Dagur - 21.08.1985, Page 12
Akureyri, miövikudagur 2] . ágúsl IÚH5 Alltaf vex vöruúrvalið Ö I Vinsamlegast komið og skoðið j=j^ |
Leikfélag Akureyrar:
Yfir 60 böm
prófuð í
Jólaævintýrið
Ekki stóð á viðbrögðum hjá
ungum verðandi ieikurum eft-
ir auglýsingu frá Leikfélagi Ak-
ureyrar þess efnis að börn og
unglinga vantaði til að leika í
fyrsta verkefni félagsins.
Það var hálfgerð Hollywood-
stemmning ríkjandi í leikhúsinu
þar sem unga fólkið kom til að
syngja fyrir leikstjóra og hljóm-
sveitarstjóra. Það voru um 60
krakkar og unglingar sem settir
voru upp á sviðið, og þar þurftu
þau að syngja.
Sumir voru afslappaðir og gátu
náð fallegum tónum, en aðrir
Akureyri:
voru spenntir og gáfu klemmdan
tón, sem annars gátu sungið eins
og englar. Síðan kemur í ljós
hverjir verða svo heppnir að fá
að leika og syngja fyrir Akureyr-
inga og aðra góða gesti í leikhús-
inu í haust. Það verða eflaust
leikarar framtfðarinnar sem stíga
sín fyrstu spor á „fjölunum" eins
og það er kallað. - gej
Síðdegis í gær varð árekstur á mótum Strandgötu og Glerárgötu. Ekki urðu miklar skemmdir á bifreiðum og engin
meiðsli á fólki. Mynd: KGA
Kartöfluverksmiðjan á Svalbarðseyri:
Hráefnið er á þrotum
Strætó
keyrír
á
kvöldin
Um næstu mánaöamót hefja
Strætisvagnar Akureyrar akst-
ur á kvöldin. Fyrirhugað er að
síðasta ferð verði frá Ráðhús-
torgi kl. 23.35. Einnig hefjast
ferðir strætisvagnanna xh klst.
fyrr á morgnana eða kl. 6.35.
Vegna tilkomu kvöldaksturs
hefur verið keyptur nýr
strætisvagn þannig að nú
verða 4 vagnar í förum um
bæinn. Að sögn Stefáns Bald-
urssonar hjá SVA eru ekki
fyrirhugaðar breytingar á
leiðakerfi vagnanna að svo
stöddu, því slíkt mundi út-
heimta fleiri bíla. - gej
Við erum mjög ánægðir með
söluna og birgðir eru litlar, eða
milli 80 og 100 tonn. Sala er
Samstarfshópur sem skipaður
er fulltrúum ýmissa sveitarfé-
laga víðs vegar af landinu
hélt fúnd á ísafirði í síðustu viku
um kostnaðarskiptingu ríkis og
sveitarfélaga vegna reksturs
framhaldsskóla. Var þetta
þriðji fundurinn sem þessi
hópur heldur um þetta mál.
Markmið þessa hóps er að
semja tillögur um jöfnun á kostn-
aði sveitarfélaga vegna reksturs
50-60 tonn á mánuði þannig að
hér er um eins og hálfs mánað-
ar framleiðslu að ræða, aðal-
framhaldsskóla en eins og er
leggst sá kostnaður mjög mis-
þungt á sveitarfélögin. í núgild-
andi lögum er kveðið á um að
ríkið greiði reksturskostnað
menntaskóla en sveitarfélögin
greiði rekstur annarra framhalds-
skóla, s.s. iðnskóla og fjölbrauta-
skóla.
Að sögn Jóns F. Hjartarsonar
skólameistara á Sauðárkróki sem
sæti á í þessari nefnd fyrir hönd
Sauðárkróksbæjar er markmið
I lega skífur. Aðeins eru til um
30 tonn af frönskum kart-
I öflum,“ sagði Sævar Hall-
nefndarinnar að semja tillögur
er miði að því að öll sveitarfélög
sitji við sama borð í þessum efn-
um og verða tillögurnar kunn-
gerðar síðar í þessum mánuði ef
að líkum lætur.
Það var samstarfsnefnd á veg-
um þéttbýlisstaða á Norðurlandi
vestra sem hratt þessari um-
ræðu af stað og leitaði síðan
samstarfs við önnur sveitarfélög
á landinu. -yk.
grímsson, verksmiðjustjóri
kartöfluverksmiðjunnar á
Svalbarðseyri í viðtali við Dag.
„Við eigum ekkert af stærri
kartöflum og þess vegna þurftum
við að flytja inn 25 tonn til að
anna eftirspurninni til veitinga-
húsanna. Það hlýtur að vera til
einhvers að flytja hrávöruna til
landsins og láta vinna hana hér
og skapa þannig atvinnu, í stað
þess að flytja inn fullunna vöru.
Við erum svo til búnir að vinna
úr allri framleiðslu fyrra árs og
þurfum að stoppa um næstu
helgi, þar sem hráefnið er þrotið.
Við höfum þá unnið úr 2500
tonnum af framleiðslu svæðisins
í fyrra. Við bíðum nú eftir haust-
uppskerunni,“ sagði Sævar Hall-
grímsson. - HS
011 sveitarfélög
sitji við sama borð
- við kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna framhaldsskóla
Það verður áframhald-
andi austan og norðaust-
an gola eða kaldi og rign-
ing á Norðurlandi fram
að helgi, samkvæmt upp-
lýsingum Veðurstofunnar
í morgun. Hiti verður
svona 8 til 10 stig. Allt
bendir til þess að norð-
austanáttin haldist fram
yfír helgi.
# Blautir dagar
Veðurguðinn hefur strokið
okkur norðanmenn með votri
hendi í sumar. Við verðum að
taka því; það kemur annað
sumar á eftir þessu. Veður-
spámaður Dags hefur ekki
fengist til að segja orö um
framhaldið, en tíðindamaður
S&S rakst á annan veður-
glöggan mann í gær. Hann
var líka var um sig. Þó var
helst á honum að skilja, að
haustið yrði þolanlegt, þar til
færi að snjóa. Þegar hann var
spurður um veturinn svaraði
hann stutt og laggott: Farðu
og fáðu þér jeppa!!! Ekki orð
meira um það.
# Seintekinn
gróði
Eins og Dagur hefur greint
frá, þá hefur lagning Leiru-
vegarins gengið hraðar en
áætlað var í fyrstu, þar sem
verktakar hafa boðist til að
framkvæma verkið ffyrir hálf-
virði. Þar með duga fjárveit-
ingar betur. Ekki eru þó allir
jafn ánægðir með þetta fyrir-
komulag. Þannig var því m.a.
varið með bílstjórann á
Stefni, sem gerðist undir-
verktaki við Leiruveginn,
ásamt öðrum Stefnisbfl-
stjórum. Hann sá að gróðinn
yrði seintekinn og orti þá
eftirfarandi vísu:
Ágóðinn er ekki stór,
algjört tap á flestu.
Ferðin sem ég aldrei fór
fannst mér skila mestu.
# Sundlaugin
er sælureitur
Margir eiga sér sælureit, þar
sem sundlaugin á Akureyri
er. Þeir koma þangað dag-
lega, sér til hressingar og
heilsubótar, andlega sem Ifk-
amlega. Meðal þeirra er hag-
yrðingurinn og málarinn,
Kristján Benediktsson. En
„fögur fljóð" eru einnig á
meðal sundlaugargesta. Ein-
hverju sinni þótti Þorsteini
sundlaugarverði, sem Krist-
ján festi augun fullfast á einu
fljóðinu. Hafði hann orð um
þetta við Kristján. Ekki leið á
löngu þar til Kristján svaraði
með eftirfarandi vfsu:
Bleyta sig hér fögur fljóð,
sem fæstum mun til ama.
Út af þessu Steina stóð
stundum ekki á sama.