Dagur - 07.10.1985, Page 1
68. árgangur
ið er 20 ára afmæli útibús Iðnað-
arbankans á Akureyri sem verð-
ur 21. nóvember í haust. Um
miðjan síðastliðinn vetur var öll-
um skólum sem innihalda áður-
nefndan aldurshóp boðið að
leggja þessa samkeppni fyrir
nemendur.
Að sögn Sigurðar Ringsted í
Iðnaðarbankanum munu 50
myndir hljóta viðurkenningu í
formi peningaupphæðar. Auk
þess mun bankinn óska eftir að fá
að kaupa myndir af 10-15
börnum. Myndefnið er mjög
frjálst og verða myndirnar ein-
göngu metnar út frá listrænu
sjónarmiði, að sögn Helga Vil-
berg sem sæti á í dómnefnd.
Vitað er að a.m.k. í einhverj-
um skólum liafa kennarar lagt
það verkefni fyrir börnin að
teikna myndir í þessari sam-
keppni í teiknitímum og fer það
þá að vera spurning hvort börnin
eru að taka þátt í einhverri
samkeppni af fúsum og frjálsum
vilja eða hvort þau vinna þetta
eins og hvert annað verk sem
skólinn felur þeim að leysa af
hendi. Pá mætti einnig spyrja: Á
svona samkeppni sem stofnað er
til í því skyni að auglýsa. upp
ákveðið fyrirtæki, erindi inn í
barnaskóla? -yk.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASl, heldur ræðu á þingi Alþýðusambands Norðurlands, sem samþykkti all byltinga-
kennda ályktun. Mynd: KGA
„Ég reikna ekki með því sem
möguleika að kennari leggi
það fyrir nemendur sem
skylduverkefni að taka þátt í
samkeppni frá utanaðkomandi
aðilum.“
Þannig svaraði Benedikt Sig-
urðarson, skólastjóri Barnaskóla
Akureýrar, spurningu um það
hvort börnum í hans skóla hefði
verið gert að taka þátt í myndlist-
arsamkeppni sem Iðnaðarbank-
inn hefur boðið 9-11 ára börnum
á Akureyri að taka þátt í. Tilefn-
Akureyri, mánudagur 7. október 1985// /. Hð. tölublað
Alþýðusamband Norðurlands:
Skip á skjön
Kanadíski togarinn, sem Slippstöðin er að lengja, var tekinn í sundur á
laugardaginn. Myndin er tekin þegar unnið var við að koma botnhluta leng-
ingarinnar fyrir. Mynd: KGA
Sauðárkrókur:
Ekið á hross
- Sjö í fangageymslu
Mjög mikið annríki var hjá
lögreglunni á Sauðárkróki um
helgina. Ekið var á þrjú hross
rétt sunnan bæjarins.
Það gerðist um kl. 20.00 á
föstudagskvöld. Tveir bílar
mættust, og voru báðir með öku-
ljós. Virtist ökumaður annars
bílsins hafa blindast af ljósum
hins, með þeim afleiðingum að
hann ók inn í hrossahóp, sem var
á veginum. Þrjú hross lentu fyrir
stórum sendlabíl og drápust
hrossin samstundis.
Mikið hefur verið kvartað yfir
hrossum og öðrum búfénaði á
vegum í Skagafirði, og oft hefur
legið við meiriháttar slysum. í
þessu tilfelli urðu ekki slys á
mönnum og er það þakkað ör-
yggisbeltum fyrst og fremst að
ekki fór verr. Bílinn sem ók á
hrossin er talinn ónýtur.
Mikil ölvun var á Sauðárkróki
um helgina. Sjö þurftu að gisti
fangageymslur lögreglunnar.
Tveir voru einnig teknir ölvaðir
við akstur. - gej
Vill afnám eftir-
vinnu og bónuss
Alþýðusamband Norðurlands
hélt um helgina sitt 19. þing.
Það var haldið í hinum glæsi-
legu húsakynnum í Alþýðu-
húsinu nýja við Skipagötu á
Akureyri.
Aðalmál þingsins voru
kjara- og atvinnumál. Gestur
þingsins var Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ. Hann tal-
aði um innra starf í verkalýðs-
hreyflngunni ásamt kjaramál-
um í Ijósi komandi kjarasamn-
inga.
Tillaga frá Hákoni Hákonar-
syni þess efnis að afnema skuli
eftirvinnu og afkastahvetjandi
launakerfi án skerðingar á laun-
um var samþykkt samhljóða.
Einnig var samþykkt að þessi
- án launaskerðingar
krafa hefði forgang fyrir næstu
samninga. Rætt var um að launa-
hvetjandi kerfi auk óhóflegrar
eftirvinnu stefndu heilsufari fólks
í hættu, og að fólk ætti að geta lif-
að af dagvinnulaunum.
Milliþinganefnd hefur starfað
frá síðasta þingi, sem hafði það
verkefni að ræða endurskipu-
lagningu sambandsins. Nefndin
skilaði tillögu um val fjögurra
valkosta varðandi breytingar.
Fyrsta tillaga var á þá leið að
óbreytt skipulag yrði áfram á
stjórn sambandsins. Önnur var á
þá leið að leggja sambandið
niður. Þriðja tillaga var þess efnis
að flytja starfsemina inn í starf-
andi félög á svæðinu. Fjórða til-
lagan var sú að hækka skatttekjur
af félagsmönnum til að standa
straum af rekstri félagsins. Með
auknum tekjum félagsins yrði
farið út í stóraukinn erindisrekst-
ur og fræðslustarfsemi. Einnig
myndi það þýða að samningar
yrðu teknir heim í hérað. Miklar
umræður urðu um þetta mál, þó
sérstaklega lið eitt og fjögur. Áð
lokum var samþykkt að hafa rekst-
ur félagsins í óbreyttu formi, þar
sem skatttekjur félagsins væru nú
þegar nógu þung byrði mörgum
félagsmönnum.
Stjórn sambandsins var endur-
kjörin að undanskyldu því að
Hafþór Rósmundsson var kjör-
inn í stjórnina í stað Kolbeins
Friðbjarnarsonar sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs. Stjórn-
ina skipa: Þóra Hjaltadóttir for-
maður, Snær Karlsson, Sævar Frí-
mannsson, Hafþór Rósmunds-
son, Kristín Hjálmarsdóttir. - gej
Samningaviðræður um bónusmál fiskvinnslufólks:
„Okkur var ekki kastað út“
- sagði Björn Snæbjörnsson hjá Einingu
Einn samningafundur Einingar
og atvinnurekenda um bón-
usmál Einingarfélaga í Eyja-
firði hefur verið haldinn og
annar er áformaður nú strax
eftir helgina. Kröfur Einingar
hafa vakið talsverða athygli,
enda eru farnar aðrar leiðir en
hinar hefðbundnu.
„Okkur var a.m.k. ekki kastað
út,“ sagði Björn Snæbjörnsson
hjá Verkalýðsfélaginu Einingu er
við spurðum hann um viðbrögð
vinnuveitenda við kröfum Eining-
ar á þessum fyrsta samninga-
fundi. „Annars má segja að þetta
hafi verið rabbfundur, við lögð-
um fram okkar kröfur og at-
vinnurekendur eru nú að skoða
þær.“
Aðalinntakið í kröfum Eining-
ar sem fer með samningamálin
fyrir allt fiskverkunarfólk á Eyja-
fjarðarsvæðinu er að bónus-
grunnurinn hækki upp í 92,86 kr.
sem er fiskvinnslutaxtinn eftir 5
Þá er farið fram á það að
32,3% verði tekin af reiknitölu
kaupaukans og atvinnurekendur
leggi fram 11% á móti eða sam-
tals 74,2% af reiknitölunni verði
greitt sem álagsgreiðsla á öll laun
við framleiðsluna. Þetta kæmi
sem álagsgreiðsla og myndi
minnka hlut bónussins.
„Þessi kröfugerð er nýjung og
allt öðruvísi en samningur
Verkamannasambandsins er,“
sagði Björn. „Við erum með
mjög sterka samstöðu fólksins á
bak við okkur og ég held að við
höfum aldrei náð upp öðrum eins
„dampi" og núna. gk-.
Eru skólarnir
notaðir í
auglýsingaskyni?