Dagur - 23.08.1985, Síða 7
23. ágúst 1985 - DAGUR - 7
„Þad eru 38 gráður.
Eg varaðgáað því“
- Ingvar Bjömsson á línunni
Ég hringi í síma 25073 á Akur-
eyri. Það heyrist sónn þrisvar
sinnum, síðan er svarað: Leik-
félag Akureyrar.
- Er Ingvar Björnsson á
staðnum.
Jú, hann er hérna rétt hjá, ég
skal ná í hann. Stutt þögn, síðan
svarað: „Halló, Ingvar hér.“
- Sæll Ingvar og velkominn í
bæinn, og til hamingju með nýja
starfið.
„Sæll vertu sjálfur og þakka
þér fyrir það.“
- Má ég spyrja af hverju þú
sért kominn norður aftur?
„Það má segja að mig langaði
aftur á þennan vinnustað, ég
kunni mjög vel við mig þegar ég
var hérna síðast. Svo má ekki
gleyma leikhúsbakteríunni sem
er ekki auðunnin."
- Hvenær fékkstu hana?
„Ég fékk hana mjög snemma,
líklega strax sem barn og ungl-
ingur þegar ég fór í leikhús. Síð-
an þá hefur mig alltaf langað til
að vinna í leikhúsi.“
- Hvenær gastu svo veitt þér
það að vinna í leikhúsi?
„Ég fékk starf í Þjóðleikhús-
inu 1976 sem ljósamaður.“
- Hvert var fyrsta verkefnið
sem þú vannst í musteri ís-
lenskrar tungu?
Nú hlær Ingvar í símann, en
segir svo: „Fyrsta verkefnið sem
ég vann við þar var dálítið sögu-
legt. Það var „Sólarferð“ eftir
Guðmund Steinsson. Brynja
Benediktsdóttir setti upp þessa
sýningu sem varð geysilega vin-
sæl og mikið sótt. En ég var ekki
betur að mér í leikhúsmálum en
svo að ég tók að mér lítið leik-
hlutverk, jafnframt ljósavinn-
unni, sem ég hef ekki gert eftir
það.“ Ingvar leggur áherslu á
síðustu setninguna. „Þannig var
að ég þurfti að birtast í einu at-
riði verksins uppi á brúnni sem
er fyrir ofan sviðið í Þjóð-
leikhúsinu, en þessi brú er í 25
metra hæð. Ég skil það núna
hvers vegna enginn af reyndari
mönnum hússins vildi taka þetta
að sér. En sem sagt ég sat þarna
uppi á brúnni og dinglaði fótun-
um fram af, var ber að ofan með
glas í hendi. Þarna átti það að
líta þannig út að ég væri hótel-
gestur í háu hóteli. Síðan voru
tvær konur neðar í salnum, á
svölunum sitt hvorum megin í
salnum og áttu að talast við á
milli íbúða. Þær voru að tala um
hvað veðrið væri dásamlegt, og
hvað hitinn væri mikill og þar
fram eftir götunum. Síðan átti
ég að koma með mína setningu
sem athugasemd við það sem
þær sögðu. Ég man vel þessa
einu setningu sem ég hef haft á
leiksviði. En hún var svona:
„Það eru 38 gráður, ég var að
gá að því,“ það er allt sem ég
hef sagt á leiksviði. En eins og
þú veist þá eru ekki alltaf aðal-
rullurnar á sviðinu,“ segir
Ingvar og hlær í símann.
- Hvernig var framhaldið á
vinnunni í Þjóðleikhúsinu?
„Þetta hafði verið til skamms
tíma þannig að ljósameistari
hússins hafði séð um allar lýs-
ingar í húsinu. Svo varð um-
fangið það mikið, sérstaklega
með tilkomu litla sviðsins í kjall-
aranum, að við fórum að fikra
okkur inn á þetta svið, að við
sáum um ljósavinnuna. Bæði var
það að okkur langaði að reyna
þetta, og einnig var það að
beiðni ljósameistara. Endirinn
varð sá að við fórum út í þetta af
meiri alvöru en verið hafði.
Einnig var okkur úthlutað lýs-
ingarverkefnum á hverju hausti.
Síðan vildu ákveðnir leikstjórar
fá tiltekna ljósamenn með sér í
þær sýningar sem þeir unnu.“
- Geturðu nefnt mér stórar
sýningar sem þú vannst?
„Einn veturinn fékk ég bæði
„Hús skáldsins“ og „La
Bohem“, það var mjög lær-
dómsríkt.“
- Nú er þetta ekki í fyrsta
skipti sem þú kemur til Akur-
eyrar að vinna í leikhúsi.
„Nei, ég fékk mér frí frá
Þjóðleikhúsinu leikárið 1979-
’80, og var þá hér hjá Leikfélagi
Akureyrar.“
- Hvernig var það leikár?
„Það var mjög gott ár, mjög
gott. Að vísu voru skin og
skúrir, en það er alltaf í leik-
húsi. Það var byrjað með
„Öngstrætið“ og „Galdrakarlinn
í Oz“. Þær sýningar báðar gengu
mjög vel. Síðan var „Púntilla og
Matti“, og þar á eftir „Herbergi
213“. Hvort tveggja voru ágætar
sýningar, og ég skil ekki enn í
dag af hverju „Herbergi 213“
gekk ekki betur en raun varð á,
því það var virkilega góð
sýning.“
- Þú varst aðeins þetta eina
leikár hjá L.A.?
„Já, ég hafði ekki lengra frí
svo ég fór aftur i Þjóðleikhúsið.
En af persónulegum ástæðum
var ég þar ekki nema í eitt ár
eftir dvölina hér fyrir norðan.
Fór ég þaðan að vinna önnur
störf.“
- Þýddi þetta það að þú hætt-
ir að vinna við leikhús?
„Ekki aldeilis, því ég vann
alltaf annað slagið með áhuga-
leikhúsum víðs vegar um landið.
Meira að segja vann ég eitt
verkefni hér á Akureyri. Það
var Atómstöðin eftir Laxness
sem hún Bríet Héðinsdóttir setti
upp. Einnig vann ég með Al-
þýðuleikhúsinu tvær sýningar.
En síðasta vetur ætlaði ég að
losa mig algjörlega út úr öllu
sem heitir leikhús. En þessi
baktería situr fast í manni og
svo þegar ég sá auglýsingu frá
L.A. þess efnis að það vantaði
ljósamann, þá fór ég í sakleysi
mínu að spyrjast fyrir um
starfið, þá endar það hér, og ég
er að tala við þig í símann
núna.“
- Hvernig tók fjölskyldan
því að flytja norður í annað sinn
á nokkrum árum ?
„Það tóku allir í fjölskyldunni
injög vel í það, því allir þar vilja
að ég vinni í leikhúsi. Okkur lík-
aði vel þetta ár sem við vorum
hér fyrir norðan, auk þess er ég
Norðlendingur, ég er frá Siglu-
firði og er stoltur af,“ segir
Ingvar og hlær.
- Má búast við því að dvölin
verði lengri í þetta sinn. en fyrir
fimm árum?
„Komandi vetur hefur mikið
að segja hvað það snertir, en
það er stefnt að því að verða
lengur, og mér sýnist allt benda
í þá átt að svo verði. Þá gerir
maður alvöru úr þessu og flytur
norður."
- Vertu þá velkominn og
þakka þér fyrir spjallið.
„Þakka þér sömuleiðis.”
-gej
; .
Hestanienn
Eyjafirði, athugið!
Hrossaræktardeild Akureyrar og nágrennis hefur tekið í
notkun geymsluhólf fyrir ungfola í Arnarneshreppi.
Þeir sem hafa hug á að nota sér þá aðstöðu hafi samband
við Gauta Valdimarsson, sími 21337 eða Pál Alfreðsson,
sími 21603. Stjórnin.
... iii
Akureyrarmót
í sjóstangaveiði
Akureyrarmót í sjóstangaveiði verður haldið
dagana 6. og 7. september.
Þátttaka tilkynnist fyrir 30. ágúst nk. til Jóhanns í síma 21670,
Bjarka í síma 22678 eða Páls í síma 23464.
Skólastakkar
Stærðir 6-14.
Litir grátt og Ijósgrátt.
SÍMI
(96)21400
TILKYNNING
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1986
skulu hafa borist Stofnlánadeild landbúnaöarins fyr-
ir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á
framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind
stærð og byggingarefni. Enhfremur skal fylgja um-
sögn héraðsráðunautar, skýrsla um búrekstur og
framkvæmdaþörf, svo og veðbókarvottorð. Þá þurfa
að koma fram í umsókn væntanlegir fjármögnunar-
möguleikar umsækjanda.
Sérstaklega skal á það bent að þeir aðilar sem
hyggja á framkvæmdir í loðdýrarækt árið 1986,
þurfa að senda inn umsóknir fyrir 15. september nk.
svo þeir geti talist lánshæfir. Þá skal einnig á það
bent að bændur, sem hyggjast sækja um lán til drátt-
arvélakaupa, þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31.
desember nk.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næst-
komandi, hafi deildinni eigi borist SKrifleg beiðni um
endurnýjun.
Reykjavík, 15. ágúst 1985.
Búnaðarbanki íslands.
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Brauð - Hverabrauð
Erum með tvær tegundir af hverabrauðum.
Hveraseydd rúgbrauð og hverabökuð
heilhveitibrauð frá Hverabakaríi, Hveragerði.
Reynið hverabökuðu brauðin.
HAGKAUP
Akureyri