Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 11

Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 11
3. maí 1985 - DAGUR -11 Norðurlandsmót í badminton: Tvöfalt hjá Haraldi Norðurlandsmótið í badmint- on fór fram um síðustu helgi í Glerárskóla og hvfldi nokkur leynd yfir mótinu. Þar mættu 29 keppendur frá Akureyri, 11 frá Siglufirði og 2 frá Húsavík. vík. Úrslit í einliðaleik karla urðu þau að Haraldur Marteinsson TBS sigraði Kristin Jónsson TBA í úrslitaviðureign 15:10, 12:15, 15:4. Þeir tveir léku svo saman í tvíliðaleiknum og unnu þar í úrslitum Hauk Jóhannsson TBA og Girish Hirlekar TBA 15:8 og 15:8. í einliðaleik kvenna sigraði Sigrún Jóhannsdóttir TBS Guð- björgu Guðleifsdóttur TBS í úr- slitum 11:5 og 11:5. Þær Sigrún og Guðbjörg kepptu síðan saman í tvíliðaleik og töpuðu þá úrslita- viðureigninni fyrir Jakobínu Reynisdóttur og Guðrúnu Er- lendsdóttur TBA. í tvenndarleik sigruðu Guð- björg Guðleifsdóttir og Oddur Hauksson TBS, þau unnu Sig- rúnu Jóhannsdóttur og Sigurð Steingrímsson í úrslitum 15:10 og 15:1. Sigurvegarar í B-flokki urðu Sigurður Sveinmarsson TBA og Margrét Eyfells TBA í einliðaleik, og í öðlingaflokki sigraði öðlingurinn Kári Árna- son. Þess má svo geta að lokum að næsta badmintonmót fer fram 11. maí og er það Akureyrarmót- ið. Verður það í íþróttahöllinni. ikureyrar: istarar! Sem fyrr sagði var sigur Þórs- ara verðskuldaður í þessum mikla baráttuleik. Lítið er þó að marka liðin ennþá við þær að- stæður sem leikið er við, en eftir þessum leik að dæma ættu knatt- spyrnuáhugamenn á Akureyri að eiga skemmtilegt sumar fram- undan þegar liðin komast á grasið. Erlingur Kristjánsson var yfir- burðamaður í liði KA og reis eins og klettur upp úr vörn liðsins í tvennum skilningi. Þá var Þor- valdur traustur í markinu er á hann reyndi en aðra leikmenn er erfitt að taka út úr. í liði Þórs vakti nýliðinn Siguróli Kristjáns- son mikla athygli í stöðu bak- varðar og þar eru Þórsarar að eignast sterkan leikmann. Óskar Gunnarsson var og frískur og sömuleiðis Nói Björnsson en minna bar á Halldóri Áskelssyni, Bjarna Sveinbjörnssyni og Jónasi Róbertssyni en oft áður. ndur sem er færra en Þórsarar fá á heimaleiki sína, og fóru Þórsarar sem voru honum fjárhagslega og hugsa sig tvisvar um áður en þeir bjóðast til að halda ;ri íslands 85:75 og sést Pálmar Sigurðsson skora tvö stiga fslands. - Mynd: KGA Sigurður Gestsson. Sigurður Gestsson og Aldís Arnardóttir voru í sviðsljósinu á íslandsmótinu í vaxtarrækt sem haldið var á veitinga- staðnum Broadway um fyrri helgi. Sigurður og Aldís eru bæði frá Akureyri en þó Aldís sé nú búsett í Reykjavík, kepp- ir hún jafnan fyrir sinn gamla heimabæ. I flokki unglinga undir 75 kg sigraði ívar Hauksson frá Reykjavík. Einar Guðmann frá Akureyri varð annar og bræðurn- ir Björn og Pétur Broddasynir í þriðja og fjórða sæti. Júlíus Guðmundsson sigraði Sigurð Pálsson í þyngri unglinga- flokknum en Júlíus varð síðan ís- landsmeistari unglinga. í léttari kvennaflokknum, und- ir 52 kg sigraði Ása Árnadóttir frá Reykjavík en Guðrún Reynis- dóttir frá Akureyri sýndi mikla keppnishörku og tryggði sér ann- að sætið. Aldís vann svo auðveld- lega í þyngri flokknum og tryggði sér síðan sjálfan titilinn. í léttasta karlaflokki sigraði kraftlyftingamaðurinn Daníel Olsen frá Kópavogi. Sævar Símonarson frá Akureyri náði sér ekki á strik og varð þriðji. Þarna vantaði illilega kraftlyft- ingamanninn Kára Elíson frá Akureyri sem hefði átt góða möguleika á að sigra Daníel. En Kári hætti við þátttöku skömmu ráðir titlar kureyrar Sigurður og Aldís á æfingu. fyrir mótið eins og reyndar Flosi Jónsson. Sigurður Gestsson sigraði í flokki undir 80 kg eftir keppni við Bandaríkjamann og Gest Helgason frá Reykjavík. Var þetta jafnasti flokkur mótsins en Sigurður bar samt talsvert af. I flokki undir 90 kg sigraði Magnús Óskarsson, Reykjavík en Magnús var nú langt frá sínu besta. Fótbrotnaði nýlega og keppti á annarri löppinni og gifs- inu. Þarna hefði Flosi Jónsson átt alla möguleika þar sem keppi- nautar Magnúsar voru fremur slakir. í þyngsta karlaflokknum sigr- aði Kári Ellertsson en hann og aðrir sigurvegarar í karlaflokkn- um biðu svo lægri hlut fyrir Sig- urði Gestssyni. Á þessu móti vöktu stórkostleg sýningaratriði Jóns Páls Sigmars- sonar mikla athygli. Jón Páll bvrjaði á að brjóta reiðhjól niður í upprunalega parta, síðan þandi hann lungun og blés upp hita- poka en hámark sýningarinnar var þegar hann lét Hjalta Úrsus Árnason brjóta gangstéttarhellu með sleggju á brjóstinu á sér. Að sögn Sigurðar Gestssonar sem var við upphitun í salnum undir sviðinu, var höggið svo mikið að það hrundi úr loftinu ofan á hann en Jón Páll kenndi sér ekki meins. Þess má geta að þess er nú skammt að bíða að Akureyr- ingar fái að sjá Jón Pál í eigin persónu með sýningaratriði sín því hann hefur þekkst boð um að koma fram á Akureyrarmótinu í kraftlyftingum sem haldið verður í Sjallanum laugardaginn 25. maí nk. -ESE

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.