Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 13

Dagur - 09.08.1985, Blaðsíða 13
Hópferð áleikKA ogÍBK KA-menn hyggjast efna til hópferðar á leik KA og ÍBK í undanúrslitum bikarkeppninn- ar, ef næg þátttaka fæst. Leikurinn verður sem kunnugt er í Keflavík næstkomandi þriðjudagskvöld. Nánari upp- lýsingar veita Haukur Ásgeirs- son og Gunnar Níelsson. Swmrgleðin íSjdamm Sumargleðin heldur upp á 15 ára afmæli sitt í allt sumar og að undanförnu hefur hún gert víðreist um Norðurland. Um næstu helgi verða kapparnir í Sjallanum á föstudags- og laugardagskvöld og verða það allra síðustu skemmtanir Sumargleðinnar á Norðurlandi í ár. Forsala aðgöngumiða fyr- ir matargesti er milli kl. 16 og 17 í dag, en eftir það verða all- ar ósóttar pantanir seldar. Krakkamót KEAá laugardag Krakkamót KEA í knatt- spyrnu hefst á Þórsveilinum á Akureyri á laugardaginn kl. 10. Það verða 10 lið sem taka þátt í mótinu; tvö frá Þór, tvö frá KA, eitt frá Siglufirði, eitt frá Dalvík, eitt frá Magna á Grenivík, eitt frá Reyni á Ár- skógsströnd og eitt frá Leiftri í Ólafsfirði. Það verða því á annað hundrað krakkar, sem reyna með sér á Þórsvellinum á laugardaginn. Þar má því búast við miklu fjöri og spenn- andi keppni. Guðný Ásgeirsdóttir, píanóleikari, og Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, klarinettuleikari. Tónleikar í Tónlistarskólanum Laugardaginn 10 ágúst halda þau Guðný Ásgeirsdóttir píanóleikari og Jón Aðal- steinn Þorgeirsson klarinettu- leikari tónleika í Tónlistar- skóla Akurevrar. Hefjast þeir kl. 17.00. Á dagskránni eru verk eftir Debussy, Brahms, Lutóslavsky, Baird og Straw- insky. Guðný Ásgeirsdóttir stundar nám í píanóleik við Tónlistarháskóla Vínarborgar, Jón Aðalsteinn lauk prófi frá einleikaradeild sama skóla nú í vor. TÓNLIST ARKROS SGÁT AN NO:32 TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 32 Lausnir sendist til; Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 108 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan Mikið um dýrðir á ÁrskógsvelU Um helgina verður mikið um að vera á íþróttavellinum við Árskóg. Á laugardaginn fer þar fram einn af úrslitaleikjum 4. deildar á milli Reynis og Sindra. Leikurinn hefst kl. 16.00, en klukkan 10 sama dag hefst svonefnt aldursflokka- mót UMSE í frjálsum íþrótt- um á vellinum. Þar eigast við unglingar upp að 18 ára aldri og er reiknað með um 150 þátttakendum. Þetta er lang- fjölmennasta íþróttamótið á vegum UMSE. Það stendur allan laugardaginn og síðan verður því framhaldið á sunnudaginn og hefst keppni þá kl. 10. Lagt í ’ann - Hljónisveitin Grafík á hljómleikaferð um landið Hljómsveitin Grafík er að leggja í hljómleikaferð um landið nú um helgina. Hún leikur í Bifröst á Sauðárkróki laugardaginn 10. ágúst, sunnu- daginn 11. ágúst verða hljóm- leikar í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri og í Félagsheimilinu á Húsavík þann 12. ágúst. Hljómleikaferðin endar svo með þátttöku í Norrokkhljóm- leikum í Kaupmannahöfn og Árósum dagana 23. og 24. ágúst. Á þessum hljómleikum leikur Grafík m.a. efni af fyrri hljómplötum auk efnis af vænt- anlegri hljómplötu sem kemur út fyrir jól. Hljómsveitina skipa: Helgi Bjömsson söngv- ari, Rafn Jónsson trommuleik- ari, Rúnar Þórisson gítarleikari, Hjörtur Howser hljómborðs- leikari og Jakob Magnússon bassaleikari. Norðurlandsmót skáta haldið í Hrísey I gærkvöld var Norðurlands- mót skáta sett í Hrísey. Mótið sækja 250-300 skátar. víðs veg- ar af Norðurlandi, en einnig koma til mótsins gestir frá Djass- viðburður í Kjallara Sjallans Á miðvikudaginn í næstu viku verður meiriháttar uppákoma fyrir djassunnendur í Kjallara Sjallans. Þá kemur þar fram þekktur djassleikari af gamla skólanum Cab Kay, sem spilar á píanó og syngur að auki. Cab Kay er þekkt nafn í djass- heiminum og kappinn hefur leikið með mörgum þekktustu djassleikurum heims. Vonandi getum við sagt nánar frá kapp- anum í næstu viku. öðrum stöðum á landinu og þeir sem eru lengst að komnir koma frá Danmörku. Mótið stendur fram á sunnudag við fjölbreytt verkefni, varðelda og kvöldvökur, en á laugardag er heimsóknardagur. Þá eru allir áhugamenn um skátastarf velkomnir út í Hrísey til að í kvöld verður leikinn á Akur- eyrarvelli afar mikilvægur leikur í toppbaráttu annarrar deildar. Þá eigast við KA og Völsungur og öruggt mál að hvorugt liðið sættir sig við ann- að en sigur. „Þessi leikur gæti skipt sköpum fýrir okkur,“ sagði Gústaf Baldvinsson þjálfari KA í samtali við Dag. „Við leggjum sjá hvað þar er að gerast hjá skátunum; gamlir skátar, for- eldrar þeirra barna og ungl- inga sem mótið sækja. já. og bara allir sem áhuga hafa á að kvnna sér skátastarf. Um kvöldið verður stór varðeldur og kvöldvaka. sem allir eru velkomnir á. okkur alla fram um að vinna þennan leik þar sem þetta er mjög mikilvægur leikur. Við þurfum að vinna eitthvað af þessum toppliðum en við ger- um okkur grein fyrir að þetta .verður mjög erfiður leikur." Fyrri leik liðanna í sumar lauk með sigri Völsungs 3:2 og nú er bara að sjá hvort liðið hef- ur betur í kvöld. Baráttuleikur - í annarri deildinni þegar KA og Völsungur mætast á Akureyri í kvöld

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.