Dagur - 24.05.1985, Blaðsíða 16

Dagur - 24.05.1985, Blaðsíða 16
BM® Akureyri, föstudagur 24. maí 1985 Opið alla hvítasimnuhelgina frá 10-22 á Bauta og í hádegi og kvöldin í Smiðju. Klukka r I göngu- götuna - eða á Ráðhústorg „Fyrst hæjaryfirvöld tóku þessu svona vel þá höfum við hugsað okkur að hraða þessu máli eins og hægt er og von- andi kemur þetta til með að lífga upp á umhverfið,“ sagði Haukur Sigurðsson „kjörfor- seti“ Kiwanisklúbbsins Kald- baks á Akureyri í samtali við Dag, en klúbburinn hyggst setja upp klukku á Ráðhús- torgi eða í göngugötunni. Haukur sagði að þessi klukka væri hugsuð til þess að þjóna gangandi vegfarendum, en ekki síst væri það ætlunin að leigja út auglýsingapláss á klukkunni. „Pannig gætum við fengið tekj- ur til þeirra verkefna sem við erum að vinna að hverju sinni. Því að páskaeggjasalan sem við höfum mikið byggt á, hefur brugðist og álagning er lítil.“ Bæjarráð afgreiddi erindi Kaldbaks jákvætt og verður klukkan staðsett í Miðbænum í samráði við bæjarverkfræðing. gk-- Upplýsingarit um Akureyri Símaskrá, öðru nafni Upplýs- ingarit um Akureyri 1985, er nú komin út í endurbættri út- gáfu. Þetta er í þriðja sinn sem sérstök símaskrá er gefín út fyrir Akureyri af öðrum en Pósti og síma. Þetta upplýsingarit hefur notið vinsælda, enda handhægt í með- förum þegar hringt er innanbæj- ar. Þá er að finna ýmsar gagnleg- ar upplýsingar í ritinu, t.d. mjög gott kort af Akureyri og öll póst- númer landsins á einum stað, sem er býsna þægilegt. Skrá þessi er nú í fyrsta skipti gefin út með leyfi Pósts og síma. Henni verður dreift í öll hús á Akureyri um helgina. HS Það er spáð norðan- og norðaustanátt með éljum á morgun og sunnudag, en á annan í hvítasunnu gera veðurfræðingar sér vonir um austlægari átt, mildara veðri og þurrara á Norður- landi. Já, þetta kennir mönnum vonandi þá lex íu að það er óráðlegt að gera lítið úr langtímaspám veðurspámanns Dags! Nýkomíð glæsilegt úrval af dömutöskum. Opið laugardaga kl. 10-12. Miðstöð hagstæðra viðskipta. Norðausturland: Bundið slitlag á 30 Km Á fjórða tug km á Norðaust- urlandi verða í sumar lagðir bundnu slitlagi, að sögn Guð- mundar Svavarssonar um- dæmisverkfræðings Vegagerð- ar ríkisins á Norðurlandi eystra. í Víkurskarði verður lagt á 9 km, frá Grenivíkurvegi að aust- urbrún skarðsins, og frá Víði- völlum að Fnjóskárbrú. Lagt verður á tvo kafla í Ljósavatns- skarði samtals 1,5 km. Á norðausturveginn verður lagt á 7,8 km kafla frá Krossi að Fellsseli í Köldukinn, og á sama vegi 1,5 km við Ásbyrgi. 2,8 km verða lagðir bundnu slitlagi á Ólafsfjarðarvegi, á Hámundarstaðahálsi og verður þá öll leiðin Akureyri-Dalvík lögð bundnu slitlagi að því loknu. Á Eyjafjarðarbraut verður lagt á 9 km kafla frá Espihóli að Melgerði, en þar er um að ræða einbreitt lag, 4 metrar á breidd. Verður það lagt á miðju vegarins þannig að bifreiðastjórar þar verða að aka út af bundna slitlag- inu með hægri hjól bifreiðanna þegar þeir mætast. Að sögn Guðmundar er þetta heldur meira en lagt var í fyrra á Norðausturlandi. Einnig er í at- hugun að leggja á þrjá vegi sam- tals 5 km, en það er á Kristnes- vegi Hjalteyrarveg og Vagla- skógarveg, en ákvörðun um þetta síðastnefnda hefur ekki verið tekin. gk-. Stór, stærri, stærstur. Starfsmenn á Akureyrarflugvelli höfðu í mörg hom að líta í morgun, enda umferð með meira móti. M.a. nemendur úr VMA, og Oddeyrarskóla, sem lögðu upp í beint flug til Danmerkur. Mynd: KGA Kópasker: Framleiösla hafin á gróðrarmottum? Ýmislegt bendir til þess að á Kópaskeri muni rísa verk- smiðja sem framleiðir „En- viromat“ gróðrarmottur. Þetta var tilkynnt á blaðamanna- fundi á Hótel Esju í Reykjavík í gær. „Enviromat" gróðrarmottan er áströlsk uppfinning og er mottan íslenska hljómsveitin: Létt sveifla í Höllinni Norðlendingum gefst nú kost- ur á að hlusta á íslensku hljómsveitina á annan hátt en í gegnum útvarp eða sjónvarp. Ákveðið hefur verið að hljóm- sveitin heimsæki Akureyri á annan dag hvítasunnu og haldí hljómleika í íþróttahöllinni kl. 14.00. Óhætt er að fullyrða að það sem hljómsveitin býður upp á er við allra hæfi. í för með hljómsveitinni verða gítarleikararnir Björn Thor- oddsen og Vilhjálmur Guðjóns- son. Leiknar verða léttar sveiflur eftir Stefán S. Stefánsson, Ólaf Gauk Vilhjálmsson og fleiri. gej úr viðarull sem haldið er saman með gegnofnu neti, en viðarullin er framleidd úr furu eða greni. Ásgeir Leifsson verkfræðingur í Reykjavík er frumkvöðull að þeim athugunum sem nú fara fram á því að framleiða þessar mottur á Kópaskeri en það er Presthólahreppur sem að athug- uninni stendur. Þessum mottum er ætlað að veita grasfræi ákjós- anleg skilyrði til vaxtar, veita skjól og hindra uppgufun frá jarðvegi. Ætlunin er að ýmsir að- ilar muni reyna efnið hér á landi s.s. Vegagerð ríkisins, Lands- virkjun, Rafmagnsveitur ríkisins, Hitaveita Akraness, Hitaveita Borgarness, Skógrækt ríkisins og Landgræðsla ríkisins. Ásgeir Leifsson sagði að ákvörðun um hvort farið yrði út í þessa framleiðslu á Kópaskeri yrði tekin um mitt ár 1986 og myndi framleiðsla þá væntanlega hefjast um áramótin 1986-1987 og við framleiðsluna myndu í upphafi starfa 5-7 manns. gk-.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.