Dagur


Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 13

Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 13
22. febrúar 1985 - DAGUR - 13 Sundlaug fyrir Sólborg Seint á sl. ári var lokið við annan áfanga þjálfunarsundlaugar fyrir Visthemilið Sólborg. Byggingin er nú fokheld og allur kostnaður við hana er orðinn 2,9 millj. króna, sem er að öllu leyti gjafa- fé frá félögum, fyrirtækjum og einstaklingum. Áætlað er að áfangarnir tveir sem eftir eru kosti um 3,5 millj. króna. Enn hefur ekki fengist fé úr ríkissjóði til þessara fram- kvæmda, þó var sundlaug við Sólborg með í upptalninu í út- varpi um framkvæmdir á vegum ríkisins á Akureyri. Svo nú höfum við ekki um ann- að að velja, en að leita enn einu sinni til þeirra sem vilja leggja sitt af mörkum til að þessi langþráði draumur verði að veruleika. Við viljum jafnframt þakka öllum þeim sem styrkt hafa okk- ur með rausnarlegum framlögum og gert okkur kleift að hefjast handa við Sundlaug fyrir Sólborg. Við vonum að með áfr- amhaldandi hjálp almennings þá takist okkur að lokum að ljúka þessu mjög svo brýna verkefni. Gíróreikningur okkar er 64 700-4. Sundlaugarnefnd. Akureyringar Nærsveitamenn Sýningar í Freyvangi: 4. sýning föstudag kl. 21.00. 5. sýning laugardag kl. 21.00. 6. sýning sunnudag kl. 15.00. Miðapantanir í sima 24936. Leikfélag Öngulsstaðahrepps, Umf. Arroðinn. e , Utvarpsauglýsingar Ætlar þú að auglýsa í Rás 2 eða staðbundna útvarpinu á Akureyri? Leitaðu ekki langt yfir skammt, við í STUDIO BIMBO önnumst gerð auglýsinga. Erum með mjög fullkomin tæki til upptöku á leiknum auglýsingum. Hönnum auglýsingar. Líttu inn, við höfum reynsluna STUDIO BIMBO Óseyri 6, Akureyri, sími 25984. P.S. Fyrsti viðskiptavinurinn fær ókeypis vinnslu á einni auglýsingu. Fjórðungssamband Norðlendinga og Stjórnunarfélag íslands auglýsa eftirtalin námskeið: r Stjórnun Þetta vinsæla námskeið er nú boðið í annað skipti í vetur. Markmið: Lögð áhersla á skipulag og uppbyggingu fyrir- tækisins sem stjórnunareiningar. Gerð grein fyrir mikil- vægi markmiðasetningar, skipulagningu verkefna og lausn skipulags- og stjórnunarvandamála í fyrirtækinu. Efni: Stjórnskipulag og tegundir. Verkefnaskipting - valddreifing. Skipulagsbreytingar. Upplýsingar, ákvarðanataka. Hvað er stjórnun? Samskipti yfirmanna og undirmanna. Þátttakendur: Yfirmenn og undirmenn sem hafa mikil bein samskipti við starfsmenn og annast skipulagningu og stjórnun. Staður og tími: Sjallinn (Mánasalur), Akureyri. Fimmtudagur 7. mars kl. 16.00-19.00. Föstudagur 8. mars kl. 8.30-19.00. Laugardag 9. mars kl. 8.30-12.00. Stjórnandinn og hlutverk hans Þetta námskeið má líta á sem framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa farið á Stjórnun, þótt það sé sjálfstæð eining og ekki nauðsynlegt að hafa verið á fyrsta námskeiðinu til að hafa gagn af því síðara. Markmið: Gerð er grein fyrir hlutverki stjórnandans í nútímaþjóðfélagi, helstu verkefnum hans og hvernig hann geti náð sem bestum árangri í samskiptum við starfs- menn sína. Efni: Fimm þættir stjórnunar, hvatning og mannleg sam- skipti, tímastjórnun, valddreifing - hópstjórnun. Stefnu- mótun, þættir við ákvarðanatöku, hvert er hlutverk stjórn- andans? Forysta, sviðsmyndir úr lífi stjórnenda. Þátttakendur: Yfirmenn og starfsmenn sem hafa mikil bein samskipti við starfsmenn og annast skipulagningu og stjórnun. Staður og tími: Sjallinn, Akureyri (Mánasalur). Fimmtudagur 14. mars kl. 16.00-19.00. Föstudagur 15. mars kl. 8.30-19.00. Laugardagur 16. mars kl. 8.30-12.00. Ath.: Ef mikil þátttaka verður, verður námskeiðið endurtekið dagana 28.-30. mars, á sama stað og tíma. Leiðbeinandi á báðum námskeiðum er Höskuldur Frí- mannsson, rekstrarhagfræðingur. Verð: Fyrir hvert námskeið kr. 4.500,- fyrir félaga í Stjórnunarfélagi íslands, kr. 5.650,- fyrir aðra. Skráning þátttakenda á bæði námskeiðin er hjá Fjórð- ungssambandi Norðlendinga í síma 96-22270. Frestur til að skrá sig á Stjórnun er til 1. mars, en til 8. mars á síðara námskeiðið. 1 Frá Sjálfsbjörg ® Akureyri og nágrenni Leikfélag Öngulsstaðahrepps og Umf. Árroðinn bjóða Sjálfsbjargarfélögum afsláttarmiða á gam- anleikinn Aldrei er friður að Freyvangi sunnu- daginn 24. febr. kl. 15.00. Nánari upplýsingar á skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 26888 föstudag 22. febr. frá kl. 13-18. Sjálfsbjörg. Laxdalshús öDum opið Símar 26680 & 22970. Opið föstudag og laugardag frá kl. 18.00. Matseðill: Sjávarréttasúpa með völdum góðfiski eða bláberjasúpa með ristuðu brauði og grillsteikt stórlúðukóteletta fyllt með skinku og Brie eða sherrysteiktar lambalundir með gljáðu grænmeti eða nautasirloinsteik „Bordealaise" með sinnepsristaðri kálfalifur og sveppum og heit eplabaka með rjóma. Kaffi og konfekt. AUir velkomnir í Laxdalshús. Hentugt fyrir hópa 10-30 manna. Geta verið algjörlega sér. Hjúkrunarfræðing og sjúkraliða vantar að dvalar- og sjúkradeild Hornbrekku Ólafsfirði. Uppl. gefúr forstöðumaður í síma 96-62480. Atvinna Þeir sem hefðu áhuga á að taka þátt í stuttu leið- sögumannanámskeiði um Þingeyjarsýslur í þeim tilgangi að taka að sér leiðsögn ferðamanna, vin- samlegast hafið samband við Björn í síma_ 41140 eða Auði í síma 41220 fyrir 1. mars nk. Ferðamálafélag Húsavíkur og nágrennis Starfskraftur óskast í lítið iðnfyrirtæki á Akureyri. Fjölbreytilegt starf. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 1. mars, merkt „Samviskusamur". Sölumaður Heildverslu n á Akureyri óskar að ráða starfs- mann til sölustarfa. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „Sölumaður", fyrir 10. mars 1985.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.