Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 11
4. október 1985 - DAGUR - 11
Viðtökumar hafa
verið alveg dásœnkgar
Ingibjörg Magnúsdóttir blaðamaður Dags á Húsavík
á línunni.
- Dagur.
- Góðan daginn Dagur. Pað
er Dagur hérna megin líka.
Pakka þér fyrir síðast Ingibjörg
Magnúsdóttir blaðamaður Dags
á Húsavík.
- Já, sömuleiðis. Heyrðu er
ég á línunni?
- Já, já, einmitt og ég held að
það sé best að við byrjum á
Húsavíkinni. Ertu Húsvíking-
ur?
- Ég er fæddur og uppalinn
Húsvíkingur. Er ekta Húsvík-
ingur.
- Hvernig eru ekta Húsvík-
ingar?
- Svona eins og ég! Ananrs er
alltaf verið að finna einhvern
sameiginlegan flöt á Húsvíking-
um, Islendingum o.s.frv. og það
gengur svona upp og ofan.
- Pið eruð ekkert á Hafnar-
fjarðarlínunni ???
- Nei, við erum engir Hafn-
firðingar. Ég þekki marga Hafn-
firðinga sem eru indælis fólk og
það á við um Húsvíkinga líka.
Við eigum það kannski sameig-
inlegt með þeim. Að vera voða
indæl.
- Ef við snúum okkur að
öðru, hvað hefur þú starfað í
gegnum árin?
- Ég hef verið og er húsmóð-
ir. Ég er gift Þorbirni Sigvalda-
syni og við eigum þrjá stráka, 8,
13 og 16 ára. Jafnframt húsmóð-
urstörfunum þá hef ég unnið úti,
hlutastörf, mest við ræstingar og
einnig í fiski.
- En hvenær ferðu út í blaða-
mennskuna?
- Pað var fyrir rúmum tveim-
ur árum, að Jón G. Hauk,sson
blaðamaður DV hringdi í mig
og bauð mér að gerast fréttarit-
ari blaðsins á Húsavík. Ég var
ákaflega spennt fyrir því og sló
til. Þetta var mjög skemmtileg
vinna, maður fékk smá nasasjón
af hlutunum. Nú, hér á Húsavík
eins og í öðrum sjávarplássum,
þá eru allir að leita sér að lifandi
og skemmtilegri vinnu, en það
er fátt um svoleiðis nokkuð.
Fiskurinn er númer 1, 2 og 3,
þannig að auðvitað grípur mað-
ur gæsina....
- ...Og nú ertu blaðamaður
Dags á Húsavík?
- Já, mér var boðið það og
var mjög spennt. Börnin voru
farin að stækka og ég ekki bund-
in yfir heimilinu. Ég var því far-
in að leita mér að vinnu sem mér
þætti gaman að. Nú eins og ég
sagði áðan þá eru valkostirnir
ekki margir. Þannig að auðvitað
skellti ég mér út í þetta og er
himinsæl.
- Hvernig gengur að afla
frétta?
- Ég reyni að fylgjast vel með
öllu sem hér er að gerast. Ég hef
samband við fólk og fólk hefur
samband við mig. Ég er með
skrifstofu að Garðarsbraut 5,
annarri hæð og það er sífellt að
aukast að fólk komi við, eða
hringi. Fólk er að átta sig á því
að hér á Húsavík er starfandi
blaðamaður Dags.
- Finnur þú fyrir mikilli sam-
keppni við Víkurblaðið?
- Ég er ákaflega mikil vin-
kona Víkurblaðsins og hef verið
það lengi. Ég er fjölmiðlafrík og
er ákaflega hrifin af blaðaút-
gáfu. Það er nauðsynlegt að gefa
út blað á staðnum svo að fólk
geti lesið þar það sem um er að
vera. Mér finnst landsbyggðin
afskipt í Reykjavíkurblöðunum.
Það sem er að gerast úti á lands-
byggðinni er notað mikið sem
uppfyllingarefni. Blaðamenn
eru við og við sendir út á land,
en góðar og stöðugar fréttir af
hinum ýmsu stöðum lands-
byggðarinnar er ekki hægt að
tala um. Þess vegna er ég ákaf-
lega hlynnt því að gefið sé út
blað á hverjum stað, að ég nú
ekki tali um þá staðreynd að út-
gáfa dagblaðs er hafin utan
Reykjavíkur.
Én þú varst að tala um sam-
keppni, já. Víkurblaðið kemur
út einu sinni í viku, á miðviku-
dögum. Það er ekki hægt að tala
um að við séum í samkeppni um
hver sé fyrstur með fréttirnar.
- Pannig að það er allt í sóma
hjá ykkur þarna fyrir austan?
- Já, já, það er ekki hægt að
segja annað. Ég vil Víkurblað-
inu allt hið besta og vona að það
gangi vel. Sömuleiðis vona ég að
mér gangi vel og að bæði Víkur-
blaðið og Dagur megi dafna.
- Hvernighafa viðtökurHús-
víkinga verið?
- Alveg dásamlegar, mér hef-
ur verið ákaflega vel tekið.
Menn eru hrifnir af því að hafa
hér staðsettan blaðamann og
hafa sýnt þessu mikinn áhuga.
Það hefur fjöldinn allur af fólki
hringt til að gerast áskrifendur.
Ætli það segi ekki sína sögu.
- Heyrðu vinkona, áður en
ég segi bless, segðu okkur að-
eins af áhugamálunum
- Þau eru fjölbreytt. Ég er
mikið í félagsmálum og er
óskaplegur lestrarhestur. Ég hef
áhuga á mannlífi. Ég hef áhuga á
að ferðast um heiminn, sjá
hvernig aðrir hafa það og hvern-
ig aðrir hugsa og bera það sam-
an við okkur hér uppi á klakan-
um. En það segir sig sjálft að
húsmóðir nteð ung börn hefur
ekki mikil tækifæri til að ferðast.
En það kemur dagur eftir þenn-
an dag, eins og einhvern tíma
var sagt.
- Við bíðum bara eftir tæki-
færinu og biðjum að heilsa aust-
ur á Húsavík.
- Já, takk, ég bið líka að
heilsa ykkur öllunt. - mþþ
■
m,
w,
lf;r
f mw
Óslax hf. Ólafsfirði
Óskar að ráða
framkvæmdastjóra
fyrir félagiö.
í starfinu fellst aö vinna aö uppbyggingu og
rekstri fiskeldisstöðvar viö Ólafsfjaröarvatn.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu fiskeldis-
fræðingar eða vanir fiskeldi og geti hafið störf
sem fyrst. Uppl. gefur Ásgeir Ásgeirsson í síma
96-62151 Ólafsfirði.
Óslax hf.
Odýr notuð húsgögn
Seljum næstu daga tklýr húsgögn að Skipagötu 13
Svo sem: Hillusamstæður, svefnsófa, stóla, raðsett,
hjónarúm og alls konar húsmuni aðra, harnakerrur.
Allt vel með farið
Allt á að seljast. Greiðsluskilmálar.
Opið frá kl. 13-18 virka daga að
Skipagötu 13 (Drangshúsið)
ÓDÝRI MARKAÐURINN.
æ3Be V XmilHFTHj/ Nýliðastarfið y er að hefjast
Kynningarfundur verður 18. október kl. 20.00 að Galtalæk gegnt flugvelli.
Öllum 16 ára og eldri heimil þátttaka.
Stjórnin.
Óskum eftir að taka á leigu
4ra herb. íbúð
AugliV
ÁUGLYSING4STOM SIMI 269ll
Kvöld og helgarsími 25349.
Útboð
Tilboð óskast í að innrétta fokhelt 240 fm.
húsnæði að Gunnarsbraut 4-6 Dalvík.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Hauks
Haraldssonar sf. Kaupangi Akureyri gegn 5.000
kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð sama dag
þriðjud. 15. október 1985 kl. 11.00.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Útför móður okkar,
RÓSU JÓNASDÓTTUR,
fyrrum húsfreyju á Grýtu ( Eyjafirði,
sem lést á heimili sínu, Þórunnarstræti 104, Akureyri, þann
30. september fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 8 októ-
ber kl. 13.30.
Jarðsett verður að Munkaþverá sama dag.
Börnin.