Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 8

Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 9. ágúst 1985 9. ágúst 1985 - DAGUR - 9 - Hinn síhressi bóndi, Sigurður Þórisson á Grænavatni í helgarviðtali Það var glampandi sólskin og hiti í Mý- vatnssveit og þar af leiðandi brakandi þurrkur. Það var langþráður þurrkur eftir samfellda óþurrkatíð allan júlí- mánuð. Bœndur eiga allt sitt undir því að geta heyjað handa bústofninum og hefur það áreiðanlega ekki farið framhjá neinum sem ferðaðist um sveit- ir norðanlands á þess- um tíma. Alls staðar var veðrið til umræðu. Menn vissu upp á dag hvenœr vœtutíðin hófst og svo var spáð í hvaða dag stytti upp. Það veit á gott ef styttir upp á fimmtudegi, þá mun nokkurn veginn hœgt að treysta því að þurrk- ur haldist eitthvað. En sunnudagar þykja ótryggir. Förinni er heitið heim að Græna- vatni. Þar býr Sigurður Þórisson, bóndi með sínu fólki. En Sigurður er ekki eini bóndinn á Grænavatni, því þríbýlt er þar. Þar er því bæði mikið af húsum og mönnum. Við rennum heim á hlað og bönkum upp á þó heldur sé ólíklegt að fólk haldi sig innan dyra í blíðunni. „Hann Sigurð- ur er þarna úti á kambnum að raka. En þið vitið auðvitað ekkert hvar hann er.“ Okkur var vísað rétta leið og síðan var bara að ákveða hvort rétt væri að trufla Sigurð við hey- skap, loksins þegar þurrkurinn kom. Jú, jú, við prófum. Hann hlýtur að eiga 10 mínútur aflögu. Bara smá spjall á hálfa síðu. Við komum auga á ungan mann á dráttarvél, var sá að snúa, og annan eldri að raka með hrífu. Við hittum fyrst manninn á dráttarvélinni og reynist þar vera kominn Erlingur, sonur Sigurðar, kennari við Mennta- skólann á Akureyri. Við spyrjum Erling hvort hann haldi að vert sé að trufla föður hans. „Já, já, farið þið endilega og spjallið við hann. Hanr hefur gaman af því.“ Við örkum yfir nýsnúið heyið, Sigurður sest með okkur á grasið og við hefjum spjallið. Sandurinn til vandrœða „Það er staðreynd að fok er hér mikið. Aðalbeitilönd okkar eru við Sellandafjall sem er um 15 km héðan. Þau voru að fjúka upp og mitt fyrsta verk þegar ég kom hingað ’47 var að sá í sandgræðslugirðinguna sem hafði verið sett upp árið áður. Það væri gaman ef maður gæti sýnt mynd sem tekin var þarna fyrir 50 árum þegar við vorum að sá og svo aðra sem tekin væri núna þegar allt er orðið gróið. Nú beitum við þarna fullum fetum.“ - Það væri þá hægt að rækta upp sandana? „Já, það er ekki nokkur vafi á því að hér væri hægt að rækta mikið upp. Menn eru farnir að beita minna en var. Þó fé hafi fjölgað hefur verið farið betur með landið hér, þar sem ekki er sandur. Sandurinn í Kráká er eitt af því sem er að eyðileggja Laxá og vélarnar hjá þeim í Laxárvirkjun. Þar sem Kráká kemur upp er mikið sandsvæði og fyrir þremur árum var gerður samningur milli Laxárvirkj- unar, veiðifélaganna og landeigend- anna hér um að gera tilraun með að sá þarna úr 10 flugvélum á ári. Þetta er svo langt inni í landi að það er dýrt að girða. Ég hef trú á því að þetta muni minnka sandburðinn í ánni. En svo er annað, þegar farið er að stjórna vatninu þá koma ekki þessi náttúrlegu hlaup í Laxá eins og áður og rennsli verður jafnara. Það gerir það að verkum að hún rótar ekki eins til og rífur upp sandinn eis og hún gerði.“ Sáum ekki til jarðar . . . - Hefur það einhver áhrif á fiskinn? „Já, það hefur þau áhrif að sandur- inn eyðileggur hrygningarstöðvar. Sveitin landfrœðilega einangruð „Ég er að raka saman tuggur sem verða eftir, mér finnst það skemmti- legra en að láta þær liggja. Það má gefa þetta með á vorin,“ upplýsti Sig- urður okkur. Hefur líklega haldið að við álitum hann eitthvað skrýtinn að raka með hrífu á tækniöld. En vél- arnar komast ekki alls staðar að og þá er gripið til gömlu, góðu hrífunn- ar. Sigurður er fyrst spurður hve lengi hann hafi búið á Grænavatni og um ætt og uppruna. „Ég er búinn að vera bóndi hér á Grænavatni frá 1947, en er frá Bald- ursheimi, sem er hér næsti bær. Ég er því Mývetningur og þó er það nú kannski ekki alveg rétt því faðir minn var Laxdælingur, en ættaður úr Mývatnssveit að hálfu. En það er al- veg sama, ég er og verð Mývetning- ur.“ - Af Reykjahlíðarættinni kannski? „Já, já, það er ég. Mývetningar eru mikið skyldir, enda hlaut það að verða í svona sveit. Þetta er stórt samfélag, en sveitin var landfræði- lega einangruð. Á flestum jörðum var og er fleirbýli, sem var afleiðing af þessari einangrun. f þá tíð lifðu menn mikið af vatninu.“ - Er það ekki mikið búið að vera? „Jú, það hefur verið lítil veiði undanfarin ár og fer minnkandi. í sumar er það þó betra en verið hefur undanfarin ár. Það er vegna þess að síðastliðið sumar var einmuna gott veður og í sumar hefur það líka verið ágætt, þó það kæmi kuldakast um hvítasunnuna. Hér í Grænavatni, sem er afvatn Mývatns, var mý með eðlilegum hætti í vor, þó svo væri ekki í Mývatni. Hér áður fyrr komst Grænavatn ekki í hálfkvisti við Mý- vatn hvað mý snerti. Maður verður að gæta sín á að rugla ekki saman rykmýi, sem er fæða fugla og silungs, og bitmýi sem kviknar við Laxá.“ Rykmý og bitmý - Hver er helsti munurinn þar á? „Bitmýið bítur, eins og allir vita. Rykmýið er bæði stórt og smátt og silungurinn fær ekki sitt rétta Mý- vatnsbragð, nema hann fái rykmý. Það er ekkert launungarmál að við höfum ekki í minni búskapartíð veitt eins mikið af Mývatnssilungi eins og í vor og sumar. Við teljum að það sé vegna þess að silungurinn hafi gengið hér á æti sem ekki var til í Mývatni. En þetta er auðvitað ekki vísindalega rannsakað. Við erum búin að veiða hér um 400 silunga og það er ekta Mývatnssilungur, sem er eins góður og hann var í gamla daga. Þetta er mjög sérstakt hérna. Það var eigin- lega tilviljun að við lögðum netin svo snemma og við fengum strax góða veiði, hvað sem veldur.“ Heyskapur Það var ómögulegt annað en að spyrja Sigurð út í heyskap, þar sem við vorum að trufla hann við þá vinnu. „Heyskapur er núna fyrst í fullum gangi hér í sveitinni, því hér hefur verið einmuna ótíð. Ég man ekki eft- ir óþurrki í svona langan tíma í júlí. Það gerði kuldakast um hvítasunn- una og spretta stöðvaðist svo til alveg. Þess vegna höfðum við fé lengur á túnum, það var ekki hægt að sleppa vegna kuldans. Þar af leiðandi voru tún ekki sprottin hér í Mývatns- sveit, nema í Vogum sem hafa sér- stöðu vegna jarðhita. Vogabændur voru þeir einu sem voru búnir að slá eitthvað að ráði þegar óþurrkarnir komu. Það var 8. júlí. Síðan rigndi flestalla daga til 25. júlí. Ég var ekki búinn að slá neitt, nema bakkana hérna með orfi og ljá. En það slógu einhverjir síðasta þurrkdaginn og það hey hraktist. Gras er hins vegar ekki úr sér sprottið, spretta er góð og ekkert kal í túnum. Við vonum bara að þessi tíð haldist því þá verður hey- skapur góður. Þetta leit illa út, það var oft búið að snjóa í fjöll og ef það nær ekki að birta upp á eftir er fjand- inn laus.“ Aldrei verri afkoma sauðfjárbœnda Sigurður býr félagsbúi með Hjörleifi syni sínum og búa þeir á fjórðungi jarðarinnar. Á Grænavatni er þríbýlt, eins og áður sagði og tjáði Sigurður okkur að félagsbú væri á öllum býlunum. „Við höfðum 360 fjár á fóðrum í vetur, en ég fer að hætta, er að kom- ast á ellilaun. Ég hélt alltaf að ég myndi tóra það að komast á ellilaun, en eins og aðbúnaðurinn er að bænd- um núna er hæpið að maður lifi þetta Þegar menn búa félagsbúi geta þeir líka stundað vinnu utan búsins. Ég hef getað unnið á Skattstofunni á Húsavík í 3-4 mánuði á vetuma þeg- ar minnst er að gera, því Hjörleifur sonur minn sér um búið á meðan. Á vorin þarf svo meiri mannskap við sauðburðinn og þá kemur maður heim.“ - Ferðu þá á milli Mývatnssveitar og Húsavíkur á hverjum degi? „Nei, ég geri það ekki. Fyrst var það þannig að sonur minn og tengda- dóttir bjuggu þar og þá var ég hjá þeim. Síðan hef ég verið hjá kunn- ingjum. Ég er nokkurs konar uppeld- issonur skattstjórans og hans konu, Jóhanns og Guðrúnar. Það er ekki dónalegt að vera hjá þeim, það sést vel á mér að ég er vel alinn.“ Sagan um Kráku - Samkvæmt Helgarpóstinum er þetta ein af þremur stærstu jörðum landsins. „Já, það er víst. En ég er ekki svo vel að mér að ég geti fullyrt slíka hluti. Þetta er mjög stór jörð en það er lítið af henni gróið. Við búum hér á eldgosa- og uppfokssvæði og svæð- ið hér upp að Bláfjalli er mikið til hraun og gróður lítill. Það er þó ótrúlega mikill gróður inni á milli hraundranganna, þegar maður fer að skoða það nánar. Jú, jú, þetta er stór jörð og það voru hér góðar engjar við Kráká sem kemur hér sunnan af- rétti. Hún flutti með sér mikinn sand og hefur eyðilagt engin. Til er saga um Kráku, gamla tröll- skessu sem bjó í Bláhvammi og glett- ist við bændur. Hún tók slóða sinn og dró hann eftir afréttinni og mælti svo fyrir og lagði á að hún skyldi eyði- leggja allt þetta engi. Þetta er auðvit- að þjóðsaga, en íslendingar hafa allt- af verið hrifnir af þeim. Hana dagaði svo hér uppi, hér í miðju enginu er allstórt holt og þegar ég var bam heima í Baldursheimi var talið að þetta væri slóði Kráku.“ Annars hefur verið afburða góð veiði í Laxá á svæðinu frá Brúum og upp að Mývatni. Það er vegna þess að í fyrra var svo mikill mývargur. Ég hef aldrei upplifað annan eins bitvarg og í fyrra. Það var svo slæmt að skepnur þrifust bara alls ekki hérna. Það var ómögulegt að hafa kýr úti í lengri tíma. Þetta var vegna þess hvað tíðin var góð, það var svo kyrrt, aldrei hvasst eða rigning. Ég flúði tvisvar sinnum af vél við heyskapinn, gafst bara alveg upp. Það er lítil lygi, eins og hreppstjórinn sagði, að það var svo svart að við sáum ekki til jarðar. Það eru svolitlar ýkjur en þær eru litlar. Það fé sem var hérna við vatnið og á engjunum í fyrra var mjög lélegt því það lá bara í hellum og reyndi að finna sér skjól en hélt sig ekki við beit. Þeir sem hafa kýr hér voru í hreinustu vandræðum með að hafa þær úti nema stund og stund. Þær mjólkuðu alls ekki hjá þeim eins og þær hefðu annars gert. Bræður mínir búa hér í Baldursheimi og þeir hafa haft eitthvert arðsamasta kúabú landsins. Þeir sögðu mér að það munaði þó nokkru sem kýrnar hefðu mjólkað minna út af varginum. Hann datt ekki niður frá því snemma í júní og fram í septemberlok." Tvœr aldir og þrjár kynslóðir Kona Sigurðar, Þorgerður Bene- diktsdóttir, er frá Grænavatni. Eiga þau þrjá syni. Það eru Erlingur, sem áður er getið, Benedikt, búsettur á Akureyri og Hjörleifur. Á Græna- vatni býr einnig Helgi Jónasson sem býr á helmingi jarðarinnar og mág- konur Sigurðar búa síðan á þeim fjórðungi sem eftir er. Þar er einnig móðir Þorgerðar sem orðin er 98 ára gömul og er elsti íbúi Mývatnssveit- ar. Við spyrjum Sigurð nánar út í þetta. „Tengdamóðir mín er dóttir Jóns Hinrikssonar, skálds á Helluvaði. Hann var orðinn gamall þegar hann átti hana, en faðir Jóns mun vera fæddur nokkru fyrir aldamótin 1800. Þetta eru því þrjár kynslóðir sem eru uppi á tveimur öldum. Svo halda menn að þegar ekki var sjónvarp og videó hafi ekki getað geymst sagnir í tvær aldir eða vel það. Það var nú heldur öðruvísi þá. En þetta er auð- vitað sjaldgæft. Þetta fólk er búið að búa hér á Grænavatni í tæpa öld, kemur hingað 1890.“ Við tökum eftir því er við keyrum heim að Grænavatni að þar stendur ákaflega reisulegur gamall bær. Við fáum Sigurð til að segja okkur örlítið af honum. „Þessi bær var byggður 1913. Þetta er framhúsið sem enn stendur. Það voru haldnar veislur í þessum bæ, mikið af giftingarveislum. í húsinu eru fjórar samliggjandi stofur. Þá var hér tvíbýlt og fjölskyldurnar bjuggu báðar í þessum bæ. Hægt var að taka skilrúmið á milli stofanna og urðu þá þessar fjórar samliggjandi stofur að einum sal og hægt að halda fjöl- mennar veislur. Nú notum við þetta sem geymslur. Undir þessu er kjall- ari, hlaðinn úr hraungrýti og er hann snilldarvel gerður. Þar geymum við súrmat, kartöflur og þvíumlíkt. Við höfum málað bæinn og reynt að halda honum svolítið við og það verður sjónarsviptir að honum ef hann verður látinn fara. Við bjugg- um þarna til 1968 er ég byggði nýtt íbúðarhús.“ Það var komið hádegi og við höfðum tafið Sigurð nógu lengi frá rakstrinum og líklega var komið nóg efni á hálfa síðu. Við höfðum átt saman skemmtilega og fróðlega stund sitjandi úti á túni. Við þökkuð- um Sigurði fyrir spjallið, settumst inn í bíl en hann hélt áfram að raka sam- an tuggunum. - HJS Mynd: HJS Óþolandi óréttlæti - Þið hafið stofnað hér félag sauð- fjárbænda? „Já, hér og víðar um landið. Það er í undirbúningi að stofna lands- samtök. Ég er ekkert hissa á því, óréttlætið er óþolandi. Fjármagns- kostnaður er svo mikill hjá okkur, en kúabændur fá mjólkina að fullu greidda að kvóta og hér í Þingeyjar- sýslu fara ekki margir fram yfir kvóta. Það stafar af því að það komu svo mörg harðærisár í kringum 1980. 1979—’81 voru það erfið ár, að hefðu þau komið fyrir öld hefði orðið hér fjárfellir og uppflosnun. Það hefði Grænavatn. Texti: HJS Mynd: mþþ ár,“ segir Sigurður, sposkur á svip. „Það hefur aldrei, í öllum mínum búskap, verið verri afkoma sauðfjár- bænda en á síðastliðnu ári. Við höfum bara sauðfé og það munar miklu á afkomu sauðfjár- og kúabú- anna vegna fjármagnskostnaðar við sauðfjárbúin. Við fáum afurðirnar seint og illa borgaðar, sérstaklega seint. Þegar harðnar í ári, eins og í hittifyrra, þá hefur það áhrif í meira en eitt ár. Það kemur jafnvel ennþá meira í ljós árið eftir og það getur ekkert sauðfjárbú staðið undir þessu vaxtaokri sem nú tíðkast. í verðlags- grundvellinum er ekki tekið neitt til- lit til rekstrarlánanna, sem verða margföld hjá sauðfjárbændum miðað við kúabændur. Kúabændur fá mjólkina greidda mánaðarlega og það munar öllu. Við fáum kjötið ekki greitt fyrr en ári eftir að það er lagt inn.“ orðið eins og þegar fólkið fluttist til Ameríku á seinni hluta 19. aldar. 1979 er eitthvert alversta ár sem ég man eftir. Við stóðum vorið ágætlega af okkur, við áttum góð hey frá ’78 þannig að vorið bjargaðist. En svo gerði hér jarðlaust 1. september eftir að sumarið kom ekki fyrr en um sól- stöður. Þá var erfitt hjá bændum. Við réttuðum 2. september og það hefði ekki þurft nema 1-2 góða daga til að menn hefðu getað lokið við heyskapinn. Það var ekki hægt að hirða fýrr en í október og það var auðvitað hálfónýtt hey. Hér í sveitinni hefur það verið siður að láta ekki höfðatöluregluna ráða, heldur að láta hverja einingu gefa af sér eins og hægt er og ég vona að sá siður haldist. Ég hef unnið við skattframtöl í 10-15 ár og það er ótrúlegt hvað mörg lítil bú koma vel út. Það er oft horft yfir það að bú sem kannski hafa ekki nema 20 kýr, hafa besta útkomuna. Á móti kemur auðvitað að þar eru afskriftir litlar, byggingar eru gamlar og ekki eins miklar og á stóru búunum. Það er mitt álit að það sé rannsóknarefni hvað þessi litlu bú koma flest vel út. Þar er hver skepna látin gefa eins mikið af sér og hægt er og það er hugsað mikið um það, það fer ekkert í súginn, eins og oft vill verða á stóru búunum." Félagsbúin farsœlust - Hvað kallar þú stór bú? „Hér í sveitinni eru bú ekki stór ef miðað er við bestu landbúnaðarhér- uðin. Ég kalla það nokkuð stór bú sem eru með um og yfir 40 kýr og það eru nokkur svo stór bú hérna, en flest eru þau félagsbú sem eru farsæl- ustu búin. Það er vegna þess að þá eru menn ekki eins bundnir og drepa sig síður á vinnu. Meðan menn eru ungir er hægt að anna miklu, en það er allt of snemmt að vera kominn með kransæðastíflu um fertugt. En þetta er víst menningarsjúkdómur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.