Dagur - 22.02.1985, Síða 16

Dagur - 22.02.1985, Síða 16
I Smiðju um helgina: Fullbókað í seinni tíma á föstudagskvöldið og laugardagskvöldið, en laus borð í fyrri tímunum. Akureyri, föstudagur 22. febrúar 1985 - Þetta er hreint og klárt brot á samningum. Það er skýrt tekið fram í samningum að það skuli Iokið við veiðiferðina en það hafa skipstjórar og sjó- menn greinilega virt að vett- ugi. Þetta sagði Sverrir Le< son, formaður Otvegsmannatílags Norðurlands og einn samninga- nefndarmanna LÍÚ í yfirstand- andi verkfalli, er hann var spurð- ur hvaða augum útvegsmenn litu á siglingu togaranna af miðunum sl. miðvikudag. Ein af röksemdum sjómanna Þeir hafa ekki átt sjö dagsva sæla, bankastjórarnir og bankaráðsmennirnir í Lands- banka íslands, síðustu vikurn- ar. Allt frá því að óskað var eftir tilboðum í skuttogarann Bjarna Herjólfsson ÁR sem er í eigu Landsbankans, hefur ekki verið flóafriður í banka- ráðinu vegna utanaðkomandi þrýstings. Samkvæmt heimildum Dags er fyrir því að snúa skipunum til hafnar er sú að útvegsmenn hafi ekki virt hvíldartíma sjómanna og skipað þeim að halda út áður en verkfallið skall á. Um þetta atriði sagði Sverrir Leósson: - Ég get ekkert fullyrt um það en hafi slíkt átt sér stað, hefðu skipstjórar átt að sjá um að regl- ur væru haldnar. Það er skip- stjórinn og áhöfnin sem hefur úrslitavald um það hvort skipið fer frá bryggju, ekki útgerðar- maðurinn, sagði Sverrir Leósson. Það var álit Sverris að horfur á róið að því öllum árum að togar- inn verði ekki seldur út á land. Togarinn var áður í eigu Árborg- ar hf. Selfossi sem gerði hann út frá Stokkseyri en nú er stefnt að því að hann fari til Þorlákshafn- ar. Þingmenn Reykjaneskjör- dæmis og Suðurlands hafa beitt áhrifum sínum til þess að af þessu geti orðið og stjórn Landsbank- ans ætti því að geta tekið ákvörð- un fljótlega eftir margra vikna drátt. samningum væru mjög dökkar. Engin hreyfing væri á viðræðum og tap útgerðar, sjómanna, fisk- vinnslu og fiskvinnslufólks ykist með hverjum deginum. - Við getum afskrifað loðnuna ef þetta leysist ekki fljótlega. Þetta er auðvitað orðið stóralvar- legt mál og það færir okkur enn betur heim sanninn um það hve verkfallsvopnið er beitt. Éf menn líta hins vegar aftur í tímann sjá þeir að verkföll hafa bara fært þjóðarbúinu og þeim sem að þeim standa stórtjón, sagði Sverrir Leósson. - Það er ugglaust rétt að þetta sé brot á samningum en þessi ákvörðun okkar var tekin að vandlega athuguðu máli eftir ítrekuð brot útgerðarmanna á veiðum í verkfalli, brot á helgar- fríum og tilrauna til að brjóta löglegt verkfall okkar á bak aftur með loforðum til einstakra sjó- manna um borgun umfram vænt- anlega samninga ef þeir virtu verkfallið að vettugi. Þetta sagði Halldór Hallgríms- son, skipstjóri og formaður Skipstjórafélags Norðurlands er Dagur leitaði álits hans á síðustu atburðum. Að sögn Halldórs er þessi sigling af miðunum undan- tekningartilfelli. - Það rær enginn nema út- gerðarmaðurinn leyfi, sagði Hall- dór Hallgrímsson. - ESE Bjarni til Þoiiakshafnar? Kaldbakur leggst að bryggju um miðnættið aðfaranótt sl. fimmtudags. Mynd: KGA Útsvör lækka um 0,2% Á fundi Bæjarráðs Akureyrar síðastliðinn miðvikudag lagði meirihluti bæjarráðs fram frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið 1985. Niðurstaða tekjuáætlunar er 409,1 m.kr. oger25,8% hærri en áætlun síðasta árs. Álagningar- prósenta útsvars er ákveðin 10,4% og er það 0,2% Iækkun frá síðasta ári. Akureyri er því áfram í hópi þeirra sveitarfélaga hér á landi sem lægst útsvar legg- ur á sína gjaldendur. Framlög til nýbygginga og vélakaupa eru tæpar 80 m.kr. og eru þá meðtalin rúml. 20 m.kr. framlög ríkisins til byggingar skóla, dagvista og íþróttamannvirkja. Auk þess er gjaldfærður 55,3 m.kr. stofn- kostnaður í ýmsa rekstrarþætti bæjarsjóðs. Stærstu liðir gjaldaáætlana eru félagsmál og almannatryggingar 69,2 m.kr. (15,7% hækkun frá fyrra ári) og fræðslumál 57,6 m.kr. (28,7% hækkun). Fjár- hagsáætlunin verður til fyrri um- ræðu á fundi bæjarstjórnar nk. þriðjudag. Hagi hf. hættir! 20 starfsmenn atvinnulausir um mitt ár Starfsmönnum Haga hf. hefur verið tilkynnt, að fyrirtækið muni hætta starfsemi. Þar starfa nú um 20 manns, sem koma til með að standa uppi atvinnulausir um mitt árið. Á síðasta ári var starfsemi Haga hf. endurskipulögð, en þá var rekstur fyrirtækisins að kom- ast í þrot. Tekin var upp fram- leiðsla á innréttingaeiningum, sem féll mjög vel að tækjakosti verksmiðjunnar. Gekk þessi framleiðsla vel, þannig að verk- smiðjan var rekin án halla frá því í ágúst og fram að áramótum, samkvæmt þeim heimildum sem Dagur hefur fengið. En þessi framleiðslumáti krefst hins vegar mikillar lagersöfnunar, sem erfitt reyndist að fjármagna, auk þess sem vaxtabyrði af eldri skuldum reyndist rekstrinum þung. Og þar sem lánasjóðir samþykktu ekki að breyta þeim skuldum í lang- tímalán og slík lán fengust ekki í áframhaldandi rekstur, þá var ekki um annað að ræða en rifa seglin. Stefnt er að því að selja þann lager sem fyrir liggur, en síðan verður fyrirtækinu lokað og reynt að selja vélar og tæki. Sam- kvæmt heimildum Dags vantar um 15 m.kr. inn í reksturinn til að fyrirtækið nái flugi. - GS Gert er ráð fyrir þokkaleg- asfa helgarveðri á Norður- landi. Á morgun verður suðlæg átt og bjart veður, en á sunnudag verður norðvestanátt, él á ann- esjum en bjart til landsins. Það kólnar örlítið á sunnu- dag, en eftir helgina tekur sunnanáttin að öllum lík- indum vöidin á nýjan leik. í herradeild og dömudeild. ★ Mikill afsláttm *

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.