Dagur - 21.06.1985, Qupperneq 16
wmm
Akureyri, föstudagur 21. júní 1985
Bundið
slitlag á
veginn um
Vaglaskóg
Isleifur Sumarliðason, Vögl-
um, hafði samband við blaðið
og bað um að því yrði komið á
framfæri að tjaldstæði og hjól-
hýsastæði í Vaglaskógi yrðu
opnuð laugardaginn 22. júní.
Verið er að leggja bundið slit-
lag á veginn í gegnum Vaglaskóg
og sagði ísleifur að þar með
myndi rykmökkurinn af veginum
heyra sögunni til. Gróðurinn í
skóginum er kominn óvenju stutt
á veg, miðað við árstíma, og eru
það kuldarnir undanfarið sem
því valda. - HJS
Bamaskóli
Akureyrar
fékk tölvur
að gjöf
Hressir strákar í Skákfélagi
Barnaskóla Akureyrar. Þeir
söfnuðu tuttugu og átta þús-
und krónum með því að tefla í
heilan sólarhring og keyptu
fyrir peningana tvær tölvur
sem þeir gáfu Barnaskólanum.
„Skákfélagið er öflugasta fé-
lagið í skólanum, við höfum
haldið ball og mörg skákmót,“
segja þeir.
Tölvurnar keyptu strákarnir af
Menntaskólanum. „Við fengum
þær á mjög góðu verði og viljum
koma á framfæri þökkum til MA
fyrir að gera okkur þetta kleift."
Tölvurnar eru staðsettar á
bókasafni skólans og sögðu strák-
arnir að þeir sem væru fljótir að
læra og kláruðu sín verkefni á
undan öðrum gætu farið í tölv-
urnar, en þar eru til forrit með
ýmsum leikjum, auk annars.
„Það verða vonandi keyptar fleiri
tölvur með tímanum,“ sögðu
þessir hressu strákar að lokum.
- mþþ
19. júní gróðursettu konur í Eyjafirði trjáplöntur
í tilefni þess að þá voru liðin 70 ár frá því að
konur fengu kosningarétt á Islandi. Þessi mynd
var tekin þegar Aldís Einarsdóttir
á Stokkahlöðum vann að gróðursetn-
ingu að Hrafnagili, en Aldís
á eina öld að baki.
Kvennaathvarf á Akureyri:
Þöifin mikil
og aðsókn
fer vaxandi
„Þörfin fyrir þessa starfsemi er
mikil og maður sér það alltaf
betur og betur hvað þetta við-
gengst en þetta fer leynt,“
sagði Arnheiður Eyþórsdóttir,
ein þeirra kvenna sem standa
að rekstri kvennaathvarfs á
Akureyri, um þörfina á slíku
athvarfi hér á Akureyri.
Tæpt ár er liðið síðan athvarfið
var sett á stofn og hefur aðsóknin
eftir vist þar aukist smám saman
síðan. Arnheiður sagði að konur
væru yfirleitt seinar til að leita sér
aðstoðar og kæmi þar m.a. til
hræðsla við umtal, sem er meiri
I eftir því sem samfélagið er
minna.
Auk þess að bjóða þeim kon-
um húsaskjól sem á því þurfa að
halda vegna aðstæðna heima fyrir
er einnig veitt ráðgjöf í síma
kvennaathvarfsins og sagði Arn-
heiður að notkun þeirrar þjón-
ustu færi einnig vaxandi. Ráð-
gjöfin er veitt í síma 26910 kl.
14—18 daglega. - yk.
- Einingarfélagar samþykktu þá með 181 atkvæði gegn
13 og verslunarmenn samþykktu þá samhljóða
Um síðustu helgi var undirrit-
aður samningur milli ASI og
VSÍ um endurnýjun launaliða
kjarasamninga til næstu ára-
móta og verða launahækkanir
á þeim tíma að meðaltali
14,5%. Lægstu laun hækka um
16,8% á sama tíma.
Meðal þess sem Samið var um
nú er að skipuð verði nefnd, með
fulltrúum VSÍ og Verkamanna-
sambandsins og er hlutverk
nefndarinnar að leita leiða til að
gera störf í fiskvinnslu eftirsókn-
arverð og bæta kjör fiskverkun-
arfólks. Nefnd þessari er ætlað að
skila tillögum sínum fyrir 1. des-
ember nk.
Víðs vegar af landinu berast
nú upplýsingar um að svo og svo
margt fólk vanti til starfa í fisk-
vinnslu og er það helst á stöðum
eins og á Akureyri þar sem ekki
er nóga atvinnu að hafa sem fisk-
verkunarfyrirtæki eru sæmilega
mönnuð. Jón Helgason, formað-
ur Einingar var spurður um
hvaða hugmyndir væru helst uppi
um leiðir til að bæta stöðu fisk-
verkunarfólks. Jón sagði að
stjórnendur fiskverkunarstöðva
og fólkið sem þar vinnur væru
nú að koma auga á það að aukin
menntun í verkun fisks væri sú
leið sem fara ætti til að auka gæði
afurðanna og um leið veg fisk-
vinnslunnar í augum fólks og
einnig þurft að koma til breyttir
hættir við veiðar og vinnslu og
betri stjórnun. Ef þetta næði
fram að ganga ynnist með því
tvennt: Verðmæti afurðanna yk-
ist og virðing starfsgreinarinnar
um leið. Allt þetta ætti svo að
stuðla að bættum hag þjóðarinn-
ar allrar því að fiskveiðar og
vinnsla eru jú undirstaða íslensks
atvinnulífs.
Hinir nýju samningar voru
kynntir á félagssvæði Einingar
síðastliðna þrjá daga og voru at-
kvæði greidd á fundunum.
Atkvæði féllu þannig að 181 var
með samningnum en 13 á móti.
Auðir og ógildir seðlar voru 4.
Hjá Iðju, félagi verksmiðju-
fólks voru greidd atkvæði um
samningana á fundi í gærkvöld og
voru þeir samþykktir með öllum
þorra atkvæða gegn 2. Á milli
160 og 170 manns voru á fundi. í
félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks voru samningarnir einnig
samþykktir á fundi í gærkvöld
með öllum greiddum atkvæðum.
Um 50 manns voru á fundi.
í dag og fram á sunnu-
dag er reiknað með
austanátt og skýjuðu
á Norðurlandi, en lík-
lega rignir ekki mikið.
Hitastigið verður
svona á bilinu 7-9 stig,
samkvæmt upplýsing-
um veðurstofunnar í
morgun.
Nýkomið ■ Nýkomið
Blómapottar í öllum stærðum og gerðum
úti sem inni.
Glæsileg vara á góðu verði.
Opið á laugardögum.
Póstsendum.