Dagur - 02.10.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 2. október 1985
_Jokdreifac
verður fimmtudaginn 3. október
frá kl. 3-6 e.h.
Kynntar verða
ostakökur frá MS
og
Braga kaffi
frá Kaffibrennslu Akureyrar
*
Kynnist nýjungum.
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Nýliðastarfið
er að hefjast
Kynningarfundur verður 18. október kl. 20.00 að
Galtalæk gegnt flugvelli.
Öllum 16 ára og eldri heimil þátttaka.
Stjórnin.
Fundur
verður haldinn í fulltrúaráði
framsóknarfélaganna á Akureyri
fimmtudaginn 3. okt. nk. að Eiðsvallagötu 6 (Bólu
og hefst kl. 20.30.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Guðmundur Bjarnason halda
almenna stjórnmálafundi sem hér segir:
Miðvikud. 2. okt. kl. 21
Fimmtud. 3. okt. kl. 14
Fimmtud. 3. okt. kl. 21
Föstud. 4. okt. kl. 21
Laugard. 5. okt. kl. 21
Sunnud. 6. okt. kl. 14
F ramsóknarflokkurinn.
Bergþórshvoll Dalvík
Samkomuhúsið Grímsey
Tjarnarborg Ólafsfirði
Samkomuhúsið Grenivík
Melar Hörgárdal
Sólgarður Saurbæjarhr.
Páll Jóhannesson.
Katrín Sigurðardóttir.
Kristján Jóhannsson.
Norðlenskir listamenn
gera garðinn frægann
- Kristján Jóhannsson, Katrín Sigurðardóttir og Páll Jóhannesson
hafa fengið lofsamlega dóma gagnrýnenda
Norðlenskir söngvarar hafa
gert garðinn frægan að undan-
förnu. Kristján Jóhannsson
hefur fengið mjög lofsamlega
dóma gagnrýnenda fyrir
frammistöðu sína í Grímu-
dansleiknum. Sömu sögu er að
segja um Katrínu Sigurðar-
dóttur frá Húsavík. Auk þess
héft Páil Jóhannesson nýlega
tónleika í Reykjavík og víðar.
Hér á eftir fara ummæli nokk-
urra gagnrýnenda um frammi-
stöðu þessara norðlensku lista-
manna.
í Morgunblaðinu segir Jón Ás-
geirsson, tónskáld, um söng
Kristjáns Jóhannssonar í Grímu-
dansleiknum:
„Kristján Jóhannsson er sá
maður sýningarinnar sem hefur
verulega reynslu á sviði en auk
þess syngur hann hreint út sagt
stórkostlega . . . Allir sem hlut
áttu að þessari sýningu hafa unn-
ið vel og ekki á nokkurn hallað
þó sagt sé að Kristján Jóhanns-
son hafi borið sýninguna uppi
með ótrúlega glæsilegum söng og
líflegum leik, og er í raun óþarfi
að taka nokkuð sérstakiega fram,
annað en að slíkur söngvari á
sannarlega einnig erindi upp á
stærra svið en litla sviðið okkar í
Þjóðleikhúsinu."
Um Katrínu Sigurðardóttur
segir Jón:
„Katrín Sigurðardóttir var
mjög góð sem Oscar. Leikur
hennar var frísklegur og þar sem
hún fékk tækifæri til að láta rödd
sína hljóma var hún frábær, sér-
staklega á grímudansleiknum á
móti Renato.“
Sverrir Hólmarsson skrifar í
Þjóðviljann og þar segir hann um
Kristján:
„Að öllum öðrum ólöstuðum
held ég að allir geti verið sam-
mála um að þessi mikli sigur
hljóti að vera einum manni að
þakka fremur öðrum: Kristjáni
Jóhannssyni. Loksins fengu ís-
lendingar tækifæri til að heyra og
sjá þennan söngvara sem hefur
farið geyst milli óperuhúsa
heimsins á undanförnum árum.
Og það var mikil reynsla. Maður-
inn hefur ótrúlega rödd og beitir
henni af takmarkalausri leikni.
Hann rennir sér upp á hæstu tóna
stigans eins léttilega og hann veif-
ar hendinni. Allir hlutar tónstig-
ans virðast honum jafn auðveld-
ir. Auk þess fer hann um sviðið
af öryggi og léttleik og stafar frá
sér sterkri útgeislun. Túlkun hans
er innileg, hjartnæm og dramat-
ísk. Það veitir manni dásamlega
öryggiskennd að hlusta á slíkan
söngvara, maður veit að ekkert
getur mistekist - og allt virðist
svo auðvelt og áreynslulaust.
Frá fyrsta tóni hreif Kristján allt
húsið með sér, ekki aðeins áheyr-
endur heldur einnig hina söngv-
arana, sem hann lyfti með sér
upp í hæðir.“
Katrín Sigurðardóttir fær einn-
ig lofsamleg ummæli hjá Sverri:
„Katrín Sigurðardóttir var iétt
og leikandi á sviðinu í hlutverki
Oscars. Hún hefur fallega rödd
og er gædd ótvíræðum leikhæfi-
leikum."
Sigurður Steinþórsson skrifar
um Grímudansleikinn í NT og
þar segir hann m.a.:
„Kristján Jóhannsson ber að
vissu leyti höfuð og herðar yfir
alla aðra, bæði vegna þess hve
framúrskarandi söngvari hann er,
en einnig vegna reynslu sinnar og
öryggis. Hann er frábærlega góð-
ur í hlutverki Gústafs III., syngur
ljómandi vel og leikur ágætlega;
margreyndur óperufari sagðist
t.d. ekki hafa séð jafn fínt og
sannfærandi andlát á óperu-
sviði."
Um frammistöðu Katrínar seg-
ir Sigurður:
„Katrín Sigurðardóttir syngur
ungþjóninn Oskar. Hún er leik-
andi léttur sópran með örugga og
frjálslega framkomu og söng
ljómandi vel. Verdi vissi alltaf
hvað hann var að gera í óperu-
málum og hlýtur að hafa skrifað
þetta hlutverk þjóns fyrir sópr-
anrödd til að lífga upp á sönginn
í atriðum þar sem dimmradda
karlar eru saman komnir."
Eyjólfur Melsteð skrifar um
Grímudansleikinn í DV og segir
þar um Kristján:
„Kristján Jóhannsson er ágæt-
ur sem Gústaf listelski Svíakóng-
ur. Hann fer léttilega með glans-
númerin, aríurnar eins og í fyrsta
þætti, La rivedra neli’ estasi og
í þriðja þætti, Ma se m’ e forza
perditi. Mest þótti mér samt um
vert hve vel söngur hans féll inn
í samsönginn.“
Um Katrínu segir Eyjólfur:
„Katrín Sigurðardóttir helgar
sér með söng sínum í hlutverki
Oscars stærsta „Pagehlutverkið“
í óperu, landsiiðssæti. Til þess
beitir hún ríkri sköpunargáfu og
bjartri sópranrödd, svo að ekki
verkar tilvist hennar á neinn hátt
á skjön í öllu karlaveldinu."
Páll Jóhannesson hefur nýver-
ið haldið tónleika í Reykjavík og
raunar einnig á Akureyri. Jón
Ásgeirsson skrifar um Pál í
Morgunblaðið og segir þar m.a.:
„Söngrödd Páls er einstaklega
glæsileg og þar sem honum tekst
upp, er söngur hans með þeim
hætti er leggja má að jöfnu við
það sem glæsilegast þekkist.
Þrátt fyrir þessa einstöku rödd
sína nær Páll oft ekki að skila lög-
unum sem heilstæðu tónverki,
svo að í sama lagi slær oft undar-
lega flötu við í einni stófu en sú
næsta getur svo verið hreint
afbragð. Tóntakið þar sem hann
nær sér upp er glæsilegt en það
sem vantar oftlega er hrynræn
skerpa, svo að lagferlið verður
undarlega reikult.
Tónleikarnir hófust á Heyr
mig, eftir Inga T. Lárusson og
söng Páll þetta lag frábærlega
vel. Vorvindar eftir Jón Björns-
son og Heimir eftir Sigvalda
Kaldalóns voru ágætlega flutt og
sömuleiðis í dag eftir Sigfús Hall-
dórsson. í fjarlægð eftir Karl O.
Runólfsson heppnaðist hins veg-
ar ekki. Páll söng þrjú lög eftir
Tosti og voru það einu lögin sem
hann söng eftir bók það sem
verra var, mjög illa.“
í NT skrifar Sigurður Stein-
þórsson og hann segir um
frammistöðu Páls:
„Páll Jóhannesson virðist vera
sérlega glæsilegt söngvaraefni,
með mikla og háa tenórrödd. Ef
rétt spilast úr þeim sterku söng-
spilum sem hann nú hefur á
hendi - og Páll á mikið eftir
ólært, sem bæði söngkennarar og
reynslan geta kennt honum - er
mikils af honum að vænta. Eftir
hlé sótti hann sig mjög í flutn-
ingnum, og í íslensku lögunum
tveimur sýndi hann tilþrif sem
sérhver söngvari væri fullsæmdur
af. En hæst reis hann í auka-
lögunum, líklega innblásinn af
góðum viðtökum og laus orðinn
við skrekk og feimni. Þá sýndi
Páll að hann á bæði veikan tón og
sterkan - hann flutti í stað þess
að belja. Neuhaus píanókennari
segir, að ungir efnispíanistar hafi
gaman að því að ólmast á hljóð-
færinu, en þegar þeir eflist að
þroska með aldri, fari tónlistin
sjálf að skipta mestu máli. Eins
er þetta sjálfsagt með raddsterka
tenóra að þeir hafa gaman að
því að reyna á röddina. Og marg-
ir aðdáendur tenórsöngs eru
raunar sama sinnis. Páll Jóhann-
esson sýndi á þessum tónleikum
að hann á mikla og fallega rödd,
og að einnig músíkalskt má mik-
ils af honum vænta ef allt æxlast
sem horfir."