Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 11

Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 11
DAGUR- 11 fleiri en bæjarfulltrúar að taka á ár- inni við uppbyggingu atvinnulífs- ins, ekki síst fölkið sjálft." - Hefur „samsuða11 í bæjar- stjórninni, um mikilvæg málefni, orðið til að veikja hana út á við? „Nei, það tel ég ekki, því þegar við erum að leita eftir samstöðu um mál innan bæjarstjómarinnar, þá erum við líka að leita eftir bestu leiðinni. Þess vegna em bæjarfull- trúar sammála. Það er okkar styrkur, hvað bæjarstjórnin er samhent. Það varð að vísu ágrein- ingur um gerð síðustu fjárhagsáætl- unar, en ég held að hann hafi verið búinn til.“ - Ætlar Kvennaframboðið að bjóða aftur fram? „Ég vona það, því okkar bíða mörg verkefni. Okkar hlutverki er alls ekki lokið.“ - Verður þú vör við óánægju meðal bæjarbúa með störf bæjar- stjórnar? „Það er nú upp og ofan. Á tíma- bili, haustið ’82 og veturinn þar á eftir, fann ég fyrir ýfingum, en mér finnst þær hafa dofnað." - Finnst þér bæjarbúar afskipta- lausir um ykkar störf? „Að því leytinu já, að mér finnst þeir ekki fylgjast nægilega vel með, enda er fréttaflutningur af störfum bæjarstjórnarinnar takmarkaður. Sigfríður Þorsteinsdóttir: Égget vel ímyndað mér „óháðan borg- aralista“ við næstu kosningar. Og mér finnst mikil vanþekking á störfum bæjarstjórnar, sem síðan leiðir til þeirrar óánægju sem talað er um.“ - Hvernig er samstarfið í vinstri meirihlutanum? „Við erum búin að hanga saman í á fjórða ár og það hefur enginn talið möguleika á sterkari meiri- hluta.“ - Áttu von á því að við næstu kosningar komi fram „óháður borgaralisti"? „Það get ég vel ímyndað mér, en úr hvaða öflum hann verður samansettur, ég veit það ekki, ætli það verði fólk úr öllum áttum. Það er einhver upplausn í stjórnmála- flokkunum, sem brýst út með þess- um hætti,“ sagði Sigfríður Þor- steinsdóttir. O Búist við átökum Sjálfsagt gæti ég spunnið endalaust úr þessu efni. Allt útlit er fyrir átök í bæjarpólitíkinni á Akureyri fyrir komandi kosningar, að líkindum hjá öllum flokkum, ekki síst vegna þess að „örugg" sæti eru á lausu hjá þeim flestum. Þá mun ekki vera einhugur um það innan Kvennaframboðsins, að bjóða aftur fram, en úrtöluraddirnar eru Gunnar Ragnars: Hættir hann við að hætta til að „lúffa“ ekki fyrir Jóni. 9. ágúst 1985 þó í minnihluta. Utlit er fyrir bar- áttu um efstu sætin hjá Sjálfstæðis- flokknum. Gísli Jónsson var þar í efsta sæti við síðustu kosningar, en hann er nú hættur þátttöku í pólit- ík. Gunnar Ragnars mun hafa íhugað að hætta í bæjarstjórn, en hann mun hafa „hætt við að hætta“ þegar hann varð var við „bröltið í Jóni“, eins og einn heimildarmaður minn orðaði það. Hann bætti því við, að Gunnar væri bardagamaður og vildi ekki „lúffa“ fyrir Sólnes. Ég náði ekki í Gunnar, hann var í laxi, en ég spurði Sigurð Jóhannes- son um óskameirihluta Bárðar og félaga, meirihluta framsóknar- manna og sjálfstæðismanna. „Ég vildi helst hafa þetta eins og áður var, þannig að um leið og kosningar væru búnar, þá verði myndaður einn Akureyrarflokk- ur,“ sagði Sigurður. „Ég held að það hafi ekkert komið upp í sam- starfi þeirra flokka, sem mynda núverandi meirihluta, þannig að ástæða sé til að ætla að það sam- starf standi ekki út kjörtímabilið." - En að kosningum loknum? „Ef ég kem til með að hafa áhrif á þau mál, þá göngum við óbundnir til kosninga, um hugsanlegt meiri- hlutasamstarf að þeim loknum. Ég get ekki hugsað mér það eins og er, að fara að binda mig fyrirfram í einhverju kosningabandalagi. Ég hefði viljað vinna í þá veru sem var hér áður, þegar samstarf var meira á milli allra flokka í bæjarstjórn. Raunar er enn um að ræða sam- starf og samkomulag í langflestum málum, sem bæjarstjórn fjallar um. Þau eru teljandi á fingrum sér, þau mál sem ágreiningur hefur orð- ið um á milli meirihluta og minni- hluta. En ef á annað borð þarf að mynda formlegan meirihluta, þá myndi ég helst óska eftir að sam- starfsflokkarnir væru sem fæstir, hvaða flokkur sem í hlut á. Það skapar sterkari málefnasamning, að þurfa ekki að semja við marga flokka." - Þú talar um breiða samstöðu, en aðrir tala um að það hafi veikt bæjarstjórnina út á við, að sífellt sé verið með einhverja „samsuðu", sem allir geti sætt sig við. Slíkt hafi gert stefnuna óljósari. „Það má ef til vill segja það, því þegar leitast er við að ná sem breiðastri samstöðu, þá verða allir að slá eitthvað af sinni stefnu. Það kemur enginn einn flokkur fram sinni stefnu í slíku samstarfi. Það er alveg rétt. En ég tel að samstað- an sé meira virði heldur en að einn flokkur geti keyrt í gegn sín mál,“ sagði Sigurður Jóhannesson. Að lokum ræddi ég við Jón G. Sólnes. Hann sagði að margum- rædd „slúðurfrétt" hefði ekki við nokkur rök að styðjast, hún væri aðeins tilbúningur, skrifuð til að skrifa um eitthvað. Hann sagði það veikleikamerki með núverandi meirihluta í bæjarstjórn, að hann væri myndaður af þrem flokkum. „Hér áður fyrr voru engir meiri- hlutar eða minnihlutar í bæjar- stjórninni. Það var svolítið harðlífi á meðan verið var að kjósa bæjar- stjóra, en þegar það var búið tók Akureyrarflokkurinn til sinna ráða,“ sagði Jón. - Verður þú í framboði við næstu bæjarstjórnarkosningar? „Það er enginn maður farinn að ympra á framboðsmálum, hvað þá sérframboðum, það þori ég að full- yrða. Ég er ekkert farinn að hugsa um mín framboðsmál ennþá, við skulum sjá hvernig þetta þróast. Það er nógur tími.“ - Hvað um framboðslista „óháðra borgara"? „Ég veit það ekki, það er ómögulegt að segja. Mér finnst einhvern veginn, að landið liggi þannig, að slíkt gæti gengið. Það eru svo margir sem eru lausir í rás- inni núna, það er grundvallarbreyt- ing í skoðunum manna í sambandi við bæjarmál, allt önnur en í lands- málum. Ég vil því ekki útiloka, að slíkur möguleiki sé fyrir hendi," sagði Jón G. Sólnes. - GS Hvað fínnst þér um störf bæjarstjórnar? Steinunn Sigurðardóttir: „Maður er ekki sáttur við allt en hvort aðrir hefðu gert eitthvað betur skal ég ekki segja um. Ég tel þó að það verði að leggja meiri áherslu á atvinnumálin, þar er ástandið orðið ansi dapurt og vantar meiri kraft.“ með störf bæjarstjórnar. Hitt er annað mál að ég er ekkert í pólit- ík og ekki tilbúinn að setja út á einstök mál en hvernig getur maður verið sáttur á meðan allt atvinnulíf í bænum drabbast niður eins og verið hefur?“ Signý Pálsdóttir: „Sem starfsmaður Leikfélags Akureyrar get ég ekki verið ann- að en sátt við þann stuðning sem bæjarstjóm hefur veitt L.A. á undanförnum árum. Annars er ég ákaflega ópólitísk og vil ekki fara að tjá mig um einstök mál- efni að öðru leyti.“ m f. É| m Guðmundur Gunnarsson: „Það er erfitt að svara þessu svona óundirbúið en ég myndi ekki hafa uppi neina harða gagn- rýni á störf bæjarstjórnar. Sjálf- sagt mætti ýmislegt betur fara en ég tel að í bæjarstjórn sitji menn sem vilja bæjarfélaginu vel, þó að menn séu ekki sammála um stefnuna, hvað eyða eigi mörgum milljónum í malbik og hvað mörgum milljónum í dagvistun- arstofnanir.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.