Dagur


Dagur - 24.05.1985, Qupperneq 13

Dagur - 24.05.1985, Qupperneq 13
“io«*>*■ kc ai icun .. ?r 24. maí 1985 - DAGUR - 13 AMstám Vestnmn sýnir á Jaðri Aðalsteinn Vestmann listmál- ari opnar málverkasýningu að Jaðri - skála Golfklúbbs Ak- ureyrar, nk. laugardag kl. 14. Stendur sýningin yfir til mánu- dagskvölds og verður opin daglega kl. 14-22. Flest verkin verða til sölu. Þetta er önnur einkasýning Aðalsteins á Akureyri en að auki hefur hann haldið einka- sýningu í Reykjavík og tekið þátt í fjölmörgum einkasýn- ingum. Hann lauk námi frá Handíða- og myndlistaskólan- um 1951, og er nú starfandi myndmenntakennari við Barnaskóla Akureyrar. Sýningá handavinnu Œlíð Annan í hvítasunnu verður haldin sýning á handavinnu vistmanna að Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Sýndir verða munir sem vistmenn hafa unn- ið að í vetur, svo sem prjónles, heklaðir dúkar o.fl. Flestir munirnir eru til sölu. Samhliða sýningunni verða kaffiveiting- ar fyrir alla. Sýningin hefst kl. 14 og stendur til 17, en kaffi- veitingar verða fram bornar frá kl. 15. Brekkuhlaup ámánudag Verslunin Garðshorn við Byggðaveg gengst á 2. dag hvítasunnu fyrir svokölluðu Brekkuhlaupi, og hefst það við verslunina kl. 14, en kepp- endur þurfa að mæta kl. 13 til skráningar. Keppnin er fyrir alla krakka 14 ára og yngri. Keppt verður í þremur flokkum drengja og stúlkna og verða því 18 verð- launabikarar afhentir í lok keppninnar. Einnig munu sig- urvegarar fá í verðlaun útsýn- isflug yfir Akureyri. Þegar keppendur koma í mark verður tekið á móti þeim með gosdrykkjum sem Sana gefur, og Garðshorn leggur til sælgæti til að „maula" með. Þá er líklegt að einhverjar uppákomur verði á ferðinni og ættu krakkarnir því að fjöl- menna í þetta fyrsta „Brekku- hlaup“ á Akureyri. íslenska htjómsveitin með sveifluverk í Höllituii Um næstu helgi leggur ís- lenska hljómsveitin land undir fót með „sveiflur" sínar í pokahorninu. Haldnir verða tvennir tónleikar, þeir fyrri í Samkomuhúsinu í Vest- mannaeyjum á hvítasunnudag og þeir síðari annan hvíta- sunnudag í íþróttahöllinni á Akureyri. Hefjast tónleikarnir kl. 14.00. Efnisskráin er að. hluta til sú sama og hljómsveitin lék í Laugardalshöll á öskudags- kvöld, en um 1300 manns sóttu þá skemmtun. Flutt verða sveifluverk eftir Stefán S. Stefánsson, Vilhjálm Guð- jónsson, Ólaf Gauk og fleiri. Að auki leikur hljómsveitin gítarkonsert eftir Joseph Fung, sem frumfluttur var á síðustu áskriftartónleikum hljómsveitarinnar í ár, en verk þetta hlaut lofsamlega dóma. 25 tónlistarmenn taka þátt í ferðinni. Stjórnandi hljóm- sveitarinnar er Guðmundur Emilsson. Þrír gítarleikarar koma fram með hljómsveitinni, tveir rafmagnsgítarleikarar og einn sem spilar á klassískan gítar. Það eru þeir Bjöm Thor- oddsen og Vilhjálmur Guð- jónsson sem spila á rafgítar- ana, en Joseph Fung frá Hong Kong leikur konsert eftir sjálf- an sig á klassískan gítar. Auk þess kemur fram Ás- geir Hermann Steingrímsson frá Húsavík og leikur stórt sóló í einu verkanna. Guðmundur Emilsson stjórnandi hljómsveitarinnar var spurður um tildrög ferðar- innar. Sagði hann að ferðin hafi verið í undirbúningi undanfarnar vikur, og vildi Guðmundur koma fram sér- stökum þökkum til þeirra fjöl- mörgu aðila á Akureyri sem stutt hafa hann og hljómsveit- ina við undirbúning ferðarinn- ar norður. í sambandi við þessa glæsi- legu tónleika má taka fram að félagar í Tónlistarfélagi Akur- eyrar fá afslátt af verði að- göngumiða gegn framvísun á stofni afsláttarkorts. Lyftí SjaÉanum Akureyrarmótið í kraftlyfting- um verður haldið í Sjallanum á morgun, laugardag kl. 13. Þar mæta 11 keppendur til leiks og er talið að hörð bar- átta muni verða í stigakeppn- inni á milli Víkings „bangsa“ Traustasonar og Flosa Sig- urðssonar. Frá Reykjavík kemur einn keppandi sem reyndar gengur til leiks undir merki ÍBÍ, er það hinn ört vaxandi lyftari Eiríkur St. Eiríksson sem er að sögn til alls líklegur um þessar mundir. Vaxtarræktarmennirnir Sig- urður Gestsson og Sigurður Pálsson verða í hópi keppenda og verður fróðlegt að sjá til þeirra í baráttunni við lóðin. Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð í fþróttaskemmunni klukkan tvö eftir hádegi laugardaginn 25. maí. Á sýningunni verða u.þ.b. eitt þúsund verk eftir pemendur hinna ýmsu deilda skólans. Þetta er stærsta og veglegasta sýning á verkum nemenda skólans til þessa. Starfsemi Myndlistaskólans er einkum tvíþætt. Annars vegar eru það síðdegis- og kvöldnámskeið fyrir börn og fullorðn.t í hinum ýmsu grein- um sjónmcnnta og hins vegar fullgildur dagskóli þ.e. For- námsdeild, sem er fyrsta ár reglulegs listnáms og Málunar- deild, sem er þriggja ára sérnám. Einnig annast skólinn hinn faglega þátt myndlista- brautar Menntaskólans á Ak- ureyri. Nemendur geta nú lokið listnánti sínu hér við Mynd- listaskólann á Akureyri og munu fyrstu nemendurnir verða brautskráðir í vor úr Málunardeild að loknu fjög- urra ára námi við skólann. Með því er mikilvægum áfanga náð í sögu skólans. Umsóknarfrestur um skólavist í dagskóla veturinn 1985-86 er til 29. maí. Gefst því þeim sem hug hafa á að sækja um skólavist gott tæki- færi til að kynnast starfsemi skólans laugardag, sunnudag og mánudag í íþróttaskemm- unni. Sýningin verður opin alla dagana klukkan tvö til tíu eftir hádegi. Nemendur Myndlistaskól- ans á Akureyri voru tvö hundruð á hvorri önn í vetur og kennarar tíu. Skólastjóri er Helgi Vilberg. á Blönduósi Oft er blástur á Blönduósi, en um helgina verður þar óvenju mikili blástur og það úr öllum áttum. Blönduósingar eiga nefni- lega von á um 100 blásur- um frá Tónlistarskólanum á Akureyri í heimsókn og einnig kemur sveit blásara frá Seltjarnarnesi. Þar verður síðan haldið blás- aramót, sem hefst með úti- tónlcikum kl. 14.00 á laug- ardaginn. Síðar um daginn verða samæfingar sveit- anna í félagsheimilinu, en á sunnudaginn bregða blás- ararnir sér í hcimsókn í Kántríbæ á Skagaströnd og taka þar ef til vill lagið. Eftir hádegið verða síðan tónleikar í félagsheimilinu á Blönduósi, en að þeim loknum verður haldið heim á leið. Á heimleiðinni verða haldnir útitónlcikar á Sauðárkróki og er reikn- að með að þeir hefjist kl. 17.30. í blásarasveitunum frá Akureyri eru börn og ungl- ingar, allt frá 8 ára aldri, en elstu blásararnir eru 16 ára. Sveitirnar eru fjórar og eru stjórnendur þeirra Roar Kvam, Edward Frederiks- sen, Finnur Eydal og Knút- ur Birgisson. Upphaflega ætluðu fleiri sveitir að taka þátt í þessu móti, en liðs- menn sumra þcirra reynd- ust komnir til sveita og á kaf í sauðburðinn, þegar til átti að taka. Það eru því eingöngu sveitir frá Akur- eyri og Seltjarnamesi sem taka þátt í mótinu, en auk þeirra koma einstakir blás- arar víðs vegar af Norður- landi til leiks. Landssamtök um jafnrétti landshluta: Funda í Siauanum Landssamtökin bjóða til al- menns kynningar- og umræðu- fundar í Sólarsal Sjallans þriðjudaginn 28. maí kl. 20.30. Verða þar framsöguer- indi og almennar umræður um markmið og starf samtakanna, auk þess sem þátttökulistar fyrir nýja meðlimi liggja frammi. Landssamtök um jafnrétti milli landshluta eru þjóðmála- hreyfing áhugafóks úr öllum stjórnmálaflokkum sem komið var á fót til að jafna aðstöðu fólksins í landinu og draga úr efnahagslegri og pólitískri miðstýringu. Á undanförnum áratugum hefur hið íslenska stjórnkerfi leitað í farveg miðstýringar. Völd og fjármagn safnast á sama blettinn ásamt tilheyr- andi og sívaxandi þjónustu- bákni. Sú yfirbygging er nú þegar orðin allt of stór og blæs sífellt út. Þar er boðið upp á næg atvinnutækifæri, og fólki fjölgar stöðugt. Þó koma 60- 70% útflutningstekna þjóðar- innar frá öðrum stöðum landsins. Landssamtökin eru fjölda- hreyfing allra, sem telja nauð- synlegt að stöðva þessa þróun: Sem vilja stefna úr miðstýr- ingu í valddreifingu. Til þess að ná markmiðum sínum telja samtökin nauðsyn- legt að gera nokkrar grund- vallarbreytingar á stjórnar- skrá landsins, og hefur nefnd á vegum þeirra þegar unnið hugmyndir að þeim. Þær gera ráð fyrir að landinu verði skipt í fylki, sent hafa víðtæka sjálfstjórn, yfirráðarétt yfir auðlindum sínum og ráðstöf- unarrétt á tekjum sínum. Þau telja að þannig sjái menn bet- ur ábata vinnu sinnar. Það stuðli að jákvæðu hugarfari, aukinni virðingu fyrir vinnunni og þar af leiðandi bættum af- köstum. Vorkoma á Dalvík Um hvítasunnuna, eða nánar tiltekið dagana 25.-27. maí verður haldin „Vorkoma á Dalvík". Er hér um að ræða hátíð sem Lionsklúbburinn á staðnum hefur staðið fyrir undanfarin ár. Að sögn nýkjörins formanns Lionsklúbbsins, Árna Óskars- sonar verður margt til skemmtunar. Laugardaginn 25. maí hefst hátíðin með setningarræðu bæjarstjórans á Dalvík, Stef- áns Jóns Bjarnasonar. Síðan verður opnuð myndlistarsýn- ing í barnaskólanum þar sem þau sýna Kristinn G. Jóhanns- son sem sýnir 42 verk og Guð- björg Ringsted. En sýning þeirra Kristins og Guðbjargar stendur alla dagana og er opin frá kl. 10-22. Á laugardaginn verður kvik- myndasýning fyrir börn, og verður sýnd myndin „Bud í vesturvíking" er sýningartími kl. 14 og 16. Á hvítasunnudag verður málverkasýning Kristins og Guðrúnar. Annan í hvítasunnu verður söngskemmtun í Víkurröst. Þau sem þar koma fram eru: Kolbrún Árngrímsdóttir, sem syngur við undirleik Colin P. Virr. Jóhann Már Jóhannsson syngur við undirleik Guðjóns Pálssonar. og síðast en ekki síst skemmtir Hallbjörn Hjart- arson kántrísöngvari. Vorkappreiðar Léttis Ingimar Ingimarsson á Hólum tekur gæðing sinn til kost- anna. Árlegar vorkappreiðar hesta- mannafélagsins Léttis verða haldnar um helgina, nánar til- tekið á annan í hvítasunnu. Þeir sem vilja fylgjast með frá upphafi verða að drífa sig snemma á fætur, því for- keppnin hefst kl. 9 um morg- uninn. Hún stendur fram und- ir hádegi, en eftir matinn, já menn geta meira að segja hall- að sér aðeins, því keppni ungl- inga hefst ekki fyrr en klukkan tvö. Reiknað er með að hún taki um klukkutíma, en síðan hefst úrslitakeppnin í A- og B- flokkum gæðinga. Þar er reiknað með jafnri og spenn- andi keppni, því Léttismenn eiga marga góða gæðinga, sem erfitt er að gera upp á milli. Eftir kaffi verða síðan kapp- reiðar, þar sem þeir fótfráustu reyna nteð sér as keiði og stökki. Mótið fer fram á nýj- um skeiðfvelli þeirra Léttis- manna. sem er á holtinu neðan og norðan við Lögmannshlíð- arkirkju.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.