Dagur - 17.07.1985, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMiÐIR
! SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 17. júlí 1985
77. tölublað
Kanadaverkefni Slippstöðvarinnar:
Nemur 40-50% af af-
köstum í eitt til tvö ár
Svæðisútvarpið:
- Áður en tekin
verður ákvörðun um
frekari rekstur
- Starfsmönnum fjölgað - alltaf eitt skip i slipp i
Talsverðar Iikur eru á að Slipp-
stöðin á Akureyri fái verkefni
við breytingar og endurbætur
á kanadískum togurum út allt
næsta ár og jafnvel fram á árið
1987.
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar er ný-
kominn frá Kanada þar sem
endanlega var gengið frá samn-
ingum um breytingar á tveimur
fyrstu skipunum og kemur það
fyrra í september í haust. Menn
frá útgerð skipanna koma til Ak-
ureyrar um miðjan ágúst og þá
verður gengið frá samningum um
tvö næstu skip. Ætlunin er að
semja um tvö skip í senn og að um
Færeysk bókagjöf
Á mánudaginn voru Amtsbókasafninu á Akureyri afhentar bækur, sem því hafa borist að gjöf frá Færeyjum, um
100 bindi. Það var landsbókavörður Færeyja, Sverri Egholm, sem afhenti bækurnar að viðstaddri bókasafnsnefnd
og stjórn Færeyingafélagsins á Akureyri. Hér glugga þeir í færeyska bók, Sverri Egholm og Ólafur Sigurðsson, sem
á sæti í bókasafnsnefnd. Mynd: KGA.
senn
samfellda vinnu verði að ræða
þannig að alltaf sé a.m.k. eitt
skip upp í slipp.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum felast þessar breytingar
fyrst og fremst í því að það á að
kassavæða skipin,en eins og er,er
allur fiskur ísaður í stíur. Einnig
á að styrkja skipin fyrir siglingar
í ís. Þess má geta að auk þessara
breytinga má gera ráð fyrir að
mikil vinna við hefðbundna
klössun fylgi með í kaupunum.
Að sögn Gunnars koma þessi
verkefni til með að nema um
40-50% af afköstum Slippstöðv-
arinnar og hafa það í för rrieð sér
að fjölga verður starfsmönnum,
sérstaklega plötusmiðum. -yk
„Ef við förum í gang þá förum
við af miklum krafti í gang,“
sagði Jónas Jónasson forstöðu-
maður Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, aðspurður um reynsluna
af rekstri svæðisútvarpsins og
um það hvert framhaldið
verði.
Starfsmenn svæðisútvarpsins
hafa að undanförnu verið að taka
saman skýrslu um reksturinn og
sagðist Jónas verða að fá þá
skýrslu í hendur áður en hann
gæti sagt nokkuð um það hvert
framhaldið yrði. Þegar sú skýrsla
er komin og starfsmenn komnir
úr sumarleyfum verður hún lögð
fyrir hlutaðeigandi aðila og
ákvörðun tekin um framhaldið.
-yk.
Bygging verkamannabústaða:
Fjölnir var
með lægsta
tilboðið
- sem nam þó yfir 90% af kostnaðaráætlun
Dráttarvextir á hita-
veitureikningana
- og leiðrétt vegna lægra hitastigs
Hitaveitustjórn hefur ákveðið
að frá og með 1. júlí verði út-
gáfa reikninga með þeim
hætti, að þeir verða sendir út
Árlax í Kelduhverfi:
Hlutafé aukið
„Þetta gengur allt eðlilega fyr-
ir sig, miðað við að þetta er
starfsemi sem er að byrja,“
sagði Sigurgeir Isaksson, versl-
unarstjóri í Ásbyrgi er hann
var spurður hvernig laxeldi í
Árdal hefði gengið.
„Það eru núna 60.000 seiði í
uppeldi þarna og er áætlað að sú
tala hækki. Þau eru í húsi sem er
200 ferm. að stærð og er gert ráð
fyrir að bæta við öðru húsi jafn-
stóru, auk þess að setja 6-8 ker
út og verða þau mismunandi stór.
í þau eiga seiði að fara sem eru í
uppeldi.
Aætlað er að auka hlutafé um
helming á þessu ári, úr 5,6 mill-
jónum í 11,2. Eins og starfsem-
inni er háttað í dag er þarna 1 og
hálft starf, en verður 2 og hálft í
framtíðinni.“ -HJS
með sama hætti og áður með
gjalddaga fyrsta dag mánaðar
eftir notkunartímabil, en hins
vegar verða reiknaðir dráttar-
vextir hafi reikningarnir ekki
verið greiddir á eindaga, sem
er 15 dögum síðar.
Þá hefur sú regla verið tekin
upp að ef hitastig vatns í tengi-
brunni, miðað við 80°C framrás-
arhita' frá miðluhargeymi, er
lægra en 77°C, plús eða mínus ein
gráða, skal lækka orkuverð til
viðkomandi neytenda um 5% óg
síðan um 5% við hverjar 2°C sem
brunnhitastig reynist lægra en að
framan greinir.
Verða reikningar notenda sem
fá lægra hitastig leiðréttir sam-
kvæmt þessari reglu. - HS.
í gær voru opnuð tilboð í bygg-
ingu 15 íbúða í verkamanna-
bústöðum sem eiga að rísa við
Fögrusíðu. Lægsta tilboð kom
frá Trésmiðjunni Fjölni.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á 47.185.967,00 kr. og nam tilboð
Fjölnis 90.25% af þeirri upphæð.
Haraldur og Guðlaugur buðu
91.77% af kostnaðaráætlun, Hí-
býli 94% af kostnaðaráætlun og
Aðalgeir og Viðar 97.12%.
Þaö vckur nokkra athygli að
Um síðustu helgi gekk bleikja
í bæði Hörgá og Eyjafjarðará,
að sögn Kristjáns frá Djúpa-
læk, en hann hefur eftirlit með
veiði í þessum tveim ám.
Kristján sagði að menn hefðu
verið að fá stóra og góða bleikju
þcssi tilboð liggja nær kostnaðar-
áætlun en lengi hefur tíðkast
þar sem alvanalegt hefur verið á
undanförnum árum að verktakar
hafi boðið allt niður fyrir 80% af
kostnaðaráætlun. Þetta gerist
þrátt fyrir að þessi bygging sé
eina stóra verkefnið sem menn
sjá fyrir í bráð.
Ekki hefur verið tekin afstaða
til þess hver fær verkið þar sem
eftir er að yfirfara tilboð.
Áætlaður byggingartími húss-
ins er 18 mánúðir. -yk.
upp eftir allri Hörgá og sömu
sögu væri að segja í Eyjafjarðará.
Bleikjan gengur hratt upp árnar
núna og veiðist því frekar á
fremri svæðunum en síðar í sum-
ar eða í haust er svo aftur von á
smærri bleikju sem fer skemmra
upp árnar. -vk.
Fá stóra og
góða bleikju