Dagur - 22.02.1985, Qupperneq 15
22. febrúar 1985 - DAGUR - 15
fullri ferð
í Dynheimnm
Björn Sveinsson (Bjössi bolla)
hélt upp á afmælið sitt á bollu-
daginn og ákvað þá útþembd-
ur og fínn að skeila sér norður
yfir heiðar í megrunarferð.
Ætlar hann að láta til sín taka
í Dynheimum um helgina sem
í hönd fer.
í kvöld verður dansleikur í
Dynheimum fyrir þá sem eru
fæddir 1971 og fyrr og að sjálf-
sögðu mun Bjössi leika þar við
hvern sinn fingur.
Á morgun kl. 15 verður svo
Nemenda-
tórúeikar
barna- og fjölskylduskemmtun
í Dynheimum. Á boðstólum
verður videó, diskótek og
fleira, og Bjössi bolla hyggst
troða sér um sali og er ekki að
efa að hann mun gera lukku
þá sem endranær. Sem fyrr
sagði er þarna um að ræða
barna- og fjölskylduskemmtun
og er verð aðgöngumiða að-
eins 75 krónur.
,J3ítladans“
í Sjalkinnm
,Maður og
nmkína“
Fyrir skömmu kom út 3. og
síðasta grafíkmappan í mynd-
röðinni „Maður og maskína"
eftir G.Ármann.
í möppunni eru 5 sáld-
þrykksmyndir þrykktar í 2-3
litum. Mappan er gefin út í
100 tölusettum og árituðum
eintökum. Myndefnið er allt
sótt til Sambandsverksmiðj-
anna á Akureyri. Ma'ppan var
sáldþrykkt hjá teiknistofunni
Stíl á Akureyri. Verð möpp-
unnar er kr. 4.500,- og e(
mappan seld hjá listam. Upp-
lýsingar í síma 96-25757.
Sölu Mehascn
Saldþryltk '
Uons-
menn
selja
blóm
- á sunnudag
Næsta sunnudag, 24. febrúar
(konudag), munu félagar í
Lionsklúbbi Akureyrar knýja
dyra hjá Akureyringum og
bjóða blómvönd til kaups.
Blómasalan á konudaginn
hefur verið ein aðaltekjuöflun
klúbbsins árum saman. Hagn-
aði af sölunni hefur ætíð verið
varið til mannúðar-, heilbrigð-
is- eða líknarmála og verður
svo einnig nú.
Við treystum því, að bæjar-
búar muni bregðast vel við
Lionsmönnum nú, sem endra-
nær. þegar þeir bjóða blómin
við dyr þeirra á sunnudags-
morguninn á milli kl. 10.00 og
12.30.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
góðar undirtektir.
I.ionsklúbbur Akureyrar.
Tónleikar í
Skjólbrekku
Anna Áslaug Ragnarsdóttir
heldur tónleikaferð sinni um
Norðurland áfram um helgina.
Á sunnudag verður hún með
tónlcika í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit og hefjast þeir kl.
16.
Efnisskrá tónleikanna er
mjög fjölbreytt. Anna Áslaug
hélt tónleika á Akureyri sl.
miðvikudag og tókust þeir
mjög vel.
Körfubolti og skíðamót er það
sem um verður að vera á
íþróttasviðinu á Akureyri um
helgina.
Þór og ÍBK eiga að leika tvo
leiki í 1. deild Islandsmótsins
í körfuknattleik, og verða þeir
báðir í íþróttahöllinni. Sá fyrri
verður í kvöld kl. 20.30 og sá
síðari kl. 14.30 á morgun.
Keflvíkingum nægir að
vinna sigur í öðrum leiknum til
þess að tryggja sér sæti í Úr-
valsdeild að ári, en Þórsarar
íþrótúr
um helgina
sem unnu Fram um síðustu
helgi geta með góðum leikjum
gert þær vonir að engu. Þórs-
arar leika án pressu því þeir
sigla um miðja deild, og ættu
þess vegna að geta átt góða
lciki.
Skíði:
Tvö skíðamót verða í Hlíðar-
fjalli. Annað er Bikarmót
Skíðasambands íslands í
göngu, og hefst það kl. 11 á
sunnudagsmorgun. Keppt
verður í flokki 17-19 ára,
flokki 21 árs og eldri og í
kvennaflokki. Allir bestu
skíðagöngumenn landsins
verða meðal keppenda.
Þórsmót í stórsvigi verður
einnig haldið um helgina. Kl.
13 á morgun verður keppt í
flokki 13-14 ára drengja og
stúlkna. Kl. 11 á sunnudag
hefst keppni í karla- og
kvennaflokki og klukkustundu
síðar keppa 15-16 ára drengir
og stúlkur.
„Kyn-
legir
kvistif
Út eru komnar fjórða og
fimmta myndin í seríunni um
„kynlega kvisti", en það er
Ragnar Lár, myndlistarmaður
á Akureyri sem myndirnar
gerir. Fyrsta myndin er af
Guðmundi dúllara, en aðrar
eru af Símoni Dalaskáldi, Sæ-
finni með sextán skó, Sölva
Helgasyni og Ástar-Brandi.
Myndirnar eru sáldþrykktar
og gefnar út í 200 tölusettum
og árituðum eintökum í papp-
írsstærð 31x44 cm, en stærð
myndflatar er 25x35 cm.
Hvert eintak kostar kr. 300.
Pantanasímar eru 96-26562
eða 23688. Þeir sem áhuga
hafa, geta gerst áskrifendur að
ákveðnum númerum.
.%star-2rar:áur
ScJcíþrykh J"jtrr
Píanónemendur við Tónlistar-
skólann á Akureyri verða með
tónleika í sal Tónlistarskólans
á laugardag kl. 17.15. Að-
gangur að tónleikunum er
ókeypis.
Einnig má minna á að laug-
ardagstónleikar Tónlistarskól-
ans verða á dagskrá í allan
vetur. Aðgangur er ókeypis en
tónleikarnir hefjast kl. 13.30.
Þeir sem hyggjast líta inn í
Sjallann um helgina ættu að
hafa það hugfast að annað
kvöld er lokað þar vegna árs-
hátíðar, en Bikarinn þó opinn.
í kvöld er því veisla, og m.a.
,yS'pariö
stórfé“
„Sparið stórfé" auglýsir
Mazda-umboðið, og vill meina
að menn fái mest fyrir pening-
ana sína með því að kaupa
Mazda. Ekki ætlum við að
dæma um það, en svo mikið er
víst að Bílasalan hf. hcldur
heilmikla bílasýningu í Skála
við Kaldbaksgötu um helgina,
á laugardaginn og sunnudag-
inn frá kl. 10-18. Þar verða
sýndir glæsivagnar frá Mazda-
verksmiðjunum og sjón er
sögu ríkari.
verður frumfluttur nýr dans,
danslokkur frá Stúdíó Alice
flytur dansinn „Bítlasyrpa".
Þá mætir Björn Sveinsson
(Bjössi bolla) á svæðið, og
hyggst hann láta gamminn
geysa á svæðinu lengi kvölds.
Er fólk beðið að vara sig á
honum, enda ómögulegt að
sjá fyrir hvað kappinn sá tekur
sér fyrir hendur þegar hann er
kominn á ferðina.
,fiollan“ á