Dagur - 07.08.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 07.08.1985, Blaðsíða 1
GULLSMIÐIR i SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS V//A Litmynda- framköllun 68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 7. ágúst 1985 os. miuoiao Rafmagn fór af Akureyri í morgun Rafmagn fór af Akureyri um hálftíuleytið í morgun. Sam- kvæmt upplýsingum rafveit- unnar var þetta vegna bilunar í byggðalínu en ekki tókst að hafa upp á upplýsingum um það hvers eðlis bilunin var eða hvað viðgerð liði í morgun. Rafmagn var komið á aftur eft- ir hálftíma eða svo. „Þeir eiga að einbeita sér að atvinnumálum“ - en grafa allt hitt kjaftæðið um jafnrétti, kvennabaráttu og bamaheimili. Bárður tilheyrir hópi áhugamanna innan Sjálfstæðisflokksins, sem sagt er að hyggi á sérframboð við bæjarstjómaikosningamar á næsta vori „Þetta er hópur manna innan Sjálfstæðisflokksins, sem hitt- ist óformlega og ræðir bæjar- mál, en þar hefur ekki verið rætt um neitt sérframboð fyrir næstu bæjarstjórnarkosning- ar,“ sagði Bárður Halldórsson í samtali við Dag. í einu sunnanblaðanna í síð- ustu viku er þess getið í „slúður- dálki“ að megn óánægja sé innan Sjálfstæðisflokksins á Akureyri með bæjarfulltrúa flokksins. í framhaldi af því er sagt að „hóp- ur manna“ stefni að sérframboði við bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor, sennilega með Pétur Antonsson í toppsætinu. Auk Bárðar munu Jón Kr. Sólnes, og fleiri tilheyra þessum „hópi“ Bárður var spurður, hvort þeir væru óánægðir með störf bæjarr fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Við skulum segja, að við séum óhressir með bæjarstjórnina eins og hún leggur sig,“ svaraði Bárður. - Hvað finnst ykkur að? „Mér finnst ekki nándar nærri því nógu mikill kraftur í þessu, því það er ekkert annað en mis- skilningur bæjarfulltrúanna, að þeir geti svo lítið gert. Alþýðu- flokksmenn í bæjarstjórn ísa- fjarðar rifu upp bæjarfélagið þar fyrir tæpum sextíu árum, en það var þá á horriminni; eignarlega vel statt, líkt og Akureyri í dag, en allt atvinnulíf í rúst. En nokkrir einstaklingar, þó þeir væru undir fána Alþýðuflokks- ins, rifu þetta upp á skömmum tíma. Það sama er hægt að gera hér á Akureyri í dag.“ - Hvernig viljið þið bera ykk- ur að? „Það á að semja sátt á milli Framsóknar og íhalds, en síðan á að einbeita sér að atvinnumál- um og grafa allt hitt kjaftæðið. Við eigum bara að leggja af alla umræðu um jafnrétti, kvennabar- áttu, barnaheimili og allt það vesen, en snúa okkur síðan að at- vinnumálum af krafti. KEA er staðreynd og sjálfstæðimenn eiga að taka saman höndum við Framsókn um að byggja Akur- eyri upp á nýtt. Þeir verða að leyfa einstaklingum að njóta sín og við verðum að láta þá í friði,“ „Það hafa nokkrir lokið hey- skap, en almennt eru menn að Ijúka við,“ sagði Reynir Páls- son bóndi á Stóru-Brekku í Fljótum er hann var inntur eft- ir hvernig heyskapur hefði gengið í Fljótunum. „Tíðarfar í júlí var eins og menn vita slæmt, en ég held samt á heildina litið þá hafi gengið sæmilega og heyfengur er góður, þessi góði kafli núna hefur bjarg- sagði Bárður Halldórsson. Pétur Antonsson sagði í sam- tali við Dag, að hann vissi ekki meira um þetta mál en stæði í umræddu sunnanblaði. Hann sagðist ekki kannast við umrædd- an „hóp“ og hugsanlegt sérfram- boð hefði aldrei verið rætt í sín eyru. - GS að miklu.“ Reynir sagði veiði í ám í Fljót- um ekki hafa gengið vel það sem af er sumri. „Veiði hefur verið dræm í sumar, einkunt silungs- veiði, en hér hefur verið mjög góð silungsveiði á undanförnum árum,“ sagði Reýnir. Að ein- hverju leyti taldi hann að skýringar á lélegri veiði væri að leita í slæmu árferði árin 1981 og 1983. - mþþ Góður heyfengur Verkalýðs- félög syðra eiga 13 íbúðir á Akureyri Verkalýðsfélög sunnanlands eiga alls 13 íbúðir á Akureyri, að því er fram kemur í síðasta tölublaði Vinnunnar. Þar er einnig haft eftir Benedikt Davíðssyni hjá Trésmiðafélagi Reykjavíkur, að félögin hafi keypt íbúðirnar, vegna þess hvað þær séu ódýrar miðað við sambærilegar íbúðir í Reykja- vík. Pað kom einnig fram í samtal- inu við Benedikt, að leigan á íbúð Trésmiðafélagsins væri 2.500 kr. fyrir vikuna og væri hún bókuð í allt sumar og hyggst fé- lagið leigja íbúðina áfram í vetur til félagsmanna. Ekki á það þó við um öll félögin, því sum þeirra leigja íbúðirnar utanfélagsfólki yfir vetrarmánuðina, t.d. náms- fólki. Ekki mun allt upptalið með þessum 13 íbúðum, því dæmi munu vera um að fyrirtæki eða stofnanir eigi íbúðir á Akureyri fyrir starfsmenn sína. - GS Loksins sól og sumarylur. KGA Bárður Halldórsson um bæjarfulltrúana á Akureyri: Nýting á vatninu hefur strax stórbatnað - segir Wilhelm V. Steindórsson, hitaveitustjóri í síðustu viku fengu þeir sem kaupa vatn af Hitaveitu Akur- eyrar fyrstu innheimtuseðlana eftir að breytt var um sölufyrir- komulag og mælar teknir upp í stað hemla. Wilhelm Stein- dórsson hitaveitustjóri var spurður um viðbrögð fólks við þessum nýju innheimtuseðlum og þá reynslu sem komin væri á breytt fyrirkomulag á vatns- sölunni. „Það hefur komið hingað fólk sem telur að þetta sé of há áætlun og það hefur líka komið hingað fólk sem telur að áætlunin sé of lág,“ sagði Wilhelm. Áætlunin er miðuð við ársneyslu sem er deilt jafnt niður á alla mánuði ársins og síðan verður lesið af við áramót og greiðslujafnað ef áætlun hefur ekki staðist. Þeir sem hafa borið áætlaða stöðu mælis á reikning- um við raunverulega stöðu hafa í flestum tilfellum komið auga á að áætlunin er mun hærri en raun- veruleg staða mælisins. Þetta er mjög eðlilegt þar sem vatns- notkun í júlí er langt undir með- allagi og má reikna með að þessi munur réttist af þegar líður á vet- ur og kólnar í veðri. Wilhelm sagði að meiningin væri að at- huga stöðu mæla eftir einn mán- uð og aftur eftir þrjá mánuði til að sjá hvort endurskoða þyrfti áætlun hjá einstaka notendum. Með nýju skipulagi hefur dregið verulega úr notkun á heitu vatni, að sögn Wilhelms, en hann sagð- ist hafa þá trú að enn mætti gera betur í stýringu á ofnakerfum og þar með nýtingu vatnsins. -yk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.