Dagur - 19.04.1985, Blaðsíða 7
19. apríl 1985- DAGUR-7
- Steindór Steindórsson for-
stöðumaður félagsmiðstöðva á
Akureyri, öðru nafni „Dyni“?
- Já, það er hann.
- Útskýrðu fyrir mér í stuttu
máli í hverju þitt starf sem for-
stöðumaður félagsmiðstöðva er
fólgið.
- Það er að sjá um rekstur á
Dynheimum að öllu leyti og síð-
an að sjá um rekstur á félags-
miðstöðvum í Lundarskóla og
Glerárskóla hvað varðar fjár-
málin. Við erum að fá konu í
hálft starf í Lundarskóla til að
annast daglegan rekstur þar, og
erum að reyna að nálgast þetta
í Glerárskólanum. Það er hins
vegar erfiðara að eiga við þetta
þar, þar þurfum við að vera í
Stcindór Steindórsson.
herjar félagsheimili eftir nokkr-
ar vikur og það er að koma h'ing-
að inn alveg ný starfsemi sem
hefur ekki verið hér eiris og
kynningardagar og sýningar.
- Nú er ár æskunnar, er ekki
óvenju mikið á döfinni þess
vegna?
- Jú, það má segja það. Tón-
listarskólinn ætlar að vera hér
með tónlistarkynningu. Hér
verða tónleikar með Bubba
Morthens á sumardaginn fyrsta.
Heilmikil flugkynning verður
hér laugardaginn 27. apríl bæði
úti og inni og geysilega mikið
um að vera. Við eigum von á
hópum frá öðrum byggðar-
lögum, t.d. koma unglingar frá
Sauðárkróki um helgina og sýna
okkur söngleikinn Gretti og
- Hvað með óreglu?
- Mér finnst óreglan fara
minnkandi en það er ekki víst
áð það séu allir tilbúnir að skrifa
undir það. Reykingar eru á
undanhaldi enda búinn að vera
mikill áróður í gangi gegn þeim.
Áfengisdrykkja er líka senni-
lega að magni til minni en var,
en það er yngri aldurshópur sem
byrjar að drekka í dag en áður
var. Það er því miður ekki óal-
gengt að sjá 12 ára krakka
slompfulla í bænum.
- Það eru þá krakkar sem
ekki eru virkir í starfi hjá
ykkur?
- Það eru krakkar sem eru
ekki nógu gamlir til að koma á
böll í Dynheima en krakkar
14-15 ára sem hingað koma eru
„Kmkkcir í dag eru
oprnri og frjcds-
segir Steindór Stein-
dórsson „Dyni“
kennslustofum, en höfum sal og
veitingaaðstöðu í Lundarskól-
anum.
- Hvað er þetta mikil starf-
semi í skólunum?
- Við erum með svokallað
opið hús tvisvar í viku á hvorum
stað og einnig höfum við að-
stöðu til að halda fundi og ráð-
stefnur fyrir félög.
- Taka krakkarnir almennt
þátt í þessu?
- Það er mikil þátttaka í þess-
ari starfsemi hjá okkur en því
miður ekki nægilega almenn. Ég
álít að á milli 40 og 50% af
krökkunum komi einhvern tíma
inn í okkar starfsemi. Við
höfum ekki náð til ákveðins
hóps sem ekki sættir sig við
skipulögð félagsstörf eins og við
erum með, svo eru margir sem
eru í íþróttum en þær eru mjög
sterk tómstundaiðja.
- Eru Dynheimar hugsaðir
sérstaklega fyríreldri krakkana?
- Nei, nei. Dynheimar eru
fyrir alla krakka upp í 18 ára
aldur og Dynheimar verða alls-
áfram mætti telja eins og t.d.
Andrésar andar leikana en þar
komum við inn í framkvæmd-
ina.
- Hvað ert þú búinn að starfa
lengi að þessum málum?
- Ég byrjaði sem dyravörður
og alhliða reddari, ætli ég sé
ekki búinn að vera við þetta hús
í 12 ár að undanskildum þremur
árum sem ég var starfsmaður við
Félagsmiðstöðina í Lundarskóla
þegar hún var að komast á lagg-
irnar.
- Hafa unglingarnir breyst
mikið á þessu tímabili?
- Já, t.d. hefur aldurinn á
þeim krökkum sem eru að
skemmta sér færst talsvert niður
á við, a.m.k. alveg tvö ár.
Krakkar 13-14 ára í dag eru
farnir að skemmta sér eins og 16
ára krakkar gerðu fyrir um 10
árum. Krakkar í dag eru frjáls-
legri, hressari og opnari en þeir
voru áður fyrr, en því miður er
ævintýralegur frekjugangur í
sumum þeirra, en það eru sem
betur fer undantekningar.
af og til að skvetta í sig brenni-
víni. Það virðist bara vera eitt-
hvað sem við verðum að sætta
okkur við að sé staðreynd. Þetta
er mál sem við erum alltaf að
reyna að berjast gegn og erum
að reyna að fá fólk til að vinna
með okkur að því. Það eina sem
við getum gert er að fá leiðbein-
endur til að reyna að hafa áhrif
á krakkana. Við getum ekki haft
áhrif á krakka sem við náum
ekki til.
- Er þetta skemmtilegt starf?
- Stundum er þetta alveg
ævintýralega skemmtileg vinna.
Hún er hins vegar ákaflega
þreytandi og t.d. mun erfiðari
en járniðnaður sem ég hef unnið
við. Þetta er krefjandi starf, það
er nánast aldrei frí og skiptir þá
ekki máli hvort um er að ræða
páska, jól eða gamlárskvöld,
þetta er vinna frá því maður
vaknar og þar til maður sofnar,
en lífleg vinna og ákaflega
skemmtileg.
- Þakka þér fyrir spjallið,
Dyni.
- Sömuleiðis, blessaður. gk-.
Stúlkurnar í fegurðarsamkeppni
Akureyrar báru skartgripi frá
’Jlóku.veióLiLn £teinunnai
Hafnarstræti 98 ■ Akureyri • Sími (96) 22214 ■
Konur - Karlar
Skólar - Vinnuveitendur
★ Er jafnrétti karla og
kvenna sjálfsögð
mannréttindi?
★ Hvenær og hvernig
mótast viðhorfin?
★ Eru störf kvenna
mannkyninu minna
virði en störf karla?
★ Hvers vegna eykst
launamunur með
aukinni menntun?
Handhægar upplýsingar og staðreyndir um
misrétti kynjanna.
Fræðsluritið Jafnrétti eða hvað fæst 1
helstu bókaverslunum landsins.
Jafnréttisnefnd Akureyrar.
Eigum fyrirliggjandi
flestar gerðir
af Toyota bifreiðum.
BLÁFELLS K
DRAUPNISGÖTU 7A AKUREYRI — SÍMI 96-21090