Dagur - 29.04.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 29.04.1985, Blaðsíða 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 29. apríl 1985 47. tölublað GULLSMKXR , SIGTRYGGUR & PÉTUR 1 AKUREYRI FERMINGAR- Vélarúmshermir Verkmenntaskólans: Strandaður í kerfinu - „Jafnast á við að ræna rófum úr garði nágrannans ef Reykvíkingar fá herminn en við ekki,“ segir skólameistari Verkmenntaskólans Vélarúmshermirinn sem sam- þykkt var að kaupa fyrir Verk- menntaskólann á Akureyri virðist hafa siglt í strand í kerf- inu. Þrír mánuðir eru liðnir síðan samningar við hinn er- Ienda framleiðanda voru undirritaðir en síðan hefur ekkert gerst í málinu. Það var í lok janúar að bæjar- stjóri undirritaði samninginn um kaup á herminum með fyrirvara um endanlegt samþykki bæjar- stjórnar. Samkvæmt samningum á milli ríkis og bæjar átti Akur- eyrarbær að greiða 40% kaup- verðs en ríkið 60%. Samkvæmt heimildum Dags hefur véla- rúmshermirinn verið að velkjast í nefndum í bæjarkerfinu og ástand mála mun vera svipað hjá ríkinu. Þetta er sýnu alvarlegra vegna þess að Vélskólinn í Reykjavík mun hafa hug á að verða sér úti um vélarúmshermi í samkeppni við Verkmennta- skólann. " Vegna þessa sneri Dagur sér til Bernharðs Haraldssonar, skóla- meistara Verkmenntaskólans og innti hann eftir stöðu mála: - Það er rétt að þetta mál hef- ur verið óþarflega lengi í athugun bæði í bæjarstjórn og hjá mennta- málaráðuneytinu. Samþykktir bæjarráðs og bæjarstjórnar síðan í október í fyrra eru ótvíræðar en samt hefur ekkert gerst. Eg vek athygli á því að með hverri vik- unni sem líður minnka möguleik- ar okkar á að fá þennan hermi. Verði vélarúmshermir settur upp við Vélskólann í Reykjavík gæti það eyðilagt okkar mögu- leika. Um leið gætum við misst af einstöku tækifæri til að afla okk- ur nýrrar tækniþekkingar sem komið gæti ýmsum þáttum at- vinnulífsins til góða og fært gæti Akureyringa í forystu á a.m.k. einu sviði skólamála í landinu, sagði Bernharð Haraldsson. Bernharð benti jafnframt á að hugmyndin að þessum véla- rúmshermi hefði fæðst á Akur- eyri. Vinnan við upplýsingaöflun og könnun á tækinu hefði verið unnin af starfsmönnum Verk- menntaskólans. Mikill kostnaður og umtalsverður tími hefði farið í þetta og sér þætti því miður, svo ekki væri sterkar til orða tekið, ef þessi hugmynd yrði svo að veru- leika í Reykjavík en Akureyring- ar sætu eftir með fyrirhöfnina eina í malnum. - Það jafnast á við að ræna rófum úr garði nágrannans, sagði Bernharð Haraldsson. - ESE KEA-popp í Höllinni í tilefni af ári æskunnar ætlar Kaupfélag Eyfirðinga að efna til popptónleika í IþróttahöII- inni á Akureyri á föstudags- kvöld. Aðalfundur kaupfélags- ins verður haldinn um þessa helgi og venjulega hefur aðal- fundarfulltrúum verið boðið að sækja leiksýningu eða söng- Vegaframkvæmdir í Vaðlareit: Tjón á trjá- vanmetið gióðri - Það er alveg Ijóst að tækni- deild Vegagerðarinnar hefur gert mistök þegar það var áætl- að hvað færi mikið af trjám undir vegagerðina í Vaðia- reitnum. Þessi áætlun stenst ekki og vegarstæðið virðist ætla að verða umfangsmeira en okkur var gerð grein fyrir, sagði Hallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógrækt- arfélags Eyfirðinga í samtali við Dag er hann var inntur eft- ir þessu máli. Hallgrímur sagði að Skógrækt- arfélag Eyfirðinga liti þetta mál mjög alvarlegum augum og nú yrði að leita leiða til að draga úr frekara tjóni. - Við munum leita samstarfs við Vegagerðina um þetta. Það er okkur einnig mikið kappsmál að fá að hafa hönd í bagga um hvernig gengið verður frá vegar- stæðinu þegar framkvæmdum lýkur. Við munum ekki sætta okkur við að aðeins verði þarna sáð grasfræði, heldur viljum við græða svæðið upp með trjá- gróðri, sagði Hallgrímur Indriða- son. Hallgrímur kvað of snemmt að kveða upp úr með hve mikið tjón hefði orðið í Vaðlareitnum um- fram það sem ráð var fyrir gert. Það mál yrði að kanna síðar. - ESE skemmtun að kvöldi beggja fundardaganna. Nú verða hverjum fulltrúa afhentir þrír miðar á popptónleikana og ætlast til þess að þeir gefi þá ungu fólki. Samtals er þarna um rúmlega 600 miða að ræða og stefnt verður að því að fylla húsið með öðrum hætti. Það verða Jakob Magnússon og hljómsveit hans ásamt Ragn- hildi Gísladóttur sem koma fram á þessum „æskuárs“-tónleikum kaupfélagsins. Einnig mun félagi Jakobs og Stuðmaður Valgeir Guðjónsson skemmta á tónleik- unum. Tónleikarnir hefjast kl. 21 á föstudagskvöldið. Eins og áður sagði fá allir aðal- fundarfulltrúar afhenta þrjá miða við upphaf fyrri fundardagsins, sem þeir geta ráðstafað eins og þeim best þykir, en í frétt frá KEA er hvatt til þess að sem flestu ungu fólki gefist kostur á að sækja þessa hljómleika. HS Frítt fall. Þessi mynd er tekin í tæplega tíu þúsund feta hæð yfir Akureyri. Hér falla þeir Ómar Þór Eðvaldsson og Steindór G. Steindórsson „frítt“ áður en þeir opna fallhlífar sínar. Fyrir neðan þá má sjá Vaðlaheiðina og neðst á myndinni sést norðurendi flugbrautarinnar. Þriðji stökkvarinn, Sig- urður Baldursson tók myndina. Kranavatn á fernur til útflutnings: „Vonum að þetta verði sannkallaður „gullkrani“ segir Þórarinn Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri á Akureyri „Við vonum að þetta verði sannkallaður „gullkrani“, sagði Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri á Akur- eyri um vatnspökkunarfyrir- tækið Akva sf. sem stofnað hefur verið á Akureyri. Ætlun- in er að vatnið verði tekið beint úr krana í Mjólkursam- lagi KEA. Vatnið kemur ofan úr Hlíðarfjalli. Til að byrja með gæti orðið um 2 milljónir lítra að ræða á ári, sem seldir yrðu í um 10 þúsund einingum. „Þetta vatn stenst gæðakröfur og allt bendir til þess að þetta gangi upp. Vatnið verður selt í fjórðungs og hálfs lítra fernum. Við teljum okkur komna það langt í þessu máli að næsta skref sé að senda prufur. Markaður er töluverður í Evrópu og einnig hefur verið hugsað til markaða í fjarlægari löndum, þ.e.a.s. í Arabalöndun- um. Sem dæmi um markaði sem gætu verið að opnast í enn stærri stíl í Evrópu get ég nefnt að blöð í Danmörku eru um þessar mundir uppfull af fréttum af menguðu grunnvatni þar í landi. Flutningskostnaður yfir hafið er að vísu mikill, en við teljum að þetta eigi að geta gengið upp,“ sagði Þórarinn. Eignaraðilar að þessu nýja fyrirtæki eru kaupfélög á svæðinu frá Hvammstanga að Húsavík, auk sölufélagsins á Blönduósi. Nú er bara að bíða og sjá hvort ekki verður fljótlega farið að framleiða hvítvín úr allri mys- unni sem leggst til og selja það á fernum. HS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.