Dagur - 31.07.1985, Side 9

Dagur - 31.07.1985, Side 9
31. júlí 1985 - DAGUR-9 Þórsararnir Sigurbjörn Viðarsson og Júlíus Tryggvason eiga hér í strangri baráttu við Örn Valdimarsson Framara. Mynd: Júlíus. Þórsarar sprungu í framlengingunni Fram vann Þór í bikarkeppninni 3:0 Sagt eftir leikinn: „Svona er þessi fótbolti “ - sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs „Það er alltaf súrt og erfitt að tapa, ekki síst þegar við vorum komnir svona langt í bik- arnum, og ekki var það til að bæta tapið, að það var mitt gamla félag, Fram sem sló okkur út,“ sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs, að leiknum loknum. „Við vorum betri aðilinn í fyrri hálfleik, en þeir sóttu sig í þeim síðari og voru þá betri aðilinn. Síðan fór allt úr skorðum hjá okkur þegar Framarar skoruðu fyrsta markið. Þá fóru menn að taka bjánalega áhættu orðnir örþreyttir. En mínir menn gefa alltaf allt sem þeir eiga, þeir eru bardagamenn. Það var erfitt fyrir okkur að vera undir þegar átt er við lið eins og Framara, sem eru margir hverjir reyndir refir sem hefur mikið að segja í svona leik. Þeir gátu leyft sér að slaka á eftir að þeir höfðu náð yfirhöndinni. En það dugir ekki að súta þetta. Þessi leikur verður ekki endur- tekinn. Svona er þessi fótbolti. Nú förum við í kærkomið frí og mætum tvíefldir til leiks í íslands- mótinu, þar sem við erum fram- arlega í bardaganum,“ sagði Jó- hannes Atlason. Jóhannes Atlason „Þetta var ömurlegr - sagði Nói Björnsson „Þetta var alveg ömurlegt," sagði Nói Björnsson, fyrirliði Þórs, að leik loknum. „Fyrri hálfleikur var ágætur. En síðan hættum við að spila og allt snérist upp í kýlingar þannig að það var ekkert vit í því sem var verið að gera. Vinnslan í liðinu var ágæt, en þegar boltinn vannst var ekkert gert til þess að spila eins og við gerðum í fyrri hálfleik, sem mér fannst mjög góður.“ Nói Bjömsson Það var ágætis veður þegar leikurinn fór fram, nánast logn og úrkomulaust. VöIIurinn var þungur því fyrr um daginn hafði rignt töluvert. Eins og einn áhorfandi sagði „þá er þetta ekki hagstætt fyrir Þór að völlurinn skuli vera svona blautur“. Ekki virtist það koma að sök því eins og kemur fram í við- tölum við fyrirliða Þórs, þjálfara og áhorfendur voru það Þórsarar sem höfðu undirtökin í leiknum fyrir hlé. Það má segja að með örlítilli heppni hefðu Þórsarar getað verið yfir í hléi 2-0. En því miður nýtti Hlynur ekki þau ágætu færi sem hann fékk og því var staðan 0-0 eftir 45 mínútur. Framarar byrjuðu leikinn af töluverðum krafti og gerðu harða hríð að marki Þórs, en án telj- andi hættu. Þórsarar komu svo smátt og smátt meira inn í leikinn og voru svo með hann í hendi sér að mestu. Eftir hlé voru það síðan Fram- arar sem sóttu stíft og var eins og markið Iægi í loftinu, því oft gerðu þeir harða hríð að marki Þórsara en Baldvin tók þá bolta sem rötuðu rétta leið. Önnur skot fóru framhjá. Það var síðan fljótlega í fyrri hluta framlengingar sem Fram tókst að skora. Það var Guð- mundur Torfason sem þar var að verki. Við þetta mark var eins og Þórsarar gæfust upp. Gengu Framarar á lagið og bættu öðru marki við. Var það Pétur Orm- slev sem það gerði. Örn Valdi- marsson skoraði síðasta markið fyrir Fram. Hann kom inn á sem varamaður fyrir Guðmund Steinsson. Fram er því komið í úrslit í Bikarkeppni KSÍ og mun mæta 2. deildar liði KA eða 1. deildar liði ÍBK, en KA og Kefla- vík mætast í undanúrslitum 13. ágúst í Keflavík. Allir eru velkomnir að Jaðri - til að sjá bestu kylfinga landsins íslandsmótid í golfi hefst á Jaðarsvelli á Akureyrí í dag. Að sögn keppnisstjórnar hefur undirbúningur staðið undanfarnar vikur. Starfsmenn verða um 50 talsins, en skráðir keppendur eru 201. Mun þetta vera næst fjölmennasta landsmót sem haldið hefur verið, og það langfjölmennasta utan Reykjavíkur. Keppt verður í 7 tlokkum karla og kvenna. Keppendur í meistaraflokki karla eru 35. Keppendur eru frá 16 golfklúbbum. Formaður mótsstjórnar sagði að allir sem áhuga hefðu á golfíþróttinni væru velkomn- ir að fylgjast með á Jaðarsvelli hvenær sem væri, og vildi koma því á framfæri að síðasti keppnisdagur væri sunnudag- ur 4. ágúst og þá hæfust úrslit um kl. 13.00, og þá gæfist fólki kostur á að sjá alla snjöllustu kylfinga landsins samankomna í einni keppni. Björgvin varð einherjameistari Hið svokallaða Einherjamót, en það er mót þeirra kylfinga sem hafa farið holu í höggi hófst á mánudag. Einherjamótið er óopinber byrjun íslandsmótsins. Þar eru leiknar 18 holur. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Björgvin Þorsteinsson, G.R. 2. Magnús Birgisson, G.A. 3. Kristín Pálsdóttir, G.K. 4. Guðmundur S. Guðmundsson, 5. Páll Ketilsson, G.S. G.R. með 37 punkta með 37 punkta með 35 punkta með 35 punkta með 33 punkta Einherjamótið er punktamót þar sem keppt er eftir Stableford-kerfi, en þar gildir 7/8 hluti forgjafar. Björgvin telst sigurvegari þar sem hann fór seinni 9 holurnar á fleiri punktum en Magnús. Hverju spáðu þeir um úrslitin í leik Þórs og Fram? 11 3» o CJ 06 ■ •3 J r á £.= =3 3 -2 <u a-1 O> 0» e3 !■ a>s E .. 2 © O ll Friðrik Hjaltalín. Guðmundur Guðmundsson. Sigurður Hallgrímsson., Oskar Guðmundsson. óí Þetta fer 3-2 fyrir Þór, það er alveg ljóst, Sigurmarkið verður skorað úr víta- spyrnu. Ég spái 2-1 fyrir Þór. 3-0 fyrir Fram, því miður. 3-2 fyrir Þór, það er engin spurning. Mér er sagt að hann fari 1-0. fyrir Þór að sjálfsögðu. Ég veit það ekki, þetta virðist allt vera á réttri leið því Þór hefur átt allan fyrri hálfleikinn. Það hallar heldur meira á Þór, en ég vona að þeir taki þetta samt, og held mig við spána. Ég ætla ekkert að segja í hálfleik. Ég stend við það sem á spáði. Mér líst mjög vel á mitt lið. Framarar eru gjörsamlega búnir, og Þór vinnur 1-0 eins og ég sagði fyrir leik- inn. •h U Það vantaði bara mörkin hjá Þór, það munaði því. En þeir voru langtum betri í fyrri hálfleik og áttu þá að gera út um leikinn, það er Ijóst. Þeir duttu alveg niður í framlengingunni og þar með var þetta búið. En það var súrt að svona skyldi fara eftir góðan fyrri hálf- leik. Á ég ekki að taka að mér að spá unt veðrið fyrir Dag? Þetta voru ekki raunhæf úrslit. Þór var betri aðilinn í leiknum, en slökuðu á í framlengingunni. höfðu ekki úthald. Þetta var mjög ósann- gjarnt. Þórsarar áttu að rúlla Fram upp í venjuleg- um leiktíma, það er stað- reynd.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.