Dagur - 06.03.1985, Síða 9

Dagur - 06.03.1985, Síða 9
6. mars 1985 - DAGUR - 9 miðjan mars og leika þar 3-4 leiki á gervigrasinu við lið úr Reykjavík. KA „Við erum byrjaðir að hlaupa og lyfta og mannskapurinn æfir þrisvar sinnum í viku,“ sagði Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar KA. „Gústaf Baldvinsson þjálfari okkar hefur að undanförnu dvalist hjá Shef- field Wednesday í Englandi en er kominn heim og allt er komið á fulla ferð. Við stefnum að því að fara til Færeyja í æfingaferð um páskana," sagði Stefán. Völsungur „Við byrjuðum síðasta laugar- dag,“ sagði Helgi Helgason leik- maður Völsungs á Húsavík og fyrrverandi þjálfari liðsins. Helgi sagði að Sigurður Hall- dórsson þjálfari væri mættur á svæðið og einnig Ómar Rafns- son, en Jón Leó Ríkharðsson sem kemur frá Akranesi kæmi ekki fyrr en í vor. Helgi tjáði okkur að þeir ætluðu að æfa fjór- um sinnum í viku, hlaupa mikið úti, en um páskana væri áformað að fara til Akraness og vera þar við æfingar og leiki. KS Karl Pálsson formaður KS sagði að Siglfirðingar væru byrjaðir að hlaupa úti af krafti. Hins vegar hefjast reglulegar æfingar ekki fyrr en um páskana, en þá fer lið- ið til Skotlands. Þar hittir liðið þjálfara sinn Hogdson og mun liðið leika 4 leiki í Skotlandi. Þjálfarinn kemur síðan heim með liðinu úr þessari ferð og þá fara hjólin að snúast fyrir alvöru. Leiftur „Þetta er rétt um það bil að fara í gang hjá okkur,“ sagði Jóhann Helgason formaður knattspyrnu- deildar Leifturs í Ólafsfirði, en Leiftur leikur nú í fyrsta skipti í 2. deild. Jóhann sagði að strákarnir væru byrjaðir að hlaupa úti, og væri flugvöllurinn aðalæfinga- svæðið. Hins vegar er stór hluti liðsins við nám í Reykjavík, og væri jafnvel áformað að fara suður í æfingaleiki áður en keppnistímabilið hefst. Eins og sjá má af þessu eru knattspyrnumennirnir byrjaðir að hreyfa sig, og vonandi koma þeir vel undan vetri og vori, en það kostar auðvitað svita og púl. Þór gegn Akranesi Einn leikur verður í 1. deiid ís- landsmóts kvenna í handknatt- leik í kvöld, Þór og Akranes leika í íþróttahöllinni kl. 20. Ef Þór tekst að sigra í þessum leik, hefur liðið bjargað sér úr fallsæti í bili a.m.k. og aukast þá líkurnar verulega á því að liðinu takist að halda sæti sínu í deild- inni. Þórsliðið hefur átt nokkuð misjafna leiki að undanförnu, lið- ið var nærri búið að hirða stig af Val á dögunum en tapaði síðan fyrir Víkingi um helgina 12:16 þótt Víkingur sé með mun slak- ara lið en Valur. Þrjár bestu í svigi kvenna. Frá vinstri eru: Tinna Traustadóttir, Ingigerður Júlíusdóttir og Snædís Úlriksdóttir. Knattspyrnumenn víða um land eru nú farnir að undirbúa sig fyrir átökin í sumar, og svit- inn rennur sennilega víða þessa dagana þegar leikmenn eru að byrja þrekæfingar sínar. Keppnin í íslandsmótinu hefst um miðjan maí, og við slógum á þráðinn til forráðamanna liða í 1. og 2. deild á Norður- landi og leituðum fregna af undirbúningi liða þeirra fyrir keppnistímabilið. Þór „Við byrjuðum um miðjan janú- ar á þvi að hlaupa úti og lyfta,“ sagði Árni Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar Þórs en Þór leikur sem kunnugt er í 1. deild í sumar. „Það er æft þrisvar í viku núna og sumir eru meira að segja svo áhugasamir að þeir æfa upp á eigin spýtur hlaupa alla daga vikunnar." - Arni sagði að Þór myndi fara til Reykjavíkur um bestri æfingu. Á laugardag var keppt í svigi. í kvennaflokki kom Ingigerður Júlíusdóttir frá Dalvík mjög á óvart en hún fékk bestan tíma í báðum ferðum og sigraði örugg- lega. Fyrirfram hafði verið reikn- að með að bráttan yrði á ntilli Guðrúnar H. Kristjánsdóttur Akureyri og Snædísar Úlriks- dóttur Reykjavík. Snædís hafn- aði hins vegar í 3. sæti en Guðrún hætti í fyrri ferðinni. I karlaflokki liafði Árni Þ. Árnason yfirburði en Olympíu- farinn Daníel Hilmarsson frá Dalvík sleppti hliði í fyrri ferð og var úr leik. Svig karla: Sek. Árni Þór Árnason, R, 108.28 Guðmundur Sigurjónsson, A. 110.32 Helgi Geirharðsson, R. 112.35 Svig kvenna: Sek. Ingigerður Júlíusd. D. 120.55 Tinna Traustadóttir, A. 122.69 Snædís Úlriksdóttir, R. 123.34 Snædís Úlriksdóttir R. sigraði í stórsvigi kvenna og var vel á undan þcirn næstu. í karlaflokkn- um hafði hins vegar Daníel Hilm- arsson geysilega yfirburði og ligg- ur við að hann hefði getað fengið sér kaffisopa á leiðinni og unnið samt!! Stórsvig kvenna: Sek. Snædís Úlriksdóttir, R. 144.66 Guðrún H. Kristjánd. A. 146.65 Bryndís Ýr Viggósdóttir.R. 147.99 Stórsvig karla: Sek. Daníel Hilmarsson, D. 132.62 Guðmundur Sigurjónss., A. 136.35 Guðmundur Jóhannss., í. 136.51 Snædís Úlriksdóttir hlaut Helgubikarinn en Árni Þór Árnason Hermannsbikarinn. Þrátt fyrir mikiö snjóleysi í Hlíðarfjalli tókst að láta Her- mannsmótið fara fram þar um helgina. Var þá keppt í 20. skipti um Hermannsbikarinn sem er veittur fyrir bestan samanlagðan árangur í karla- flokki í alpagreinum, og í kvennaflokki um Helgubikar- inn. Keppendur voru óvenju- fáir, og stafar það af því að mjög lítill snjór er í skíða- löndum víða um landið og keppnisfólkið því ekki í sem Sigurvegarar í stórsvigi karla. Frá vinstri eru Guðmundur Sigurjónsson, Daníel Hilmarsson og Guðmundur Jóhannsson. Knattspyrnumenn: Bvriaði Hermannsmótið: Ami Þ. hlaut Hermannsbikarinn 1-X-2 Kári Kárason. „Mögu- leikar Everton góðir“ Að þessu sinni sækjum við spámanninn til Húsavíkur, en það er Kári Kárason sem er fylgismaður Southampton. Kári segist gera dálítið af því að tippa, en hann hafí aldrei unnið og það kæmi sér veru- lega á óvart ef hann færi að taka upp á því núna. „Það er heillangt síðan ég fór að halda með South- ampton. Ég hélt áður með Manchester únited en það voru svo niargir sem héldu með því félagi að það var ekk- ert gaman. Eg valdi því efsta liðið af þeim liðum sem ég þekkti engan stuðningsmann nteð. Það hefur svo gengið á ýmsu hjá Southampton en ég hef fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt.“ Kári sagðist telja möguleika Everton á sigri í deildinni nú góða. „Ég reikna með að Tottenham veiti þeim harða keppni og lið eins og LJnited, Liverpool, Southampton og Arsenal gætu sett strik í reikn- inginn.“ - En þá lítum við á spá Kára: Coventry-QPR 1 Norwich-A. Villa x N. Forest-Newcastle 1 Sunderland-Arsenal x Cardiff-Fulham 1 Carlisle-Grimsby 2 C. Palace-Wolves 1 Leeds-Iluddersfíeld 1 M. City-Middlesb. 1 Oldham-Blackburn 2 Sheff. Utd.-Oxford x Schrewsbury-Charlton 1 „Toni“ með 7 rétta Hjalti „Toni“ Gunnþórsson sem spáði í síðustu viku stóð sig vel og hefur að öllum líkindum tryggt sér sæti í úrslitakeppn- inni. Toni fékk 7 leiki rétta sem fleytir honum í 3. sætið á eltir þeim Guðmundi Frímannssyni og Hinríki Þórhallssyni. Sigurð- ur Pálsson er síðan i 4. sæti með 6 leiki rétta. 1—X—2

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.