Dagur - 24.05.1985, Blaðsíða 4
r*»i I'-n * /i
n ri v
4 - DAGUR - 24. maí 1985
Hin nýja
Hlutverk hinnar nýju
Byggðastofnunar, sem lagt
hefur verið fram frumvarp
um á Alþingi, er að stuðla
að þjóðhagslega hag-
kvæmri þróun byggðar á
landinu með því að koma í
veg fyrir að óæskileg
byggðaröskun eigi sér stað
eða að lífvænlegar byggðir
farið í eyði án þess að reynt
sé að sporna við því. í sam-
ræmi við þetta hlutverk er
gert ráð fyrir að stofnunin
veiti lán, ábyrgðir eða óaft-
urkræf framlög.
Þá er stofnuninni ætlað
að fylgjast náið með þróun
byggðar í landinu og gera
áætlanir um hvernig
treysta megi byggð og at-
vinnu á þeim stöðum þar
sem byggðaröskun væri tal-
in þjóðfélagslega óæskileg.
Auk þess er gert ráð fyrir að
Byggðastofnun geti, innan
ramma lánsfjárlaga, tekið
lán og endurlánað síðan.
Samkvæmt lagafrum-
varpinu er Byggðastofnun
ætlað að vera sjálfstæð
stofnun sem stjórnsýslu-
lega heyrir undir forsætis-
ráðherra. Stofnunin skal
lúta sérstakri stjórn sem
skipuð skal sjö mönnum,
kosnum hlutfallskosningu
á sameinuðu Alþingi að af-
stöðnum almennum þing-
kosningum. Að þessu leyti
er um að ræða breytingu
frá núverandi skipulagi, en
sem kunnugt er er hluta
þeirrar starfsemi, sem hinni
nýju Byggðastofnun er ætl-
að að sinna, nú komið fyrir
sem deild í Framkvæmda-
stofnun ríkisins.
Með þessari nýju
Byggðastofnun er stefnt að
verulegum breytingum á
núverandi framkvæmd og
skipulagi yfirstjórnar
byggðamála. Þessar breyt-
ingar munu gera Byggða-
stofnun allsjálfstæða og
skapa um leið möguleika á
því að takast megi að gera
störf hennar og stefnu-
mótun markviss og árang-
ursrík. Þó verður því ekki
neitað að útlit er fyrir að
stofnunin verði um of háð
duttlungum stjórnmálam-
anna á hverjum tíma. Tekj-
ur hennar koma frá eignum
Byggðasjóðs, sem framlag
úr ríkissjóði eins og ákveðið
er í fjárlögum hverju sinni
og sem fjármagnstekjur.
Þá verður Byggðastofnun
heimilt innan ramma láns-
fjárlaga að taka lán til starf-
semi sinnar innanlands og
erlendis, annað hvort í eig-
in nafni eða fyrir milligöngu
annarra aðila, þannig að
ráðstöfunarfé stofnunar-
innar verði að minnsta kosti
0,5% af þjóðarframleiðslu,
sem er u.þ.b. 2% fjárlaga,
eins og nú er ákveðið í
lögum. Mikill misbrestur
hefur hins vegar verið á því
að núverandi Byggðasjóður
hafi fengið til ráðstöfunar
2% fjárlagaupphæðar, enda
hefur það ekki verið lög-
bundið sem lágmark.
Svo er heldur ekki gert í
frumvarpinu um hina nýju
Byggðastofnun. Er það
miður, því reynslan hefur
sýnt á undanförnum árum
að ekki er tekið á brýnum
byggðaverkefnum fyrr en
málin hafa verið komin í
hnút.
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 200 Á MÁNUDI
LAUSASÖLUVERÐ 28 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Konumar skemmtu sér vel þar til karlarnir komu.
Konur héldu sitt „krúttmagakvöld“ um síðustu
helgi með miklum elegans. „Það var ofsalega
gaman, alveg þangað til karlarnir komu um
miðnættið," sagði ein ónefnd kona, sem minntist
þessarar kvöldskemmtunar með sælubros á vör.
Eins og myndir Kristjáns Arngrímssonar hér á
síðunni sýna, þá var margt til skemmtunar á
þessu kvennakvöldi og það leynir sér ekki að
„krúttin" hafa skemmt sér vel. „Krúttmagakvöld-
in“ voru raunar tvö og var uppselt á þau bæði.
Dagur
fékk sinn
skammt.