Dagur - 24.05.1985, Side 11
24 maí 1985 — DAGUR -11
Bjami Sveinbjömsson hefur skotið að marki Víkinga og boltinn rataði í netið. Þórður Marelsson reynir að hefta
skot Bjarna, en tekst ekki. Það var einmitt Þórður sem skoraði sjálfsmark skömmu áður. Mynd: KGA
Þórsarar krœktu í
3 mikilvœg súg
- Þórsarar halda sig við topp-
inn í 1. deildinni eftir 2:1 sigur
gegn Víkingi á Þórsvelli í
fyrrakvöld. Leikið var á gras-
velli Þórs í kuldanepju og var
sigur Þórs verðskuldaður, þeir
voru lengst af betri aðili leiks-
ins og sýndu mun betri takta
en andstæðingar þeirra.
Það þurfti þó sjálfsmark til að
koma Þór á blað og það var
„stórkostlegt“ mark. Þórður
„Var
það
ekki
hann?“
„Þórsarar fengu góða hjálp
frá okkur, sjálfsmark t.d. en
mér fannst einkenna leikinn
hversu grófir þeir voru,“ sagði
Björn Árnason þjálfari
Víkings, og fyrrverandi þjálf-
ari Þórs. Það lá því beint við
að spyrja Björn hver hefði
kennt strákunum að spila
svona gróft.
- Björn var ekki lengi að
skilja „sneiðina“, hann kippti
í mann sem stóð nærri honum
og sagði: „Ætli það hafi ekki
verið þessi.“
Sá sem stóð við hlið hans
var Þorsteinn Ólafsson sem
tók við þjálfun Þórs af Birni
og var með liðið í fyrra. - Þeir
sem telja sig muna vel, minn-
ast þess að Björn lagði talsvert
upp úr því að menn spiluðu
„fastan bolta“ og það var ein-
mitt það sem Þórsarar gerðu
gegn Víkingi án þess að um
áberandi grófan leik væri að
ræða.
Marelsson bakvörður langt til
hliðar við Víkingsmarkið ætlaði
að hreinsa frá eftir mikla pressu
Þórsara, en hann hitti boltann
ekki betur en svo að hann sveif í
boga yfir markvörðinn og í netið,
1:0 og dapurlegt augnablik fyrir
Þórð.
Síðara mark Þórs kom á 37.
mín. Siguróli Kristjánsson braust
upp hægri kantinn, gaf fallegan
bolta inn á miðjuna þar sem
Bjarni Sveinbjörnsson kom ask-
vaðandi og Bjarni gerði engin
mistök er hann renndi boltanum
laglega í netið, fallegt mark og
vel að því staðið.
Þórsarar voru mun betri aðil-
inn í fyrri hálfleik þó að þeir
hefðu vindinn í fangið. - Bjarni
átti skalla rétt yfir mark Víkings
í upphafi síðari hálfleik og undir
lok leiksins var hann tvívegis á
ferðinni upp við markið, skaut
yfir eftir laglegt gegnumbrot
Halldórs Áskellssonar upp hægri
kantinn og annað lúmskt skot
hans utan úr teig fór rétt framhjá.
Áður höfðu Víkingar skorað
sitt mark, Atli Einarsson skoraði
það með fallegu skoti, sneiddi
boltann utan úr teig í fjærhornið
eftir innkast en Þórs-vörnin var
illa á verði.
Leikurinn bar talsverð merki
ytri aðstæðna, mjög kalt var og
hráslagalegt en Þórsarar voru
sterkari aðilinn. Góð barátta var
í liðinu og bestu menn í annars
jöfnu liði, Nói Björnsson fyrir-
liði, Halldór Áskellsson og Sigur-
óli Kristjánsson sem fer vaxandi
með hverjum leik. Lið Víkings
var dapurt enda vantaði liðið lyk-
ilmenn sem eru meiddir.
- Næst er útileikur gegn Fram
hjá Þórsurum og þá er að duga
eða drepast, enda Fram-liðið tal-
ið það besta hér á landi í dag.
Staðan
Staðan í 1. deil íslandsmótsins í
knattspyrnu er nú þessi eftir leiki
3. umferðar:
KR-Akranes
Fram-Valur
Þór-Víkingur
Víðir-ÍBK
Þróttur-FH
Fram 3
ÍBK 3
Þór 3
KR 3
Akranes 3
Valur 3
FH 3
Þróttur 3
Víkingur 3
Víðir 3
1:1
2:2
2:1
1:2
1:0
2 1 0 8:3 7
2 0 1 6:5 6
2 0 1 5:4 6
1 0 2 6:5 5
1 1 1 8:3 4
1 1 1 5:5 4
1 1 1 2:2 4
1 0 2 5:6 3
1 0 2 3:6 3
003 1:10 0
Tindastóll og
Leiftur áfram
Glæsimark Helga Jóhannes-
sonar - hjólhestaspyma - kom
Leiftri áfram í 2. umferð bikar-
keppni KSÍ en þetta mark
nægði Leiftri gegn Völsungi
frá Húsavík er liðin mættust á
Ólafsfirði í fyrrakvöld.
Mark Helga kom þegar leikið
hafði verið í 116 mín. og aðeins 4
mín. eftir af framlengingunni.
Mikið gekk á í leiknum og hefðu
bæði liðin getað gert út um hann
fyrr en ekkert gekk upp við
mörkin.
Á Sauðárkróki léku Tindastóll
og Vaskur og sigraði Tindastóll
2:1. Jónas Guðjónsson skoraði
fyrir Vask í fyrri hálfleik, en þeir
Ádolf Árnason og Eiríkur Sverr-
isson fyrir heimamenn í þeim síð-
ari.
í 2. umferð mætir Tindastóll
KA á heimavelli og Leiftur á að
fá Siglfirðinga í heimsókn, en
þessir leikir fara fram 5. júní.
Á AKUREYRl
Inntökupróf
Inntökupróf í Myndlistaskólanum á Akureyri
fyrir skólaárið 1985-1986
verður haldið dagana 3.-6. júní nk.
Umsækjendur láti skrá sig á skrifstofu skólans
fyrir 29. maí.
Skólastjóri.
Sjómenn-
Útgerðarmenn
Eigum fyrirliggjandi á lager úrvals
japönsk þorskanet.
Einnig höfum við handfærabúnað
og búnað til togveiða.
SANDFELL HF
Oddeyrarskála sími (96) 26120 Akureyri
Sími (96) 24654 eftir kl. 17.00.
SAMVINNUSKÓLINN
BIFRÖST
skóli
fyrir
plCJr
UMSÓKNARFRESTUR
10. mars - 10. júní.
Umsókn sendist til skólastjóra Samvinnuskólans
Bifröst
311 Borgarnes.