Dagur - 17.07.1985, Qupperneq 9
17. juií 1985 - DAGUR — 9
Kemst
Þór
áfram?
Þórsarar eiga góða möguleika
á að komast í 4-liða úrslitin í
bikarkeppni KSÍ, en þeir leika
í kvöld gegn FH í 8-Iiða úr-
slitum gegn FH á Akureyrar-
velli.
Liðin mættust í 1. deildar
keppninni í Hafnarfirði á dög-
unum, og þá sigraði Þór með
tveimur mörkum gegn engu.
Þórsliðið er taplaust á heimavelli
í sumar, hefur aðeins tapað einu
stigi í jafnteflisleik gegn Víði
þannig að liðið stendur sterkara
fyrirfram og ætti ef allt fer eftir
bókinni að standa uppi sem sigur-
vegari gegn FH.
En það getur allt gerst í knatt-
spyrnu og ekki síst þegar um
bikarleiki er að ræða. Leikurinn
í kvöld ætti a.m.k að geta orðið
góð skemmtun, og eins og venju-
lega geta áhorfendur haft sitt að
segja og hreinlega ráðið úrslitum
með góðum stuðningi. Leikurinn
hefst kl. 20.
Kristján
langbestur
Kristján Hjálmarsson náði
langbestum árangri á Húsavík-
urmótinu í golfi sem lauk sl.
mánudag. Veður var afleitt til
keppni á meðan mótið fór
fram og varð m.a. að fresta
keppni einn daginn þess
vegna.
Kristján lék á 323 höggum og
var tæplega 30 höggum betri en
næsti maður. í 2. flokki karla
sigraði Gísli Vigfússon á 367,
Bjarni Sveinsson í 3. flokki á 428,
Sigríður B. Ólafsdóttir í kvenna-
flokki á 439 og í drengjaflokki
Örvar Þ. Sveinsson á 412
höggum.
Húsvíkingar undirbúa nú af
kappi opið stigamót sem haldið
verður þar 27. og 28. júlí en þetta
er mesta mót sem þeir hafa feng-
ið inn á völl sinn.
Tryggvi Gunnarsson skorar fyrra mark KA með góðu skoti, snemma í seinni hálfleik.
Mvnd: KGA.
KA er komið í
undanúrslitin
„Það var aldrei nein spurning
að ég myndi skora úr þessari
vítaspyrnu, ég skaut ekki fyrr
en markmaðurinn var kominn
í hitt hornið. Mikilvægasta
vítaspyrna sem ég hef tekið og
nú er að fá heimaleik í undan-
úrslitum og síðan Þór í úrslita-
leik á Akureyri, það er draum-
urinn,“ sagði Njáll Eiðsson
eftir að KA hafði slegið Víði út
úr bikarkeppninni í gærkvöld.
Úrslitin 2:1 fyrir KA sem hefur
fyrst liða tryggt sér sæti í
undanúrslitum.
Hrikalegur hálfvitaháttur
Guðjóns Guðmundssonar fyrir-
liða Víðis færði KA vítaspyrnu á
mínútíi leiksins. Hann
á Tryggva Gunnarsson
síðustu
réðist „ ..J66.„ ,
markteig Víðis og þvældi honum
í jörðina með höggi í magann og
Friðgeir Hallgrímsson dæmdi
umsvifalaust vítaspyrnu og Njáll
skoraði at' öryggi.
KA var betri aðilinn í þessum
leik lengst af en fékk ekki mörg
tækifæri. Þó komst Tryggvi
Gunnarsson einn innfyrir vörnina
á 10. mínútu en Gísli markvötð-
ur varði. Boltinn fór út til Stein-
gríms Birgissonar sem skaut en
hitti ekki markið.
Víðir komst svo yfir á 35. mín-
útu með fallegu marki eftir horn-
spyrnu. þrír leikmenn komu við
boltann og þá lá hann í markinu.
KA jafnaði svo á 58. mínútu er
Tryggvi Gunnarsson skoraði eftir
mikla pressu í vítateig Víðis.
Lndir lok leiksins virtist sem
Víðismenn væru að taka leikinn
í sínar hendur en vörn KA gaf
ekki höggstað á sér og svo kom
sigurmarkið og mikið var fagnað
á vellinum af áhorfendum sern
höfðu verið furðulega daufir all-
an leikinn.
KA-liðið lék á köflum prýðis
knattspyrnu í gærk\ öld og virðist
liðið vera í framtor þessa dagana.
Bestu menn voru Erlingur Krist-
jánsson í vörninni. Friðfinnur
Hermannsson og Árni Þór
Freysteinsson sem á nú hvern
leikinn öðrum betri með liðinu.
Valdimar með
4mörk
Stórviðburður í golfinu:
Landsmót að Jaðri
Undirbúningur er nú í fullum
gangi vegna landsmóts í golfi
sem fram fer á Akureyri dag-
ana 31. júní til 4. ágúst nk.
Mótsstjórn hefur verið skipuð
og búið er að ráða starfsmenn
fyrir mótið, en reiknað er með að
við beina framkvæmd þess muni
starfa talsvert á annan tug
manna, og er þá ótalið það fólk
sem starfar að veitingasölu og
þess háttar.
Völlurinn að Jaðri verður von-
andi í sínum besta skrúða. Flat-
irnar hafa aldrei verið betri og
eru tvímæialaust þær bestu á
landinu í dag. Þá er áformað að
spila í þessu móti „hreyfingar-
laust“ golf á brautum sem þýðir
á venjulegu mannamáli að þar
verður ekki leyft að hreyfa bolta
eins og verið hefur. Er vitað um
að mikill áhugi er fyrir þessu og
ef það verður framkvæmanlegt
sýnir það vel í hversu góðu
ástandi völlurinn er.
Á mótinu verður keppt í 7
flokkum, meistaraflokkum karla
og kvenna, 1. flokki karla og
kvenna, 2. flokki karla og kvenna
og 3. flokki karla. Reiknað er
með mikilli þátttöku og gætu
keppendur alveg orðið á þriðja
hundrað talsins.
Vaskur er svo gott sem búinn
aö tryggja sér sæti í úrslita-
keppni 4. deildar eftir 8:0 sigur
á Bjarma um helgina. Valdi-
mar Júlíusson skoraði 4 marka
Vasks, Jónas Baldursson 2,
Hjörtur Unnarsson og Gunnar
Berg Gunnarsson eitt hvor.
Önnur úrslit í E-riðli voru þau
að Tjörnes vann Árroðann 1:0 og
UNÞ vann Æskuna 3:2. Staðan í
riðlinum er nú þessi:
Vaskur 8 6 2 0 31:6 20
Tjörnes 8 4 3 1 24:14 15
Árroðinn 8 4 13 18:13 13
UNÞ 8 2 2 4 12:25 8
Bjarmi 7 2 0 5 6:26 6
Æskan 7 1 0 6 13:20 3
í D-riðlinum stendur keppnin
á milli Reynis Árskógsströnd og
liðs Hvatar frá Blönduósi en bæði
liðin hafa 18 stig að loknum 8
leikjum.
Hvöt vann Skytturnar frá
Siglufirði um helgina 2:1 og á
sama tíma vann Reynir lið Geisl-
ans 2:0. í þessum riðli er staðan
þessi:
Reynir Á 8 6 0 2 22:8 18
Hvöt 8 6 0 2 17:8 18
Geislinn 7 3 2 2 19:10 11
Skytturnar 7 3 0 4 16:12 9
Svarfdælir 7 2 2 3 8:11 8
Höfðstrend. 7 0 0 7 3:36 0
Sigurvegarar í þessum riðlum
munu leika í úrslitakeppninni
ásamt sigurvegurum í F-riðli, en
þar er hörkubarátta og ekki séð
hverjir koma til með að sigra.