Dagur - 06.03.1985, Side 6

Dagur - 06.03.1985, Side 6
6 - DAGUR - 6. mars 1985 Hörður Gunnarsson verkstjóri í G. B aður út af afurðalánum og minni vinnukostnaður og fleiri þættir spila þar inn í.“ - Nú fara sjómenn í verkfall, kemur það ekki niður á ykkur hér í saltfiskinum? „Verkfallið hefur sjálfsagt áhrif hér eins og annars staðar. Tandurfiskurínn er vinsæll hjá Spánverjum - Litið inn hjá G. Ben. - fiskverkun á Árskógssandi Hjá G. Ben. er eingöngu verkaður saltfiskur og fer hann á hefðbundna markaði, Portúg- al, Spán, Ítalíu og Grikkland. Um þessar mundir vinna 10-15 manns hjá fyrirtækinu. „Ef mikið berst að þá eru fleiri við vinnu hér,“ sagði Hörður. „Meirihlutinn af starfs- fólkinu er konur og margar eru í hlutastarfi. Petta eru kon- ur héðan af Sandinum og af Hauganesi, margar voru í rækj- unni, en hún er nýhætt og þá færðu þær sig yfir í saltfiskinn.“ - Pað gengur vel hjá ykkur, er það ekki? „Pað gengur mjög vel eins og er, það gengur tiltölulega miklu betur eftir að við fórum að verka tandurfisk eins og hann er kallaður.“ - Hvað er tandurfiskur? „Það er að mestu sama verk- un á honum og venjulegum salt- fiski, hann er hafður í 3-4 daga í pækli og síðan er hann viku- tíma í stæðu. Þá er hann pökk- unarhæfur til útflutnings. Þeir kaupa þetta, Spánverjarnir og það er nýtilkomið að verka fisk- inn í tandurfisk." - Hver er munurinn á tand- urfiski og venjulegum saltfiski? „Tandurfiskurinn er linari og hvítari, Spánverjarnir vilja heldur fá hann svona, málin hafa þróast þannig hjá þeim. Peir hafa alltaf viljað fá hvítan saltfisk og eru mjög ánægðir eft- ir að farið var að verka tandur- fiskinn. Þessi fiskur er að vísu aðeins ódýrari, en samt sem áður sparar það okkur mikið. Það er mikið minni vaxtakostn- „Þetta er búið að vera mjög gott undanfarið, ekki síst miðað við árstíma. Yfírleitt er svo til enginn afli kominn á land fyrr en eftir þennan tíma,“ sagði Hörður Gunn- arsson verkstjóri í G. Ben. fiskverkun á Arskógssandi er blaðamaður Dags leit þar inn og spurði um aflabrögð. „Það róa héðan 4 bátar, þar af landa 2 hjá okkur, þeir Sæþór og Hafþór, þetta hefur verið mjög góður fiskur sem þeir hafa fengið, stór og fallegur." Hríngormar eru lítt vinsælir í saltfíski, hvorki hjá Spánverjum né öðrum, hér vinna konur við að tína orma úr fisk- inum, vonandi þakklátt starf, en eilítið kuldalegt. Abending til hundaeigenda Að undanförnu hefur borið óvenju mikið á kvörtunum vegna hunda sem ganga lausir á Akureyri. Menn spyrja þá gjarnan að því hver ástæð- an sé. Er eftirlit ábótavant, eru hundaeigendur ekki vandanum vaxn- ir eða eru þeir tillitslausari en áður gagnvart samborgurum sínum? Má kannski líta svo á að vanvirðing gagnvart lögum og reglum sé orðin svo ríkjandi meðal okkar að sjálfsagt þyki að brjóta öll lög og reglur í þjóðfélaginu? Því miður læðist oft að manni grunur um að svo sé. Mikil umræða er um að allir skuli hafa frelsi til að gera það sem þá langar til, hvorl sem það er til að flytja inn kartöflur eða kökur, kaupa sinn bjór eða reka útvarpsstöð. En það vill oft gleymast að frelsi einstaklingsins hlýtur alltaf að tak- markast af því að skerða ekki frelsi náungans eða ganga á rétt hans. í öllu okkar tali um frelsi megum við ekki gleyma því að við lifum í sam- félagi við aðra og þar verða allir að hafa sama rétt og sama frelsi. Þetta gildir einnig um rétt okkar til að hafa hund. Stefna bæjaryfirvalda á Akureyri hefur verið mjög í þeim anda að hver sem vill eigi að geta haldið hund. Leyfisgjald fyrir hunda hefur t.d. verið mjög lágt hér miðað við önnur bæjarfélög sem leyft hafa hundahald. En til þess að virða rétt þeirra sem ekki hafa hunda eru settar reglur um hundahaldið á Akureyri. Þessar reglur eru mjög einfaldar og er aðalatriðið í þeim „að hundar raski eigi ró bæjarbúa og séu hvorki þeim, né öðrum, sem um bæinn fara til óþæginda." „Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri, heldur vera í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir honum.“ Ef farið er eftir þessum reglum er hundahald ekkert vandamál. En allir sem ákveða að fá sér hund verða að gera sér grein fyrir þeirri fyrirhöfn sem hundurinn veldur. Fáið ykkur aldrei hund sem leik- fang handa börnum ykkar. Það eru þeir fullorðnu sem verða að bera ábyrgðina. Flestir hundar þarfnast mikillar hreyfingar. Einn klukkutími í gönguferðir með hundinn á dag verður því að teljast ein af skyldum eigandans. Einnig þarf að aga hund- inn og er það skylda hvers hundeig- anda að kynna sér undirstöðuatriðin í hundauppeldi. Hundurinn lærir af reynslunni, af viðbrögðum uppaland- ans við hegðun hundsins, af hrósi og skömmum fyrir tiltekið atvik, en að- eins þegar það gerist en ekki löngu seinna. Það má ekki gleymast að hundurinn dregur ekki ályktanir af hugsunum sínum, eins og maðurinn, heldur af vananum. Það er einnig út- breiddur misskilningur að hundinum líði betur ef hann fær óheft frelsi til athafna. Hundinum líður best við það sem hann er vaninn við. Því gild- ir það með hundahald í bæjum að venja þarf hundinn í samræmi við þær reglur sem í gildi eru, og það er eigandinn sem er ábyrgur fyrir því að það sé gert. Við höfum mörg dæmi hér á Akureyri, sem sanna að hægt er að hafa hund í bænum. Hundaeigendur - takið tillit til náunga ykkar og venjið hundinn í samræmi við það. Látið hundinn ekki vera lausan á almannafæri og látið hann ekki gera þarfir sínar á lóð nágrannans. Valdimar Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.