitthvað um að vera
hjá leikfélaginu?
- Þau eru að æfa Saklausa
svallarann og leggja nótt við
dag.
- En er ekki alltaf verið
að vinna, hafið þið tíma til
að stunda félagslífið?
- Það er alveg rosalega
mikil vinna, Stakfellið aflar
mjög vel og við höfum unnið
hér á frystihúsinu alla laugar-
daga undanfarið. Félagslífið
er stundað á kvöldin og næt-
urnar.
- Og nennir fólk þessu,
örþreytt eftir daginn?
- Þetta er hresst fólk hér,
skal ég segja þér. Við erum
að spekúlera í því hér á
frystihúsinu að rjúka til Fær-
eyja í sumar. Við förum héð-
an með rútu og tökum Norr-
önu til Færeyja og þar ætlum
við að hafa það gott í viku-
tíma, smakka færeyskan bjór
og svoleiðis. í fyrra fórum
við til Akureyrar og sáum
My Fair Lady og ef guð lofar
komum við kannski að sjá
söngleikinn um Edith Piaf.
- Eigið þið nóga peninga
þarna fyrir austan?
- Við sjáum lítið af pen-
ingum hér skal ég segja þér,
miðað við þá vinnu sem fólk-
ið leggur á sig. Þó að allir séu
hér mjög hressir og mannlíf
gott, þá erum við ekkert
óskaplega hress yfir launun-
um. Okkur finnst þjónustu-
aðilarnir í Reykjavík taka
ansi mikið af því sem við eig-
um með réttu að fá. Þeir lifa
svo flott fyrir sunnan en fisk-
verkunarfólkið þrælar úti á
landi. Ég segi nú bara eins og
félagi minn, Leifur: Auk
þess legg ég til að Reykjavík
verði lögð í eyði. Þú hefur
þetta ekkert með, því ég
sagði þetta aldrei.
- Nú ætla þeir að fara að
byggja ratsjárstöð við bæjar-
dyrnar hjá ykkur. Eru menn
ánægðir með það?
- Ég er alfarið og algjör-
lega á móti þessu brölti, og
vil ekki sjá þessa menn hér,
ég held þeim sé ekki of gott
af þvt' Rússunum að dóla
þarna fyrir utan. Almennt
eru menn á móti þessu, nema
þá helst þeir sem hugsa sér
að fá vinnu við þetta meðan
verið er að byggja upp, ég
kalla þá skyndigróðamerin.
Já, það er til stórrar bölvunar
að fá svona apparat í ná-
grennið, þetta er beinn liður
í hernaðarkapphlaupinu sem
við íslendingar erum því
miður á fullri ferð inn í.
- Þetta er alvarlegt mál,
Hilmar, ég ætla að vinda mér
yfir í ögn léttara hjal. Þú ert
þekktur hljómsveitargæi,
ertu ekki að spila eitthvað
núna?
- Það er ein hljómsveit
starfandi á Þórshöfn og hún
er mjög góð, ég er nefnilega
í henni! Hún heitir HIBS,
frekar ljótt nafn svo sem,
þetta eru upphafsstafir okkar
sem erum í henni. Hilmar,
Ingvar, Birgir, Sigurður, ég
er forsprakkinn auðvitað.
- Er þetta ekki dúndur-
góð djammhljómaveit?
Nei, það er ekkert varið
í þetta, þeir eru ekkert farnir
að hringja í okkur frá Sjall-
anum og að sunnan til að
biðja okkur um að spila. Nei,
nei, við erum mest með
gömlu, góðu dansana og
fleira gott, þessi sígildu lög
sem spiluð eru á þorrablót-
um út um allt land og öllum
þykir svo gaman að syngja
með. Manstu ekki eftir
„Sestu hérna hjá mér“ og
öllu þessu?
- Jú, jú, mikil ósköp. Þú
varst í Menntaskólahljóm-
sveitinni Hver á sínum tíma,
svo voru það Bakkabræður
frá Bakkafirði, núna í HIBS
og í millitíðinni í ótal hljóm-
sveitum.
- Maður er alltaf að spila.
Þegar ég var ekki með
hljómsveit mændi ég öfund-
araugum upp á hljómsveitina
sem var að spila á ballinu og
dauðlangaði auðvitað að
vera með.
- Hvernig er að vera
þekktur í skemmtanalífinu?
- Það er bara ágætt. Þetta
er alveg merkilegt, það má
ekki hundur hnerra þá er ég
fenginn til að spila undir.
- Segðu mér Hilmar,
stúdent og hljómsveitargæi,
hvað ertu að hamast í fiski
austur á Þórshöfn? Þú værir
margfrægur orðinn suður í
Reykjavík.
- Ég skal nú segja þér
það, ég er fæddur á Bakka-
firði og alinn upp við fisk. Ég
geri mér grein fyrir á hverju
við lifum, íslendingar og ég
er ósköp ánægður að sullast
í fiski. Ég var reyndar að
hugsa um prestinn á tímabili
en mér fannst það allt of
langt nám og nennti ekki að
standa í því. Auk þess ekki
tiltakanlega trúaður.
- Það var gott. Heyrðu,
ég trufla þig þá ekki lengur
frá störfum. Ég bið að heilsa
konunni þinni.
- Vertu sæl, ég skila
þessu. En í guðanna bænum
ekki segja, sæll sértu, þegar
þú byrjar á viðtalinu . . .
- mþþ
Dynheimar
Bjössi bolla í eigin persónu
í Dynheimum föstudagskvöld.
Aldurstakmark ’71 kr. 150,-
Bama
skemmtun
á laugardag 23. febr. kl. 3 e.h
Einstakt tækifæri fyrir litlu
krakkana að sjá Bjössa bollu.
Verð kr. 75,-
Átti Bjössi bolla
afmæli á bolludaginn?
Hann svarar því.
Föstudagskvöldið 8. mars verður haldin Free-Style
danskeppni í Dynheimum fyrir unglinga.
Skráning er þegar hafin.
ÐcmáecffUVi
f staður unga fólksins
Vinnuvélanámskeið
Iðntæknistofnunar
Grunnnámskeið B
Námskeið í stjórn og meðferð þungavinnu-
véla verður haldið á Akureyri dagana 11. til 21.
mars ef næg þátttaka verður.
Námskeiðið stendur yfir 8 stundir á dag í 10 daga
og hefst kl. 8 f.h. þann 11. mars.
Námskeiðið gefur rétt til töku prófs á flestar gerðir
vinnuvéla.
Skráning er hafin hjá vinnueftirliti ríkisins í síma
96-25868 og hjá Iðntæknistofnun (slands í síma
91-687000.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 5. mars.
OPIÐ ALLA HELGINA.
Fullur salur af notuðum bílum.
Nýir bílar á „kjarapöllum“.
Komið og ræðið við sölumenn.
Tökum allar gerðir notaðra bíla
í umboðssölu.
Mjög rúmgóður sýningarsalur.
Aðgengilegt útisvæði.
Notaleg aðstaða fyrir viðskiptavini.