Dagur - 07.08.1985, Blaðsíða 7

Dagur - 07.08.1985, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 7. ágúst 1985 7. ágúst 1985 - DAGUR - 7 ||j|l§j| Verðlaunahafar á landsmótinu samankomnir á góðri stund, „Engin golfmót em létt“ - segir Sigurður Pétursson Isiandsmeistari í golfi Sigurður Pétursson Golfkiúbbi Reykjavíkur varð í þriðja sinn íslandsmeistari í meistara- flokki karla í golfí á landsmót- inu sem haldið var að Jaðri um helgina. Áður hefur Sigurður einnig tvisvar orðið unglinga- meistari. Sigurður sigraði með nokkrum yfírburðum og því var hann spurður að því hvort þetta hefði verið létt. „Nei, engin golfmót eru létt.“ - En þú stefndir að því að sigra? „Já, ég stefndi að því. Ég var jafn Ómari eftir fyrsta daginn en tók síðan forystuna og hélt henni upp frá því.“ - Hvað ertu búinn að æfa lengi? „Ætli það séu ekki komin þrettán ár og þetta er þá það fjórtánda.“ - Hvað æfirðu þig mikið í hverri viku? „Ég hef aldrei æft eins mikið og í sumar, ég æfi frá fimm og upp í átta tíma á dag.“ - Hvernig finnst þér Jaðars- völlurinn að spila á honum? „Völlurinn er mjög góður. Þétta er besti völlurinn á landinu í dag.“ Sigurður sagðist ætla að halda áfram á fullu við æfingar og næsta skref hjá honum er að hann, ásamt Ragnari Ólafssyni, ætl- ar að reyna fyrir sér með það hvort hann kemst í atvinnu- mennsku í golfi. Þeir fara út til Spánar í svokallaðan golfskóla þar sem þeir spreyta sig í keppni við fjölda annarra golfleikara sem einnig vilja komast í at- vinnumennsku. „Ef maður fær góðan tíma og æfir sig þarna úti þá held ég að við eigum alveg möguleika,“ sagði þessi snjalli golfleikari að lokum. Sigurður Pétursson einbeitir sér við púttið. Sigurður og Ragnhildur meistarar - á íslandsmótinu í golfi 1985 sem haldið var á Jaðarsvelli við Akureyri íslandsmótinu í golfí árið 1985 lauk á Jaðarsvelli á Akureyri síðastliðinn sunnudag. Kepp- endur á mótinu voru 197 tals- ins úr 16 klúbbum og hafa að- eins einu sinni verið fleiri á landsmóti. Keppt var í 4 flokk- um karla og 3 kvenna og léku allir 72 holur nema 3. flokkur kvenna sem lék 36 holur. Um 50 manns störfuðu við þetta mót og gekk mótshaldið með miklum ágætum að sögn Gylfa Kristjánssonar mótsstjóra. íslandsmeistarar í meistaraflokk- um karla og kvenna urðu Sigurð- ur Pétursson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Ragnhildur Sig- urðardóttir, einnig úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Úrslit: 3. flokkur karla: 1. Bessi Gunnarsson, GA 350 2. fvar Harðarson, GR 356 3. Sigurður Aðalsteinsson, GK 359 2. flokkur karla: 1. Guðmundur Sigurjónss., GS 334 2. Sigurþór Sævarsson, GS 334 3. Karl H. Karlsson, GK 340 1. flokkur karla: 1. Guðmundur Arason, GR 309 2. Helgi Eiríksson, GR 312 3. Friðþjófur Helgason, NK 317 4. Ólafur Gylfason, GA 317 Meistaraflokkur karla: 1. Sigurður Pétursson, GR 294 2. Ólafur Jónsson, GK 306 3. Hannes Eyvindsson, GR 311 4.-7. Ragnar Ólafsson, GR 312 4.-7. Gylfi Kristinsson, GS 312 4.-7. Ómar Örn Ragnarsson, GL 312 4.-7. Magnús Jónsson, GS 312 8.-9. Kristján Hjálmarsson, GH 316 8.-9. Sigurður Sigurðsson, GS 316 2. flokkur kvenna: 1. Sigríður B. Ólafsdóttir, GH 189 2. Hildur Þorsteinsdóttir, GK 198 3. Kristine Eide NK 198 1. flokkur kvenna: 1. Lóa Sigurbjörnsdóttir, GK 376 2. Erla Adólfsdóttir, GA 378 3. Aðalheiður Jörgensen, GR 380 Meistaraflokkur kvenna: 1. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 329 2. Steinunn Sæmundsdóttir, GR 335 3. Þórdís Geirsdóttir, GK 341 „Alveg til í að verða frægur markmaður“ Stutt spjall við markverði KA í 6. flokki Það var létt yfir þeim félögum Örvari Arngrímssyni og Eiríki Karli Ólafssyni eftir pollamót- ið í knattspyrnu sem haldið var á Akureyri fyrir stuttu, Það er ekki nema von því Örvar varð íslandsmeistari með a-Iiði KA en Kalli, eins og Eiríkur Karl er kallaður var kjörinn besti markmaður mótsins í b- flokki. Þeir félagar voru teknir tali eft- Eins og fram hefur komið er Vaskur kominn í úrslitakeppni 4. deildar. Það var því forms- atriði fyrir þá að spila síðasta leikinn sem var við Árroðann úr Öngulsstaðahreppi. Enda fór svo að Vaskur átti ekki í neinum vandræðum með Eyfirðingana og sigraði 6-2. Ár- roðamenn voru uppteknir í hey- ir mótið og voru til í að segja svo- lítið um fótbolta. Örvar sagði að sér hefði þótt mótið skemmtilegt, og besti leikurinn sem þeir félagar í a-lið- inu spiluðu hafi verið gegn Breiðabliki frá Kópavogi. KA strákar unnu þann leik 2:0. Þeir félagar spiluðu 5 leiki, unnu þrjá, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einum, það var fyrir KR. „En þeir voru ekki betri en við,“ sagði skap og voru aö tínast á vara- mannabekkinn fram að hléi. En það var ekki ástæðan fyrir tapinu heldur voru Árroðamenn lélegir að eigin sögn. Örn Tryggvason og Friðrik Jónasson skoruðu þessi tvö mörk fyrir Árroðann. Mörk Vasks skoruðu Valdemar Júlíusson tvö, Tómas Karlsson tvö, Jónas Baldursson og Halldór Aðalsteinsson eitt hvor. Örvar. Þegar hann var spurður að því hverjir hafi verið bestir, var hann ekki lengi að svara því að þeir í KA hafi verið bestir, enda hafi þeir unnið mótið. En hver var besti markvörður að mati Örvars? Mér þótti markmaður- inn frá Neskaupstað góður, en þeir voru fleiri góðir líka, t.d. markmaðurinn hjá ÍA. Kalli er spurður hvort það hafi ekki komið honum á óvart að hafa verið kosinn besti markmað- ur í b-flokki. „Jú það kom mér nokkuð á óvart,“ segir Kalli ró- legur. En Kalla þótti markmaður Keflavíkurliðsins standa sig vel og átti jafnvel von á að hann yrði kosinn. Var þá ekki gaman að verða fyrir valinu? „Jú ég fékk bikar sem ég má eiga, og verð- launapening. Svo fengu öll liðin sem þátt tóku í mótinu mynd af sér á viðurkenningarspjaldi frá Eimskip." Þegar þeir félagar voru spurðir hvaða markvörður væri bestur í dag sagði Kalli að „Grobbi“ hjá Liverpool væri lík- lega bestur, en Örvar taldi að markvörðurinn í skoska landslið- inu væri sá besti. Hvað um framtíðarhorfur hjá þessum ungu hressu strákum? - „Ég væri alveg til í að verða frægur markmaður,“ sagði Kalli, en Örvar var ekki eins ákveðinn, því hann væri ekki viss um hvort hann æfði mark næsta ár. „Mig langar til að æfa vörn,“ sagði hann. Nú eru þeir báðir í 6. flokki, Örvar í a-liðinu og Kalli í b-liði og var kosinn besti markvörður mótsins í b-flokki. Hann var því spurður hvort hann hefði ekki hug á að ná sæti Örvars í a-lið- inu? „Jú ég hef það. Því ef hann æfir útistöðu næsta ár þá hlýt ég að ná því,“ sagði Kalli hinn ró- legasti. En það er ekki spurning, þessir ungu menn eiga framtíðina fyrir sér og hafa nægan tíma til að gera upp hug sinn um það hvort þeir ætla að verða frægir knattspyrnu- menn, eins og flesta unga drengi dreymir um, eða gera eitthvað annað alls óskylt. En eitt er víst að fótbolti á hug þeirra allan. Njáll Eiðsson þjálfari strákanna leggur á ráðin með þeim. Knattspyrna, 4. deild d-riðill: Vaskir gerðu sex Vaskur-Árroðinn 6:2 Stórt golfmót, eins og lands- mótið, krefst styrkrar stjórn- unar og öflugs starfsliðs, til að allt gangi snurðulaust. Að lokinni verðlaunaafhending- unni á sunnudagskvöld bað Gísli Bragi formaður Golf- klúbbs Akureyrar um orðið. Og afbenti mótsstjóranum, Gylfa Kristjánssyni og konu hans, Birnu Blöndal, forláta lampa að gjöf, og þakkaði Gísli Bragi Gylfa fyrir vel unnin störf. Gylfí vildi að það kæmi fram, að hann hefði haft sér til halds og trausts mjög duglegt fólk, sem í sam- einingu hefði gert mótshaldið gerlegt. Með þeim hjónum, Gylfa og Birnu, er á mynd- inni hægri hönd mótsstjór- ans, Smári Garðarsson. Bessi Gunnarsson. „Pabba að þakka að ég fór að æfa“ - segir Bessi Gunnarsson íslandsmeistari í 3. flokki karla Bessi Gunnarsson Golfklúbbi Akureyrar sigraði í 3. flokki karla á 350 höggum. Dagur spurði Bessa að því hvort hann hefði átt von á að vinna í þess- um flokki. „Eftir þriðja daginn átti ég al- veg eins von á því. En ég átti ekki von á því eftir annan daginn, hann var svo hrikalega lélegur.“ - Ertu búinn að æfa golf lengi? „Ég byrjaði að spila fyrir al- vöru árið 1981. Ég var að vísu í golfi hérna niðri á gamla vellin- um þegar ég var polli. Það er nú orðið langt síðan.“ - Nú ert þú sonur Gunnars Konráðssonar (Nunna Konn) sem lengi var meðal fremstu golf- spilara landsins. Hafði það ein- hver hvetjandi áhrif á þig að fara að spila golf? „Það má sjálfsagt segja að maður hafi þetta frá honum, það er alla vega honum að þakka að maður fór að spila þetta.“ Þess má geta að Bessi spilaði hálflasinn allt mótið en það kom ekki í veg fyrir að honum tækist að sigra. Sigríður Bima Ólafsdóttir. „Völlurinn er mjög góður“ - setjir Sigríður B. Ólafsdóttir, nýbakaður Islandsmeistari í 2. flokki kvenna Húsvíkingar eignuðust sinn meistara í golfi á landsmótinu sem fram fór á Jaðarsvelli í síð- ustu viku. Það var Sigríður Birna Ólafsdóttir sem sigraði í 2. flokki kvenna en hún fór 36 holurnar á 189 höggum. „Ég hef aldrei spilað neitt mik- ið en hef dundað við þetta nokk- ur undanfarin ár,“ sagði Sigríður í samtali við Dag eftir mótið. Hún sagðist fyrst hafa spilað golf árið 1972. Á Húsavík er kominn allgóður 9 holu völlur og hefur verið unnið að uppbyggingu vall- arins og starfsemi klúbbsins linnulítið frá því að klúbburinn var stofnaður fyrir 18 árum. „Mér hefur líkað mjög vel við þetta mót. Við fengum líka gott veður fyrstu tvo dagana og völlurinn er mjög góður,“ sagði Sigríður að lokum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.