Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 9

Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 9
ciSQr ie:T! Z - RLIQAQ -8 3. maí 1985 - DAGUR - 9 LETTIH ii Fiimakeppni Hestamannafélagsins Léttis verður haldin laugardaginn 11. maí á hringvelli félagsins í Breiðholti kl. 2 e.h. Knapar tilkynnið þátttöku til Hólmgeirs Jónssonar í síma 21179 eða Birgis Stefánssonar í síma 21021 fyrir mánudaginn 6. maí. Nefndin. Orlofshús Iðju Ákveðið hefur verið að í ár fari fram úthlutun á orlofshúsum félagsins sem eru á llluga- stöðum og Svignaskarði. Sækja þarf um húsin á sérstökum eyöublööum sem fást á skrifstofu félagsins og vinnustöðum. Umsókn þarf að skila fyrir 20. maí nk. Leiga fyrir viku er kr. 2.500,- Iðja félag verksmiðjufólks, Skipagötu 14. Kveðjuhóf Sigurðar Ámórssomr Nýlega lét Sigurður Arn- órsson af störfum hjá Iðn- aðardeild Sambandsins. Samstarfsmenn Sigurðar héldu honum kveðjuhóf í Félagsborg fyrir skömmu. Þar afhenti Kjartan B. Kristjánsson, framleiðslu- stjóri, Sigurði áritað skinn þar sem starfsfélagar hans þökkuðu honum samstarf- ið á liðnum árum. Sigurð- ur tók við framkvœmda- stjórastarfi hjá Plastein- angrun hf. 1. maí sl. Mynd: KGA Innritun í Nú er hafin innritun í sumar- búðir kirkjunnar við Vest- mannsvatn. Gunnar Rafn Jónsson og Steinunn Þórhalls- dóttir innrita í síma 96-41409 alla virka daga frá kl. 17-20. Það má reyna að hringja á öðrum tímum. Nú standa yfir miklar endur- bætur á húsnæði sumarbúðanna og verður boðið upp á 6 barna- flokka og 2 flokka fyrir aldraða í þessum „nýju“ húsakynnum. Þess má geta að laugardaginn 8. júní verður opið hús að Vest- mannsvatni fyrir alla þá er vilja skoða húsakynni og njóta fagurs umhverfis, fara á báta o.s.frv. frá kl. 14-18. Kaffi verður selt til styrktar starfi sumarbúðanna. Verð fyrir barnið í hvern flokk er kr. 5.100, en systkini fá afslátt og greiða kr. 4.500. Allir sem innrita sig verða að greiða kr. 1.000 í staðfestingargjald sem dregst frá dvalargjaldi. Og eins og undanfarin ár er fólki bent á að panta sem fyrst dvalarpláss fyrir börnin, því vinsæiustu flokkarnir verða fíjótt upppant- aðir. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Ránarbraut 9, Dalvík, þingl. eign Ránar hf., fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og Ólafs B. Árna- sonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Dalvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 110. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 og 11. og 15. tbl. 1985 á fasteigninni Karlsbraut 17, Dalvík, þingl. eign Sverris Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Brunabótafélags ís- lands og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 8. maí 1985 kl. 15.30. Bæjarfógetinn á Dalvík. Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtaliö verk: Kristnesveg 1985. Lengd 0,5 kmjnagn 5.000 m3. Verkinu skal lokiö í. ágúst 1985. Útboðsgögn verða afhent hjá V.r. á Akureyri frá og með 6. maí nk. Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 13. maí 1985. Vegamálastjóri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Mímisvegi 16, Dalvík, þingl. eign Sigmars Sævaldssonar, fer fram eftir kröfu Benedikts Ólafssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. maí 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn ó Dalvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 110. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 og 11. og 15. tbl. 1985 á fasteigninni Karlsbraut 2, Dalvík, þingl. eign Sigurðar Kristmundssonar, fer fram eftir kröfu Brunabótafó- lags (slands og Ólafs B. Árnasonar hdl. á eigninni sjálfri mið- vikudaginn 8. maí 1985 kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Dalvík. Orlofshús Umsóknarfrestur um dvöl í orlofshúsum félaganna er til 15. maí nk. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni að Skipagötu 14, Akureyri, sími 21870. Skipstjórafélag Norðlendinga og Vélstjórafélag íslands. Til sölu Mazda 3231500 árg. '82. 5 dyra, sjálfskiptur rauður glæsivagn, ekinn 25 þús. km. Einn eigandi. Uppl. í síma 26443. SAMVINNU TRYGGINGAR Samvinnutryggingar g.t. Akureyri og Húsavík óska eftir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir umferðaróhöpp. Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 6. maí 1985. Á Akureyri í nyrstu skemmu SÍS verksmiðjanna við Glerá, gengið inn að sunnanverðu kl. 12.30 til 15.00. Datsun King Cap ............ árg. 1982 Subaru std. 4x4 ............ árg. 1982 Mazda 323 1500 ............. árg. 1981 Lada 1500 std............... árg. 1980 Allegro .................... árg. 1977 ToyotaCarina ............... árg. 1971 Á Húsavík á verkstæði Bílaleigu Húsavíkur. UAZ469 diesel .............. árg. 1981 Toyota Corolla std.......... árg. 1980 Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t fyrir mið- vikudaginn 8. maí.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.