Dagur - 19.04.1985, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 19. apríl 1985
í Smiðju um helgina:
Úrval nýrra rétta á helgarseðlinum.
Minnum á leikhúsmatseðiiinn sem er humarsúpa
og koníakssteiktar lambalundir. Verð aðeins kr. 475,-
Hitaveitugjöld eftir mælabreytinguna:
Sumir hækka - aðrir lækka
- sem fer eftir því hvort kaup þeirra á heitu vatni í dag eru of lítil eða raunhæf
„í stórum dráttum má segja að
þeir sem hingað til hafa tekið
minna vatn en þeir þurftu, þ.e.
hafa haft ónógan hita í húsum
sínum yfír köldu mánuðina,
komi til með að greiða meira
fyrir heitavatnsnotkunina eftir
breytingu á mælakerfínu. Ilin-
ir sem haft hafa nægan hita
eiga ekki að þurfa að hækka
neitt og jafnvel gætu reikning-
ar þeirra lækkað eitthvað,“
sagði Wilhelm V. Steindórs-
son, hitaveitustjóri, í viðtali
við Dag.
Menn velta því nú mjög fyrir
sér hvaða áhrif breyting á hemla-
kerfi yfir í mælakerfi komi til
með að hafa. Jafnvel hefur verið
rætt um að hækkunin gæti orðið
100%. Dagur fékk Wilhelm til að
reikna út dæmi svo fólk gæti átt-
að sig á þessu máli.
„í 400 m' húsi, sem er um 160
m‘ og er algeng stærð á einbýlis-
húsi, þarf 3 mínútulítra svo menn
séu öruggir með að þar verði ekki
kuldi í köldustu veðrum. Þeir
sem búa í húsi af þessari stærð og
hafa tekið inn það vatnsmagn
sem þarf koma ekki til með að
þurfa að greiða hærri hitaveitu-
reikninga. í dag kostar 53.280 kr.
á ári að kynda svona hús með 3
mínútulítrum. Eftir breytinguna
lítur dæmið þannig út að miðað
við 50 kr. á tonnið af vatninu og
300 kr. hemlagjald á hvern lítra
kostar ársvatnsnotkunin 45.200
kr. sem er 18% lækkun. Það
verður hins vegar að segjast eins
og er að langflestir íbúar þessarar
stærðar húsa taka ekki nema 2
mínútulítra og ef reiknað er með
að þeir njóti þess hagræðis.að
hafa ávallt heitt í húsum sínum
eftir breytinguna og taki 3 lítra,
þá hækka þeir úr 35.520 kr. eins
og þeir borga í dag miðað við
Hrossaútflutningur:
Litill áhugi
■ / ■■ # ■ /« ■ ■ ií
Ekkert verður úr því að
hrossaflutningaskip komi til
Akureyrar í þessum mánuði til
að taka sláturhross, sem flytja
átti út til Belgíu. Lítill áhugi
var á málinu meðal hestaeig-
enda, þrátt fyrir það að þarna
gátu menn losað sig við afslátt-
arhross fyrir allgóðan pening,
að mati fróðustu manna.
Belgíski kaupandinn vildi 7-15
vetra hross og mátti reikna með
að 8-10 þúsund krónur fengjust
fyrir stykkið, eða talsvert meira
en fæst fyrir gamlar skepnur í
sláturhúsi hérlendis. Auk þess
' taldist það mikil búbót að hrossin
áttu menn að fá greidd innan
tveggja mánaða samkvæmt þeirri
reynslu sem sunnlenskir bændur
fengu af þessum útflutningi sl.
haust.
Að sögn Reynis Hjartarsonar
á Brávöllum í Glæsibæjarhreppi,
sem átti að hafa milligöngu um
þetta mál, kom það mönnum á
- þrátt fyrir góð kjör
óvart að ekki skyldi vera áhugi á
þessum útflutningi. Margir væru
þeirrar skoðunar að allt of mikið
væri af hrossum og þjóðráð að
losna við þau með þessum hætti.
Málið er hins vegar ekki alfarið
úr sögunni, en ef ekki skapast
áhugi gæti svo farið að þessi
markaður tapaðist, sem væri af-
leitt. - HS
heilt ár, í 45.200 kr. sem er 27%
hækkun.
Almennt séð má fólk reikna
með því að það þurfi 1,72 rúm-
metra af vatni á ári til upphitunar
á hverjum rúmmetra húsnæðis.
Þetta samsvarar um það bil 80
kílówattstundum af rafmagni á
rúmmetra húss og er raunhæf
viðmiðun. Út frá þessum tölum
l:.. \ W
* ' -V
**'' ■
Á veiðum.
Mynd: KGA
og áðurnefndum 50 kr. á tonnið
og 300 kr. í hemlagjald á hvern
Iítra fæst þessi niðurstaða. Ég
leyfi mér að fullyrða að hún sé
raunhæf þegar á heildina er litið.
Hins vegar eru aðstæður mjög
mismunandi, t.d. ofnastærð og
þar með nýting á vatninu, sjálf-
virkir lokar o.fl.
Ef tekið er dæmi af 250 m3 eða
100 m2 húsi þá lítur það þannig
út, að ef slíkt hús fengi inn 2
lítra, eins og reiknað er með að
þurfi, þá á hitunarkostnaður á ári
að geta lækkað úr 35.520 kr. í
28.700 kr. eftir breytinguna eða
um 20%. Margir eigendur slíkra
húsa taka hins vegar ekki inn
nema 1 lítra á dag og þeir myndu
því hækka úr 17.760 kr. í 28.700
kr. eða um 61%. Ef miðað er við
lVz lítra í dag, sem ykist í 2 lítra
eftir breytingu, verður hækkunin
úr 26.640 kr. á ári í 28.700 kr.
eða 8%.
Við getum lagt dæmið öðru'
vísi upp. Hitaveitan þarf um 200
milljón króna tekjur á ári, eða
með öðrum orðum 40% tekju-
auka miðað við það sem var fyrir
síðustu hækkun hitaveitugjald-
anna. Þetta þýðir 11% hækkun til
viðbótar því sem hitaveitugjöidin
eru í dag. í grófum dráttum má
segja að þetta verði jafnaðar-
hækkunin á hitaveitugjöldum
fólks. Sumir geta staðið í stað,
aðrir jafnvel lækkað, en þeir sem
vita að þeir hafa verið með of lít-
ið vatn og hafa getað merkt það
af því, að hús þeirra hafa verið
köld þegar kaldast hefur verið í
veðri, mega búast við hækkun-
um, mismunandi miklum," sagði
Wilhelm að lokum. HS
Mengun frá hugsanlegu álveri:
Niðurstööur NILU kynntar
- á Akureyri 26. apríl nk.
Nú styttist í að endanleg
skýrsla vegna mengunar frá
hugsanlegu álveri við Eyja-
fjörð verði lögð fram. Allar
lielstu niðurstöður rannsókn-
anna verða hins vegar kynntar
nokkru fyrr á fundi með sam-
ráðshópnum við Eyjafjörð á
fundi á Hótel KEA 26. aprO
nk.
Að sögn Sigurðar Guðmunds-
sonar, formanns Staðarvals-
nefndar mun reiknimeistarinn
Jörgen Schjoldager frá norsku
stofnuninni NILU kynna niður-
stöðurnar á fundinum á Hótel
KEA en endanleg skýrsla verður
hins vegar ekki lögð fram fyrr en
síðar.
Sem kunnugt er var birting
bráðabirgðaskýrslunnar gagn-
rýnd harðlega m.a. vegna rangra
forsendna um mengun frá nýjum
álverum. Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðherra hefur látið þess
getið í samtali við Dag að nú
verði ekkert annað tekið til
greina en réttar forsendur og því
má búast við því að menn verði
einhverju nær eftir fyrirhugaðan
fund. -ESE
Það verður hægviðri
og bjartviðri, gott
veður á Norðuriandi,
sagði Unnur Ólafs-
dóttir, veðurfræðingur
á Veðurstofunni í
morgun. Hitastig
verður um og yfír
frostmarki.
Helena Rubinstein
snyrtivörur
Vor- og sumarlitimir em komnir.
Armani fyrir dömur og herra.
Hinar heimsfrægu snyrtivörur frá
——
væntanlegar.
Póstsendum.