Dagur - 23.08.1985, Page 16
rnmrn
Akureyri, föstudagur 23. ágúst 1985
Breyting á opnunartíma
á Bautanum.
Frá 26. ágúst verður opið frá kl. 9.00-22.30.
- -í gti • r - • ■
m '
í gær hófu félagar í ungmenna-
félögum innan HSÞ að synda
maraþonsund, til að afla fjár til
starfsemi félagsins. Þeir ætla
að halda áfram að synda þar til
á sunnudaginn og reikna með
að hafa þá synt þrjú til fjögur
hundruð kflómetra.
Sundið fer fram í sundlauginni
í Reykjahlíð og það var Sigurður
Jónsson, fyrrum olympíusund-
kappi, sem synti fyrsta sprettinn
í gær. Héraðssambandið safnar
áheitum til að fjármagna starf-
semi sína og er margt á döfinni.
Til dæmis mun HSP halda lands-
mót árið 1987. - KGA.
Karl
sagði upp
Karl Gunnlaugsson kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Sval-
barðseyrar sagði af sér á full-
trúafundi sem haldinn var fyrir
viku.
Á fundinum kom fram mikil
gagnrýni á rekstur og stöðu kaup-
félagsins og var það í framhaldi
af miklum óánægjuröddum á
aðalfundi fyrr í sumar. Það munu
hafa verið Fnjóskdælingar sem
knúðu á um greinargerð um fjár-
hagsstöðu félagsins með þeim af-
leiðingum sem að framan greinir.
Forstjóraskipti hjá Iðnaðardeild Sambandsins:
Jón Sigurðarson tekur
við af Hirti Eiríkssyni
I gær var starfsfólki Iðnaðar-
deildar Sambandsins á Akur-
eyri tilkynnt um framkvæmda-
stjóraskipti hjá deildinni, sem
koma til framkvæmda 15. sept.
Þá lætur Hjörtur Eiríksson af
störfum, en við tekur Jón Sig-
urðarson. Hjörtur tekur frá
sama tíma við starfi fram-
kvæmdastjóra Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna.
Hjörtur Eiríksson frkvstj. er
fæddur 11. nóvember 1928 í
Reykjavík. Hann lauk verslunar-
skólaprófi 1947 og iðntækninámi
í Bretlandi 1949. Hann hóf störf
Hjörtur Eiríksson: „Ekki seinna vænna fyrir mig að hætta.“ Jón Sigurðar-
son: „Geng bjartsýhn til þeirra verkefna sem bíða mín.“ Mynd: KGA.
Dagvistun á Akureyri:
Astandiö mjög slæmt
Félagsmálaráði Akureyrar hef-
ur boríst erindi frá „áhugahópi
foreldra um stofnun og rekstur
dagheimilis“. í erindinu er
óskað eftir þátttöku bæjarfé-
lagsins við stofnun og rekstur
slíkrar dagvistar.
Sigríður Jóhannsdóttir, dag-
vistarfulltrúi, sagði að búið væri
að ræða þetta mál að hluta í fé-
lagsmálaráði, en ekki hefðu verið
teknar neinar ákvarðanir eða
bókanir gerðar. Ekki náðist í
neinn talsmann fyrir hópinn.
Ástandið í dagvistarmálum á
Akureyri er vægast sagt mjög
slæmt. 359 börn eru á biðlista á
dagvistir en dagvistarpláss í bæn-
um eru 350. Það vantar því um
helmingi fleiri pláss. Ein dagvist
er í byggingu, Flúðir. Mun þar
verða pláss fyrir 80 börn, 12 á
dagheimi!/ og 67 í leikskóla.
Sagði Sigríður að áætlað hefði
veriö að taka það í notkun 1.
október, en sú áætlun myndi trú-
lega ekki standast.
Sagði Sigríður, að eins oj
ástandið væri í dag þá væru ein
göngu börn einstæðra foreldra á
dagheimilum bæjarins. Ganga
þau fyrir með pláss bæði á dag-
heimilum og leikskólum, en samt
eru 33 börn einstæðra foreldra á
biðlista eftir plássi á dagheimili.
Á leikskólunum eru hins vegar
bæði börn einstæðra og giftra for-
eldra. Pláss á leikskóla eru 4-5
tímar á dag, sem nýtist einstæð-
um foreldrum sérstaklega illa.
Bærinn rekur skóladagheimilið
Brekkukot og eru þar 28 pláss.
Umsóknir voru 48 að þessu sinni
og sagði Sigríður að búið væri að
úthluta öllum plássunum og væru
það allt börn einstæðra foreldra.
- HJS
hjá Iðnaðardeild Sambandsins
um áramót 1949-50 og fór til
Þýskalands 1953 á vegum
hennar. Þar var hann við nám í
ullarvinnslu í þrjú ár og út-
skrifaðist sem ullarfræðingur í
árslok 1956. Síðan hefur hann
starfað samfellt hjá deildinni, þar
af sem verksmiðjustjóri ullar-
verksmiðjunnar Gefjunar 1972-
’75 og sem framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar frá 1975. Hjörtur
er kvæntur Þorgerði Árnadóttur
og eiga þau fjögur börn.
Jón Sigurðarson frkvstj. er
fæddur 12. mars 1952 í Reykja-
vík, en ólst upp á Patreksfirði og
Ystafelli í Þingeyjarsýslu. Hann
nam verkfræði við Háskóla ís-
Iands og lauk síðan prófi sem
efnaverkfræðingur í Kaup-
mannáhöfn 1977. Hann varð
framkvæmdastjóri Plasteinangr-
unar hf. á Akureyri 1977, en árið
1980 varð hann aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
Sambandsins og veitti forstöðu
skinnaiðnaði hennar. Fyrr á
þessu ári tók hann svo við for-
stöðu ullariðnaðar deildarinnar.
Jón situr í bæjarstjórn Akureyrar
og hefur verið formaður At-
vinnumálanefndar Akureyrar
frá 1982. Hann er kvæntur Sigríði
Svönu Pétursdóttur, og eiga þau
þrjú börn. _ Gs
Sjá viðtöl á bls. 12.
Krossanes:
Fyrsta loðnan
Á miðvikudagskvöldið kom
Hákon ÞH 250 til hafnar í
Krossanesi og landaði þar ríf-
lega 800 tonnum af loðnu.
Þar með hófst bræðsla í
Krossanesverksmiðjunni á þess-
ari vertíð. Grindvíkingur GK 606
kom svo í gærkvöld með yfir
1100 tonn sem einnig fara til
bræðslu í Krossanesi. Þessi loðna
er veidd á miðunum við Jan
Mayen og eru í kringum 15 skip
farin til þessara veiða. Von er á
fleiri skipum til löndunar í
Krossanesi á næstu dögum. -yk.
Tveir hressir skipverjar á Hákoni við barmafulla lestina. Mynd: KGA.
Spáin fyrir helgina er
ósköp stutt og dapur-
leg, fyrir flesta Norð-
lendinga a.m.k. Það
verður norðanátt,
skýjað, rigning og
kalt. Ekki vildi veður-
fræðingur tjá sig frek-
ar um veðrið.
Nýkomið
Glæsilegt úrval af efnum nýkomið
Hreinn ævintýraheimur
Litadýrð í sérflokki
Odýru matar-
og kaffistellin komin aftur
Pantanir óskast sóttar
Póstsendum.