Dagur - 13.09.1985, Blaðsíða 4

Dagur - 13.09.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 13. september 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI 24222 ÁSKRIFT KR. 300 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF Kvótamálin umdeildu Umræður um kvótamálin hafa nú aukist dag frá degi vegna þeirra erfiðleika sem margir útgerðaraðilar og fiskverkendur eru að kom- ast í. Aflabrögð hafa verið með eindæmum góð og kvótarnir víða að klárast. Þetta getur þýtt afkomu- brest hjá fjölmörgum fyrir- tækum og launþegum sem vinna að þessum atvinnu- vegi - rekstrarstöðvun og uppsagnir starfsfólks. Tæpast er hægt að segja að góð aflabrögð teljist til illra tíðinda, en þó er nú svo komið, að þessi góðu afla- brögð sem verið hafa undanfarið valda erfið- leikum síðar á árinu. Of hratt hefur verið gengið á kvótann, en á hinn bóginn er skiljanlegt að fiskimenn dragi þann fisk úr sjó sem auðvelt og ódýrt er að ná í og þá á sem stystum tíma. Þetta er þó ekki svona ein- falt, þar sem fréttir hafa borist af því víða að allt of mikill fiskur hafi borist á land á stuttum tíma, miðað við afkastagetu fiskverkun- arhúsanna. í stuttu máli sagt þá hefur nægilegri fyrirhyggju ekki verið beitt við veiðar og vinnslu. ís- lendingar eru enn veiði- mannaþjóðfélag í þessum skilningi og skipuleg hrá- efnisöflun og framleiðsla ennþá nokkuð langt frá því sem þekkiát og er nauðsyn í iðnvæddu samfélagi. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hef- ur varpað fram þeirri hugmynd, að hægt verði að jafna kvóta milli ára. Þannig mætti hugsanlega veiða nokkru meira en kvóti þessa árs segir til um, með því að draga þær veiðar frá veiðikvótum næstu ára. Þetta hefur fallið í mjög misjafnan jarðveg hjá þeim sem málið snertir. Sumir tala um að þetta sé hrein- asta fásinna, en aðrir telja þennan möguleika koma til greina. Mörgum gleymist það meginatriði sem þessi hugmynd, sem sjávarút- vegsráðherra varpaði fram, byggist á. Meginatriðið er það að veiðarnar verði ekki skipulagðar til skamms tíma t.d. eins árs í senn, heldur verði um jafnvel þriggja ára áætlun að ræða. Slíka áætlun þyrfti að sjálf- sögðu að endurskoða með vissu millibili, eins og allar góðar áætlanir. Eftir sem áður væri hægt að skapa eitthvert takmarkað svig- rúm til kvótatilfærslu án þess að raska allt of miklu. Áður en skýrsla Hafrann- sóknastofnunar um leyfi- legt aflamagn á næsta ári og tillögur um veiðitilhögun næstu ára liggur fyrir, er hins vegar ekki hægt að út- færa þessa hugmynd sjá- varútvegsráðherra nánar. Þessi möguleiki gæti hins vegar reynst raunhæfur gagnvart sumum, þótt ekki ætti hann við í öllum tilvik- um. Menn hafa verið of fljótir á sér að fordæma þessa hugmynd áður en hægt er að ræða nánar við hvað er átt. Félagarnir Nökkvi og Starri „að störfum' Blönduós: ,$árafáir efár af mímim Það var norðankuldagjóstur er við komum að þeim félögum Nökkva Jóhannessyni og Starra Heiðmarssyni þar sem þeir borgruðu yfir steypu- mótum sem þeir voru að ganga frá. Kuldinn virtist ekki hafa nein áhrif á þá félaga því ekki drógu þeir af sér við vinnuna. „Við erum að steypa bita í fjósgólf fyrir bónda hér í sveit- inni,“ sagði Nökkvi. - Eruð þið vanir steypuvinnu? „Já, nokkuð,“ segir Nökkvi, „annars er ég sjómaður, og er hérna um það bil þrjá mánuði á ári. Ég lít á það sem sumarfrí að koma heim og vinna eitthvað annað en sjómannsstörf. Og þá er alveg upplagt að vera í steyp- unni.“ En hvað segir hinn þögli Starri, hvaðan er hann? „Ég er úr Skagafirði. Það er frændi minn sem er með þessa steypuvinnu hér og ég komst í þetta gegnum hann. Annars er ég í skóla svo þetta er bara sumar- vinna, til að eiga eitthvað af aur- um í vetur.“ Nökkvi sjómaður er tvítugur og hefur stundað sjó í nokkur ár. „Það er meiningin að fara í stýrimannaskólann í haust eða næsta haust. Það ræðst bara af því hvað ég á mikið af peningum. En sjórinn verður fyrir valinu, það er enginn vafi. Mér líkar mjög vel á sjó.“ Þeir Nökkvi og Starri voru sammála um að Blönduós ætti framtíð fyrir sér. „Það þarf að byggja á fleiru en þjónustu við sveitirnar, það þarf að koma upp framleiðslu á einhvern hátt. Ég mundi flytja heim ef útgerð kæmi hér í stærri stíl en nú er. En til að það geti orðið þarf höfn, það tel ég stórt mál fyrir staðinn. Sjáðu til dæmis ungt fólk af mínum ár- gangi, það er sárafátt eftir af þeim krökkum hér á Blönduósi, það eru flestir fluttir burtu þangað sem betur er borgað og meiri möguleiki til náms og vinnu,“ sagði Nökkvi og lagði áherslu á orð sín. Það er ekki vert að tefja þessa rösku pilta öllu lengur svo við þökkum fyrir spjallið og ábendingar til betra lífs á Blönduósi. - gej

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.