Dagur - 29.03.1985, Qupperneq 7
29. mars 1985- DAGUR-7
Þórarinn Egill Sveinsson,
mjólkursamlagsstjóri?
- Ja, það er hann.
- Ertu ekki til í viðtal á línunni?
- Er ég ekki á línunni?
Jú, en má ég skrifa okkar
orðaskipti upp og birta
síðan á prenti í þættinum
„á línunni“ í helgarblaðinu?
Ætli það ekki, ég verð þá að
reyna að segja eitthvað gáfulegt.
En hvort mér tekst
þaðveitmaður ekkert
um fyrr en eftir á.
f - Ég las í DV um
\Caginn, ígrein eftir
Bahlur Hermannsson,
að þið hafið
átt orðaskipti í
flugvél, þegar
Baldur var að koma
héðan eftir einvígið við Sverri
Leósson. Um hvað rædduð þið?
- Við vorum að ræða um niður-
greiðslur, útflutningsuppbætur og
Sambandið.
- Voruð þið ekki sammála um
þessi málefni?
- Nei, ekki svo mjög. Hann er
einn af þessum mönnum, sem
lítur mjög einhliða á þessi mál.
Hann vill ekki viðurkenna að
niðurgreiðslur séu ekki annað en
stjórntæki pólitíkusa til að halda
niðri framfærsluvísitölunni. Þess í
stað lítur hann á þær sem beinar
greiðslur til bænda. Hann hlustar
heldur ekki á rök um þær auka-
verkanir, sem útflutningsuppbæt-
urnar hafa. Við fluttum t.d. út
osta fyrir 85 m.kr. í fyrra. Um
helmingurinn af því er útflutn-
ingsuppbætur. En hvað var gert
við þann gjaldeyri sem fékkst? Jú,
jú, það hefur einhver innflytjand-
andi keypt fyrir hann vörur og af
þeim er borgaður tollur, vöru-
gjald, söluskattur og svo framveg-
is. Ég held því að útflutningsbæt-
urnar skili sér í ríkiskassann aftur,
og þær halda líka uppi atvinnu.
Menn verða að athuga það. Og
greiða menn ekki um það bil
þriðjung af sínum tekjum beint í
skatt? Eg veit ekki betur.
Baldur vildi halda því fram, að
landbúnaðurinn væri rekinn á
styrkjum. Ég benti honum þá á
eitt dæmi. Éf við kaupum vélar
þurfum við t.d. að greiða af þeim
26,87% söluskatt í tolli, en það
gera ekki þeir sem eru í sam-
keppnisiðnaðinum, menn eins og
Davíð Scheving. Fjárfestinga-
kostnaðurinn hjá Davíðunum er
því fjórðungi minni og þennan
fjórung greiðum við til Alberts.
Pessi tollur rúllar svo upp allt
verðlagið.
- Urðuð þið vondir?
- Nei, ekki ég, en ég veit ekki
um hann. Að vísu þurfti ég að
telja upp að tíu nokkrum
sinnum, því ég sá það fljótt að
það þýddi ekkert að vera að æsa
sig við manninn. Þegar ég spurði
hann í austur þá svaraði hann
mér í vestur, þannig að ég
spurði bara í norður næst.
- Hann segist hafa borgað fyrit
þig leigubílinn, varstu blankur að
þvælast í Reykjavík?
- Nei, en síðustu mínúturnar af
samveru okkar fóru í að rífast um
hvor okkar mætti borga leigubíl-
inn. Ég ákvað að láta honum það
eftir, þegar ég sá það í hendi mér,
að með þeim hætti héldi ég fjár-
magni mínu heima í héraði!!
- Víkjum að öðru, fer ekki að
líða að samlagsfundi?
- Jú, hann verður vonandi í
næsta mánuði.
- Hvernig var útkoman?
- Hún var þolanleg, betri en
árið á undan í það minnsta. Þó
,Jumn svoraði
í austur þegar
ég spurði í vestuÝ
- Þórarinn E. Sveinsson á línunni
náum við ekki grundvallarverði’.
- Þýðir það tekjumissi fyrir
bændur?
- Nei, það vona ég ekki, því
mismunurinn fæst vonandi úr
verðjöfnunarsjóði. Hann er ætlað-
ur til að jafna tekjur mjólkursam-
laga vegna aðstöðumunar, en
tekjur fær hann af skatti, sem
lagur er á hvern innveginn mjólk-
urlítra.
- Hvað fékstu mikið af mjólk
á síðasta ári?
- 22.161.473 lítra.
- Meira eða minna en áður?
- Það er 0,87% meira, en menn
verða líka að athuga það, að 1984
var hlaupár, þannig að það var
einum degi lengra en venjulegt
ár!! Ég held að mjólkurframleiðsl-
an hafi verið í jafnvægi á síðasta
ári. í ár stefnir í einhverja aukn-
ingu, en hvernig árið verður í
heild á eftir að koma í Ijós.
- Nú er talað um að greiða
bændum út sitt kaup mánaðar-
lega.
- Já, en gallinn er bara sá, að
það eru ekki til peningar í kerfinu
til þess og menn koma ekki auga
á hvar á að taka þá. Það eru allir
sammála um það, að það væri
æskilegt að geta gert þetta, en það
vantar fyrst og fremst peninga til
þess að það sé framkvæmanlegt.
- En nú kvarta bændur yfir því,
að milliliðirnir, þar með talin
mjólkursamlögin, hafi allt sitt á
þurru. Þannig lendi það alltaf á
bændum að bera skaðann, efekki
fæst grundvallarverð fyrir fram-
leiðsluna. Er ekki nokkuð til í
þessu?
- 0, leiðinlegur. Jú, það má
kannski segja það, en þetta kerfi er
þannig upp byggt, að við tökum í
okkar hlut kostnaðinn við að
koma mjólkinni frá bændum í
neýtendur. Hvorki meira né
minna.
- En er þá eitthvað sem ýtir á
þig til að gera þetta á sem hag-
kvæmastan hátt, þannig að fram-
leiðendurnir beri meira úr bítum ?
- Svona leiðinlegir blaðamenn
eins og þú, sem spyrja svona
spuminga. Ha, ha, ha. Þar að auki
fylgjast bændur mjög vel með
þessu og veita okkur verulegt
aðhald. Og ef við náum ekki
endum saman á eigin rekstri þurf-
um við að sækja um uppbót til
verðjöfnunarsjóðs, sem fer mjög
krítiskt ofan í reksturinn. Við
komumst því ekki upp með neitt
bruðl.
- Það hefur líka
gagnrýnt, að mjólkurframleiðend-
ur séu of dreifðir. Þannig
dæmi þess að menn séu að bogra
með nokkrar kýr inni í afdölum og
það sé verulega kostnaðarsamt að
ná í þessa mjólk. Vantar ekki
betra skipulag á þessa hluti?
- Jú, ef til vill má segja það,
enda er enginn hvati til þess að
mjólkin sé framleidd sem næst
mjólkurbúunum. Þó ætti að vera
hægt að stýra þessu, t.d. með
Stofnlánadeildinni. En pólitíkin
hefur ekki þorað að taka á þessu
enda er það helvíti hörð stýring,
að segja við einhvern bónda, að ef
hann ætli að búa þama, þá verði
hann að vera með refi, en ef hann
ætli að vera þarna þá verði hann
að búa með sauðfé og svo fram-
vegis. Þar með er búið að
frumkvæðið frá bændum og
bændur vilja vera eigin herrar.
- Hvað verður um alla þessa
mjólk, sem þið fáið?
- Ég drekk hana!! En um það
bil 70% af því sem þá er eftir fer í
smjör og osta. Það sem á vantar
fer í neyslu, nýmjólk, léttmjólk,
rjóma, kotasælu, jógurt og skyr,
svo eitthvað sé nefnt.
- Hafa neysluvenjur breyst?
- Já, því miður get ég sagt þér
að mjólkurneysla á mann minnk-
aði um 17-18 lítra á síðasta ári.
- Hvað veldur?
- Ætli Davíð „Skelfing" gefi
ekki bara of marga Fíata, Ha, ha!
Svo er líka komið bjórlíki. Nei, í
alvöru talað, ætli það muni ekki
mest um alla ávaxtasafana sem
flætt hafa yfir markaðinn.
- Hefur aukist salan á fitu-
snauðari mjólk?
- Já, það er aukin sala í undan-
rennu og léttmjólk, en nýmjólkin
heldur enn um 70% af sölunni.
- Svo ég vendi aftur, er það
ekki rétt munað hjá mér að þú
sért fæddur og uppalinn Reykvík-
ingur?
- Jú, jú, ég hef ekki búið hér
nema í 6 ár, en í 20 ár var ég í
Reykjavík. Mínum gömlu vinum
finnst það helvíti hart, að ég skuli
vera orðinn svona gallharður Ak-
ureyringur á ekki lengri tíma.
Þetta er svona svipað og að láta
innrita sig í íþróttafélag. Eftir að
maður er orðinn félagi styður
maður sitt félag fram í rauðan
dauðann. Nú er ég orðinn Akur-
eyringur og ef ég ætla að láta mér
líða vel hér þá ákveð ég bara að
Akureyri sé besti bærinn. Er það
ekki best? -GS
Vorum að taka upp
í vikunni
pils, jakka og
buxur
frá hinu þekkta
sænska fyrirtæki
Lindbergs
Vel klædd er
konan ánægð.
Nýkomið:
Jakkar, pils og blússur í miklu úrvali.
Ný sending af frábærum festum
og fallegum leður- og lakkbeltum.
'ííóliLVQtðlun jSíc
SKEMMTIATRIÐI:
Tískusýning frá
tískuversluninni
Goldie
Laugavegi 67,
Reykjavík
Grínararnir frægu
Viktor og Baldur
„Crime“.meiriháttar
dansatriði
Hljómsveit Ingimars
Eydal og
Siggi Jonny sjá um
að fólkið verði
banastuði.