Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 5
4. október 1985 - DAGUR - 5
Jijátrú eða hvað?-
Haraldur Ingi
Haraldsson skrifar
Hvalir
Hvalir hafa verið mikið í fréttum
undanfarið og fer því vel á að
hefja þessa þætti á nokkrum lín-
um um þessi göfugu spendýr.
Pjóðtrú fjölmargra landa ber
hvölunum vel söguna, ógæfa
fylgir þeim sem eltir þá uppi og
drepur. Ef hvalur sést á stað þar
sem engin hvalagengd hefur ver-
ið áður boðar það ekkert gott. Það var einnig útbreidd
hjátrú meðal eiginkvenna hvalfangara í Evrópu að þær
mættu ekki neyta matar á meðan eiginmaðurinn var á
veiðum, annars yrði veiðin rýr.
Bakstur
Allir þeir sem baka og eru spar-
samir eða barngóðir nota afskurð
og deigleifar til að gera börnum
sínum eða öðrum gott í munni.
Þessi siður á sér rætur sem fáum
er kunnugt um. Fyrr á öldum var
því trúað að það sem bakað væri
í ofninum mundi eyðileggjast,
brenna við eða eitthvað annað
spilla bakstrinum, nema að úr leifum deigsins væri búið til
eitthvað handa börnunum. Að henda leifum var ógæfu-
merki og líka það að telja kökurnar og brauðin út úr ofn-
inum. Ef brauðið eða kakan kom brotin út úr ofninum
mátti fastlega reikna með ókunnugum í heimsókn og átti
hann þá að fá af kökunni.
„Brauð er barna matur.“
Rúmið
Ýmiss konar hjátrú er tengd
rúminu. Flestir kannast við að sá
sem fer öfugu megin fram úr á
morgnana á fyrir höndum
óskemmtilegan dag. Öfuga hlið
rúmsins er að sjálfsögðu vinstri
hliðin, vegna þess að skrattinn
sat við vinstri hlið Drottins áður
en honum var vísað úr himna-
ríki. Hendi það menn að stíga öfugu megin fram úr má
bæta úr því á ýmsan hátt þó sérstaklega með því að klæða
sig fyrst af öllu í hægri sokkinn og skóinn áður en í önnur
föt er farið. Varasamt er að fara upp í öðru megin en fram
úr hinum megin og rúm eiga aldrei fleiri en tveir að búa
upp, frávik frá því gæti þýtt dauðsfall í fjölskyldunni.
Englendingar hafa komist að því að með því að hafa
tvær fötur af fersku vatni undir rúmi sínu (vatnið verður að
endurnýja daglega) er hægt að koma í veg fyrir morgunleti
og það að fá slæma húð sem allir fá er liggja of lengi í rúm-
inu. í ýmsum Evrópulöndum er það siður að þrífa aldrei
gestaherbergi fyrr en einni klukkustundu eftir að gesturinn
er farinn. Þetta er gert til þess að forðast ógæfu og einnig
vegna þess að hið gagnstæða veit á komu óvelkomins
gests.
Að kíkja undir rúmið áður en gengið er til náða er oft
gert. í mörgum löndum trúðu menn því að djöfullinn ætti
það til að fela sig á slíkum stað. í Ameríku er það sagt að
slæmt teikn sé að leggja hatt sinn á rúm og að aldrei megi
snúa við eða viðra dýnu á föstudegi eða sunnudegi. Ef ekki
er farið eftir þessu er hætt við slæmum draumum. í mörg-
um Evrópulöndum og ekki síst á íslandi er því trúað að
rúm verði að snúa austur og vestur. Snúi rúmið í suður og
norður er það orsökin fyrir því hvað eigandi þess sefur illa.
„Rúmlegull aflar lítils forða“ og „gaman þykir rúm-
iötum að góna í morgunljóra“ segja tveir íslenskir máls-
hættir sem kenna mönnum iðjusemi.
Utanáskrift þáttarins er: Dagur, Strandgötu 31,
pósthólf 58, Akureyri. Hjátrú - eða hvað?
GD PIOMEER
veisla
Nyja
flö PIONEER
linan í hljomflutningstækjum
er komin.
Margar gerðir og
verðflokkar. Líttu inn og kíktu á
ðö PIONEER
hljómflutningstækin.
SIGLFIRDINGAR
TÖLVU
SÝNING
® verður í Grunnskóla
Siglufjarðar n.k. sunnudag
6.okt.frákl. 13-18
Sýndar verða nýjustu
tölvurnar á markaðnum í dag
og vandaður hugbúnaður frá
ýmsum aðilum
SKRIFSTOFUVÉLAR
H.F.
TÖLVUDEILD UTIBU
GRANUFEIAGSGÖTU 4
AKUREYRI
TÖLVUTÆKI
S.F SS