Dagur - 04.10.1985, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 4. október 1985
Umsjón: Tómas Gunnarsson
NUDD-OG GUFUBAÐSTOFAN
SOLSTOFA
Tungusíðu 6, Akureyri
auglýsir breytta tíma
frá og með 1. október
Konur Karlar
Sunnudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
8.00-17.00
13.00-23.00
8.00-17.00
8.00-23.00
8.00-17.00
9.00-19.00
9.00-13.00
17.00-23.00
17.00-23.00
17.00-23.00
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Skotveiðimenn
Nú eru Baikal haglabyssurnar komnar.
Einskota. Verð kr. 6.715,-
Tvíhleypur, verð kr. 19.850,-
Marocchi tvíhleypur (undir og yfir).
Verð kr. 26.550,- og 29.950,-
Pumpur, Vinchester og Mosberg.
Brno tvíhleypur (undir og yfir, hlið við hlið).
Gervigæsir. Verð 330,-
Gæsaflautur úr plasti og tré.
Opið laugardaga kl. 10-12.
Hfl Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 • sími 22275
E
Hann Týri
er týndur
Þessi hundur tapaðist af
Brekkunni síðastliðinn
þriðjudagsmorgun.
Hann er íslenskur blending-
ur, hvítur og grábrúnn að lit.
Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar eru vinsamlegast
beðnir að hringja í
síma 22766.
Fundarlaun.
-poppsíðan
Með ísland á landakortinu
Þegar Stephen Duffy, var um
það bil þriggja ára, tæmdi hann
límfötu yfir höfuðið á sér. Af-
leiðingarnar voru þær að hárið
á honum óx ekki eðlilega lengi
á eftir og svo - eins og hann
sjálfur segir - var hann „hátt
uppi“ í sex ár. Þessi skrýtni at-
burður er ef til vill engin nýlunda
á ferli Duffys. Ferill hans spann-
ar frá því að vera söngvari með
Duran Duran, semja lög með
soulrisanum Booker T og að
stjórna upptökum annarra lista-
manna.
Líf Stephens hófst fyrir 24.
árum en ákaflega er lítið vitað
um drenginn þar til hann hefur
nám í listaskóla. Þar var hann í
hljómsveit með samnemendum
sínum, þeim Nick Rhodes og
John Taylor. En Duffy vill ekki
ræða þessi mál. „Þú getur ekki
ímyndað þér hvað það er leiðin-
legt, að blaðamenn vilja alltaf
spyrja mig um menn, sem er allt
of mikið skrifað um í blöðin nú
þegar."
Svo Stephen hætti í Duran.
Hann millilenti í einni óþekktri
hljómsveit, en hóf síðan sóló-
feril. Það var síðan 1983 sem
hann hljóðritaði Kiss Me í fyrsta
skipti. Lagið vakti litla athygli í
Englandi. Hins vegar varð það
mikill danssmellur í Bandaríkj-
unum, eftir endurhljóðblöndun
Francis Kevorkian, og náði inn á
top 10 danslistans.
Þannig má segja að það Kiss
Me sem við þekkjum og sló í
gegn á Englandi nú 1985 sé
þriðja útgáfan af laginu. Þá út-
gáfu hljóðritaði Duffy undir
stjórn J.J. Jeczalik úr hljóm-
sveitinni Art of Noise.
Eftir sex ára strit og svita,
varð Stephen „Tin Tin“ frægur á
nær því einni nóttu. Strákurinn
sem hætti i Duran Duran, hafði
slegið í gegn á eigin spýtur.
Vinsældum Kiss Me, fylgdi
Stephen Duffy svo eftir með
smáskífunni lceing on The
Cake og breiðskífunni The Ups
And Downs. Á örskömmum
tíma var hann kominn í tölu
stórstirna í enska poppheimin'
um. Nú er Stephen byrjaðu.
nýrri breiðskífu, og er lagið
Unkiss That Kiss, þegar komið
hátt á vinsældalista, bæði hér
heima og eins í heimalandi
Stephens, Englandi.
I millitíðinni hafði kappinn
breytt nafni sínu lítillega, í stað
Tin Tin nafnsins var komin
skammstöfunin A.J. sem ku
standa fyrir Anthony James.
Þess má geta svona rétt í
lokin, að vinsældalisti Rásar
tvö, er eini vinsældalisti sem
fyrrgreindur Stephen Anthony
James Duffy hefur náð topp-
sæti á. Þess vegna hefur Duffy
" ‘ áhuga sínum á því að
i til íslands og skemmta
okkur hér á skerinu. Gæti það
ekki bara verið gaman, því
merkilegt nokk til er poppari
sem talar um ísland af fyrra
bragði.
Þetta var tækifærið fyrir Harold
Faltermeyjer. Hann vann síðan
við tónistina við Amerikan Gigalo
og Thief of Hearts. Síðan var það
Beverly Hills Cop. Þar samdi
Harold meginhluta tónlistarinnar,
og menn fóru að spyrja, hvaða
Harold?
Enginn vissi hvað átti að segja,
útgáfufyrirtæki hans í Englandi
átti ekki svo mikið sem mynd af
honum. Myndin sem vantaði er
hér til hliðar, en æviatriðin hafa
ekki enn verið birt, þó er vitað að
hann er fæddur í Munchen og
hlaut klassíska tónlistarmenntun,
vann jafnvel um tíma með Karl
Bohm, einhverjum virtasta stjórn-
anda klassískrar tónlistar.
Síðan samdi hann tónlistina
fyrir kvikmyndina Fletch, og
stendur nú í viðræðum um tvær
kvikmyndir í viðbót. Þá loksins
segir Harold að verði tími fyrir
sólóplötu, og ætlar að hafa hana
með 60% instrumentalefni. Það
verður því að teljast ólíklegt að
Harold Faltermeyjer hafi samið
sinn síðasta smell.
HAROLD
Fæstir hefðu reiknað með að lag-
ið Axel F., instrumentallag, yrði
einhver stærsti smellurinn í
sumar... Fáum kom það þó meira
á óvart, en Harold F., þýskum
hljómborðsleikara sem ber nafn-
ið Harold Faltermeyjer.
„Þetta var æðislegt, kom virki-
lega á óvart. Það er draumur
hvers lagahöfundar, að slá í
gegn með instrumentallagi. Þar
stendur lagið eitt og óstutt."
Þó er ekki þar með sagt að
Harold geti ekki samið smelli, fyr-
ir raddir. Hann samdi Hot Stuff
fyrir Donnu Summer og The Heat
Is On sem Glenn Frey flutti.
Það voru hæfileikar Falter-
meyjers sem útsetjara, tónlistar-
manns og stjórnanda sem vöktu
áhuga Georgios Moroders á
honum. Þýska diskógoðsögnin,
bað hann að útsetja og spila tón-
listina við mynd Alans Parkers,
The Midnight Express. En fyrsti
stóri smellurinn kom þegar hann
ásamt Moroder sá um breiðskífu
Donnu Summer, Bad Girls.
□□□
Diana Ross
Eaten Alive
Gamla súperstjarnan lætur
frá sér heyra á nýjan leik
og nýtur aðstoðar engra
annarra en Barry Gíbb og
Michael Jackson. Lagið er
samið af Gibb bræðrum og
fyrrnefndum Michael. Lag-
ið er í raun hvorki verra né
betra heldur en þau lög
sem ganga á dansstöðum
f dag. Þó að það hljómi
kannski ekki sannfærandi
heima við er það pottþétt á
diskótekinu. Gott danslag
og líklega smellur, og nýt-
ur hún þar Michaels f bak-
röddunum.
Mezzoforte
Thls Is The Night
í upphafi skal það fram
tekið að undirritaður hefur
aldrei þótt gefinn fyrir
fusion tónlist, getur líka
verið að það komi ekki að
sök, þar sem tónlist
Mezzoforte getur varla tal-
ist hreint fusion lengur.
Lagið getur talist þokka-
legt danslag en varla neitt
meir. Lagið á eflaust eftir
að slá i gegn á Rás 2, en
verður varla sá smellur
sem Mezzoforte þarfnast f
Englandi.
Bryan Ferry
Don’t Stop The
Dance
Bryan Ferry hefur verið
þekktur fyrir þægilega og
vandaða tónlist í rólegri
kantinum. Þetta lag er þar
engin undantekning. Lagíð
líður nokkuð átakalaust
fram hjá við fyrstu hlustun.
Séu eyrun síðan sperrt
fara gæðin að koma í Ijós.
Ferry ætti alla vega að
halda gömlum aðdáend-
um, en ég sé þetta lag
varla vinna nýja. Fullorð-
inspopp.