Dagur - 29.03.1985, Page 6

Dagur - 29.03.1985, Page 6
.. .getur þú skroppið í Varmahlíð? - Frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á „Húrra krakki“ „Jú, þetta er rosalega afslapp- að, þetta er fimmta sýningin hjá okkur, þetta var ekki svona fyrir frumsýninguna." Það er konan með gráa hárið sem svarar. í ljós kemur að hún er formaður leik- félagsins og heitir Elsa. „Petta er allt öðruvísi sýning. Börnin skilja ekki alveg húmor- inn í verkinu. Þau hlæja bara þegar eitthvað er að gerast á svið- inu.“ Það var þrjúbíó- stemmning í sam- komuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki síðastlið- inn föstudag. Það var að hefjast barnasýning á leikritinu „Húrra krakki“ og salurinn troðfullur af börnum á öllum aldri, sem sátu spennt og borðuðu poppkorn. Hvenœr œtlaði þetta eiginlega að byrja? Furðulegt lið sat til hliðar við salinn og spilaði veiðimann. „Attu tvist, “ spyr virðulegur, ungur maður. „Veiddu,“ svarar eldri kona með grátt hár. Þarna sat og Óli leigubílstjóri og spurði eftir drottningu. Jú, jú, hún var til. Allt í einu er dyrum hrundið upp og maður kallar hátt og snjallt yfir salinn, sem enn hafði ekki áttað sig á þessu furðulega spili fólksins: „Óli, geturðu tekið túr í Varmahlíð, það bráðhast- ar!!!“ Og það er bara ekkert með það, Óli fleygir frá sér spilunum (eins og hafði verið vel gefið!) og rýkur á dyr. Eftir situr salurinn og klórar sér í hausnum. „Já, en var hann ekki aðalnúmerið í leiknum??" „Og rýkur bara upp í Varmahlíð??" Sverrir, en hann leikur pabba „krakkans“. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum er hann tíu árum yngri. Hvemig svo sem bað getur staðist. Leikurinn hefst og öllu er kippt í lag. Þetta hafði bara verið smá grín hjá leikfélaginu. Lesendur átta sig ef til vill á því, að við Dags-menn sáum upphafið að leiknum „Húrra krakki“ eftir Arnold og Bach, sem leikfélagið á Sauðárkróki sýndi á Sæluviku. í hléinu brugð- um við okkur „bak við“ eins og kallað er og spjölluðum við leikarana. Okkur fannst and- rúmsloftið fremur afslappað og höfðum á því orð. „Áttu tvist?“ Þannig hefst leikurinn Húrra krakki sem leikfélagið á Sauðárkróki sýndi á sæluvikunni. Furðulegt lið sat til hliðar við salinn og spilaði veiðimann í makindum. Bömin borðuðu poppkora og botnuðu ekki neitt í neinu. - Og er svolítið gaman að þessu? „Þetta er rosalega gaman,“ leikarar eru sammála um það. „Við erum ekki orðin alvarlega leið ennþá, en það er búið að panta okkur út um allt, svo fyrir- sjáanlegt er að við sýnum lengur en bara á Sæluviku." „Það er búið að panta okkur á Hvammstanga, á Húnavökuna á Blönduósi, Hrísey, Grímsey og Papey.“ Hahahahaha, sá er þetta mælti var frændi leikstjórans, Ey- þórs Árnasonar á Uppsölum í Blönduhlíð. - Hvað hafið þið æft lengi? „Við æfðum í fimm vikur og það gekk ágætlega upp.“ - En hvaða leikrit hefur félag- ið sett upp áður? „Við sýndum Galdrakarlinn í Oz um jólin, þetta er öflugt leik- félag og setur upp tvö verk á hverjum vetri. í fyrra sýndum við „Beðið í rnyrkri". Við sýndum einhverju sinni leikritið „Gripið í tómt“ og fórum með það til Ák- ureyrar. Pað komu 18 manns á sýninguna. Þetta var ágætis æfing. Nei, ætli við komum nokk- uð aftur með sýningu til Akur- eyrar.“ - Hvað eru margir félagar í leikfélaginu? „Þrjú þúsund manns.“ Það er frændi leikstjórans sem svarar. Hann er fyndnasti maðurinn í leikfélaginu. „Nei, við erum svona á milli áttatíu og níutíu, líklega um tuttugu virkir.“ - Um hvað fjallar „Húrra krakki?“ „Þetta er farsi, sem fjallar um ung hjón sem eru að halda upp á eins árs brúðkaupsafmæli sitt. Maðurinn hafði verið giftur áður og einmitt þennan sama dag og brúðkaupsafmælið er, kemur í ljós að hann á son frá fyrra hjóna-i bandi. Það upphefst mikill felu- leikur, þetta má ekki koma í ljós þennan dag og úr þessu verður dálítill hamagangur. Sem reynd- ar leysist farsællega." „Það má kannski geta þess, að Óli, sá er leikur krakkann, er tíu árum eldri en faðirinn." Meðan við erum að spjalla við leikarana, hringir bjalla af og til og við tökum eftir því að leikarar hverfa út einn og einn. Raddir taka að heyrast inn í búningsher- bergið. Jú, mikið rétt, leikurinn er hafinn. Við truflum ekki lengur, en bendum lesendum á myndir hér á síðunni, þær eru af leikurum sem þátt taka í sýningu Leikfélags Sauðárkróks á „Húrra krakka". - mþþ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.